KR-völlur
mánudagur 30. júlí 2012
kl. 20:00
Pepsi-deildin
Dómari: Magnús Þórisson
Áhorfendur: 2471
KR 2 - 0 ÍA
1-0 Óskar Örn Hauksson ('6)
2-0 Kjartan Henry Finnbogason ('37)
Myndir: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
4. Bjarni Guðjónsson
7. Gary Martin
8. Baldur Sigurðsson
10. Kjartan Henry Finnbogason ('81)
11. Óskar Örn Hauksson
18. Aron Bjarki Jósepsson
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson

Varamenn:
3. Haukur Heiðar Hauksson ('83)
6. Gunnar Þór Gunnarsson
9. Þorsteinn Már Ragnarsson ('81)
16. Jónas Guðni Sævarsson ('65)
23. Atli Sigurjónsson
24. Björn Jónsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

Arnar Daði Arnarsson
Auðvelt hjá KR gegn Skagamönnum
Það voru miklir yfirburðir KR-inga í fyrri hálfleik sem skóp 2-0 sigur þeirra gegn ÍA í Frostaskjólinu í kvöld. Bæði mörk dagsins litu dagsins ljós í fyrri hálfleik og hefðu jafnvel getað verið fleiri KR-mörkin í fyrri hálfleik.

Skagamenn áttu í erfiðleikum með að halda boltanum á milli sín á meðan KR-ingar áttu nokkrar ágætis-sóknir eftir laglegt spil.

Fyrsta mark leiksins skoraði Óskar Örn Hauksson eftir sofanda hátt í ÍA-liðinu. Bjarni Guðjónsson gaf stutta sendingu á Óskar Örn á miðjum vellinum, Óskar tók þrjár snertingar og var kominn lygilega nálægt markinu og lagði boltann í netið, án þess að vera pressaður af gott sem einum Skagamanni.

KR-ingar slökuðu ekkert á eftir að hafa komist yfir og hver sóknin á fætur annarri hjá KR leit dagsins ljós í Frostaskjólinu, Magnús Már átti nokkrar fínar rispur upp hægri kantinn og Árni Snær þurfti að vera vel á verði í markinu, annað en kollegi hans í KR-markinu, Hannes Þór sem þurfti lítið annað en að halda sér heitum sjálfur, með æfingum úr smiðju Guðmundar Hreiðarssonar markmannsþjálfara.

Fyrsta skot Skagamanna á markið kom eftir 34 mínútur en Hannes var þá vel á verði og greip skot Jóns Vilhelms.

Á 37.mínútu komust KR-ingar síðan í 2-0. Bjarni Guðjónsson átti þá atvinnumanna sendingu innfyrir vörn ÍA, þar sem Gary Martin var skyndilega kominn einn gegn Árna Snæ, Gary var óeigingjarn og lagði boltann til hægri þar sem Kjartan Henry þurfti lítið annað að gera en að leggja boltann í netið, eins og hann orðaði það í viðtali eftir leikinn.

Það var ekki boðið upp á mikið í seinni hálfleik, Skagamenn sóttu sér í þrjú gul spjöld, bæði lið notuðu allar sínar skiptingar og gestirnir voru aldrei líklegir að minnka muninn, hvað þá að næla sér í stig úr Vesturbænum.

KR-ingar fóru því nokkuð auðveldlega útúr seinni hálfleiknum, Jónas Guðni sem gekk til liðs við KR frá Halmstad í vikunni fékk 25 mínútur og fékk góðar viðtökur frá KR-ingum í stúkunni.

Auðveldur sigur KR-inga því staðreynd og halda því Vesturbæinar enn topp sætinu í deildinni á meðan ÍA-menn hafa einungis sigrað einn leik í deildinni í síðustu níu leikjum, en eru þó á fínum stað í deildinni í 7.-9.sæti.
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Aron Ýmir Pétursson
4. Kári Ársælsson
6. Ármann Smári Björnsson
8. Jóhannes Karl Guðjónsson
9. Garðar Bergmann Gunnlaugsson
10. Jón Vilhelm Ákason ('79)
13. Guðjón Heiðar Sveinsson ('58)
16. Andri Adolphsson
20. Dean Martin ('62)
21. Einar Logi Einarsson

Varamenn:
1. Páll Gísli Jónsson (m)
14. Ólafur Valur Valdimarsson ('62)
15. Theo Furness ('58)
19. Eggert Kári Karlsson

Gul spjöld:
Aron Ýmir Pétursson ('60)
Einar Logi Einarsson ('58)
Kári Ársælsson ('47)

Rauð spjöld: