Víkingur R.
2
0
Haukar

Hjörtur Júlíus Hjartarson
'38
1-0
Igor Taskovic
'80
, víti
2-0
13.05.2013 - 19:00
Víkingsvöllur
Borgunarbikarinn
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Víkingsvöllur
Borgunarbikarinn
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Byrjunarlið:
9. Viktor Jónsson
21. Arnþór Ingi Kristinsson
('66)
('66)
Varamenn:
4. Igor Taskovic
('66)
('66)
11. Dofri Snorrason
('75)
('75)
27. Tómas Guðmundsson
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Arnþór Ingi Kristinsson ('16)
Rauð spjöld:
Víkingur Reykjavík með þægilegan sigur
Markavélin, Hjörtur Júlíus Hjartarson kom Víkingum frá Reykjavík á bragðið í kvöld, er þeir slógu út Hauka í 64-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Varamaðurinn Igor Taskovic skoraði síðan seinna mark Víkings úr víti í 2-0 sigri í Fossvoginum í kvöld.
Það voru reyndar gestirnir úr Hafnarfirði sem byrjuðu leikinn betur og af miklum krafti. Þeir áttu fyrstu færi leiksins, en Ingvar Kale í marki Víkings var vel á verði. Ef hann var ekki í því að grípa fyrirgjafir Hauka þá var hann að verja frá sóknarmönnum Hauka, þeim Hilmari Rafni Emilssyni og Ásgeiri Þór Ingólfssyni.
Fyrsta færi Víkings fékk Hjörtur reyndar. Þar brást honum bogalistin í mjög svo fínu færi eftir fyrirgjöf frá hægri. Sigmar Ingi varði reyndar vel frá Hirti í tvígang í því færi.
En Marka-Hjössi lætur ekki bjóða sér færi innan teigs oft í leik án þess að nýta sér það og á 38. mínútu stóð hann svo sannarlega undir nafni. Eftir hornspyrnu datt boltinn fyrir fætur hans inn í miðjum markteig Hauka og hann skoraði. Framherjamark eins og það gerist best.
Eftir markið tóku Víkingar völdin á vellinum og voru klaufar að vera ekki með meiri forystu í hálfleik. Gunnar Helgi Steindórsson átti til dæmis fína tilraun undir lok fyrri hálfleiks, en skot hans eða vippa, yfir Sigmar í markinu og gott betur en það, því boltinn fór yfir markið einnig.
Staðan í hálfleik 1-0.
Færin í seinni hálfleik voru ekki íkja mörg en Haukarnir hefðu þó hæglega getað jafnað metin og Víkingar að sama skapi bætt við mörkum. Næst því að skora var þó líklega varamaðurinn, Úlfar Hrafn Pálsson sem átti skot í þverslánna af markteigslínunni.
Stuttu síðar gerðu Víkingar þó endanlega útum leikinn er varamaður þeirra, Igor Taskovic kom þeim í 2-0 með marki úr vítaspyrnu.
Viktor Jónsson tók Hafþór Þrastarson á, sem síðan braut á Viktori innan teigs og því réttilega dæmd vítaspyrna. Sigmar fór í rétt horn, en spyrna Igors þéttings föst og boltinn endaði í netinu.
Leikurinn fjaraði heldur út eftir þetta og Víkingar fóru nokkuð þægilega í gegnum síðustu mínútur leiksins. Víkingar því komnir í 32-liða úrslit bikarsins en Haukaliðið úr leik og geta því ekki gert neitt annað en einbeitt sér að 1.deildinni í allt sumar.

1. Sigmar Ingi Sigurðarson (m)
Hafþór Þrastarson
Hilmar Rafn Emilsson
('85)
('85)
Hilmar Trausti Arnarsson
Ásgeir Þór Ingólfsson
10. Hilmar Geir Eiðsson
('64)
('64)
17. Gunnlaugur F. Guðmundsson
19. Brynjar Benediktsson
20. Hafsteinn Briem
22. Aron Jóhannsson (f)
('64)
('64)
22. Alexander Freyr Sindrason (f)
Varamenn:
1. Magnús Þór Gunnarsson (m)
6. Úlfar Hrafn Pálsson
('64)
('64)
16. Aron Freyr Eiríksson
23. Guðmundur Sævarsson
('64)
('64)
26. Þórður Jón Jóhannsson
('85)
('85)
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Hafþór Þrastarson ('90)
Hafsteinn Briem ('70)
Hilmar Rafn Emilsson ('63)
Rauð spjöld: