Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Fram
1
1
Fylkir
Steven Lennon '65 1-0
1-1 Viðar Örn Kjartansson '87
13.05.2013  -  19:15
Laugardalsvöllur
Pepsi-deildin
Aðstæður: Smá vindur, ,bjart og þurrt.
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Maður leiksins: Viðar Örn Kjartansson
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
9. Haukur Baldvinsson ('61)
11. Almarr Ormarsson
13. Viktor Bjarki Arnarsson
28. Bjarni Hólm Aðalsteinsson

Varamenn:
14. Halldór Arnarsson
23. Benedikt Októ Bjarnason

Liðsstjórn:
Daði Guðmundsson
Helgi Sigurðsson (AÞ)

Gul spjöld:
Alan Lowing ('71)
Bjarni Hólm Aðalsteinsson ('60)
Samuel Hewson ('42)

Rauð spjöld:
@elvargeir Elvar Geir Magnússon
Kári gerði liðunum í Laugardal erfitt fyrir
Það var rakarasonurinn af Selfossi hann Viðar Örn Kjartansson sem var hetja Fylkismanna í kvöld er hann jafnaði leik þeirra við Fram er einungis 3 mínútur lifðu eftir af venjulegum leiktíma.

Leikurinn í kvöld fer ekki í sögubækurnar sem besti knattspyrnuleikur sem leikinn hefur verið. Fyrri hálfleikurinn var heldur bragðdaufur og var hvorugt liðanna að skapa sér nein færi. Enda spilaði vindurinn stórt hlutverk í fyrri hálfleik. Hann gerði það að verkum að boltinn fauk bókstaflega út í veður og vind er reynt var að spyrna honum eitthvert í loftinu. Mátti m.a. litlu muna að hann fyki inn í mark Fylkismanna í eitt sinn er Bjarni Þórður kýldi hann í burtu.

Seinni hálfleikurinn var mun skárri enda lægði vindinn töluvert. Kristinn Ingi Halldórsson kom inn á hjá Fram á 61 mínútu leiksins og átti hann eftir að setja mark sitt á leikinn. 4 mínútum seinna sendi hann boltann á Steven Lennon sem átti ekki í vandræðum með að setja hann í netið.

Fylkismenn voru töluvert sterkari eftir þetta mark og var það Viðar Örn sem skoraði með laglegum skalla eftir sendingu frá Tryggva Guðmundssyni á 87. mínútu. Vel gert hjá þeim félögum.

Niðurstaðan jafntefli sem má alveg telja sanngjarnt.
Byrjunarlið:
Árni Freyr Guðnason
Bjarni Þórður Halldórsson
11. Kjartan Ágúst Breiðdal
16. Tómas Joð Þorsteinsson
17. Davíð Þór Ásbjörnsson
24. Elís Rafn Björnsson

Varamenn:
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
- Meðalaldur 33 ár

Liðsstjórn:
Daði Ólafsson (Leikgr.)

Gul spjöld:
Bjarni Þórður Halldórsson ('89)
Tómas Joð Þorsteinsson ('73)

Rauð spjöld: