Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Þór/KA
1
2
Stjarnan
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir '10
0-2 Elva Friðjónsdóttir '27
Mateja Zver '65 1-2
14.05.2013  -  18:00
Þórsvöllur
Pepsideild kvenna
Aðstæður: Hressileg gola og kalt
Dómari: Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Áhorfendur: 69
Maður leiksins: Harpa Þorsteinsdóttir
Byrjunarlið:
Lára Einarsdóttir
2. Gígja Valgerður Harðardóttir
4. Karen Nóadóttir ('46)
5. Tahnai Annis
10. Katrín Ásbjörnsdóttir
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
14. Aldís Marta Sigurðardóttir
23. Mateja Zver
- Meðalaldur 33 ár

Varamenn:
Katla Ósk Rakelardóttir ('46)
8. Andrea Mist Pálsdóttir
9. Hafrún Olgeirsdóttir ('90) ('83)
24. Arna Benný Harðardóttir ('90)
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir

Liðsstjórn:
Silvía Rán Sigurðardóttir
Ágústa Kristinsdóttir

Gul spjöld:
Mateja Zver ('62)

Rauð spjöld:
@jedissson Jóhann Óli Eiðsson
Sanngjarn sigur bikarmeistaranna á Íslandsmeisturunum
Þær voru ekki öfundsverðar stelpurnar í Þór/KA og Stjörnunni af því að þurfa að spila á Akureyri í dag. Það var vægast sagt kalt og svo blés að norðan. Liðunum var spáð góðu gengi fyrir tímabilið og var því ljóst að um stórleik var að ræða. Seinast mættust liðin fyrir tveimur vikum í meistarakeppni KSÍ og hafði Þór/KA þá betur í vítaspyrnukeppni. Annað var upp á teningnum í dag.

Strax í upphafi leiks ógnuðu Stjörnustelpur og fór Harpa Þorsteinsdóttir þar fremst í flokki. Eftir níu mínútur átti hún skalla í slá og mínútu síðar var hún búin að skora fyrsta mark leiksins. Það gerði hún með poti eftir að fyrirliðinn Ásgerður Soffía skallaði hornspyrnu áfram til hennar.

Eftir markið hresstust Íslandsmeistararnir eilítið en það dugði þó skammt og næsta mark var einnig gestanna. Það skoraði Elva Friðjónsdóttir, fyrrum leikmaður Þórs/KA, eftir undirbúning frá Hörpu. Stjarnan gerði sig líklega til að bæta við fyrir hálfleik en allt kom fyrir ekki.

Seinni hálfleikur var frekar bragðdaufur. Tahnai Annis átti skot í slá á 54. mínútu fyrir heimastelpur og þær náðu síðan að klóra í bakkann á 65. mínútu. Það gerði Mateja Zver með skalla eftir sendingu Kayle Grimsley. Skömmu áður hafði Mateja fengið gult spjald fyrir að sparka niður leikmann þegar boltinn var víðsfjarri og spurning hvort liturinn á spjaldinu hefði mátt vera öðruvísi.

Niðurstaðan varð því 2-1 sigur bikarmeistaranna úr Garðabænum og eru þær með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Íslandsmeistararnir hefja titilvörn sína ekki af nægilegum krafti og eru aðeins með eitt stig eftir tvo leiki.
Byrjunarlið:
1. Sandra Sigurðardóttir (m)
Harpa Þorsteinsdóttir
4. Glódís Perla Viggósdóttir
5. Írunn Þorbjörg Aradóttir
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (f)
8. Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir
10. Anna María Baldursdóttir (f)
11. Elva Friðjónsdóttir ('73)
17. Rúna Sif Stefánsdóttir
19. Anna Björk Kristjánsdóttir
27. Danka Podovac ('77)
- Meðalaldur 31 ár

Varamenn:
3. Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir
9. Kristrún Kristjánsdóttir
18. Heiðrún Ósk Reynisdóttir
23. Eyrún Guðmundsdóttir ('73)
24. Bryndís Björnsdóttir
25. Megan Manthey ('77)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: