Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Valur
1
1
Fram
0-1 Hólmbert Aron Friðjónsson '36
Bjarni Hólm Aðalsteinsson '47 , sjálfsmark 1-1
Kristinn Freyr Sigurðsson '82 , misnotað víti 1-1
16.05.2013  -  19:15
Vodafonevöllur
Pepsi-deildin
Aðstæður: Gordjöss
Dómari: Valgeir Valgeirsson
Áhorfendur: 10323
Maður leiksins: Rúnar Már Sigurjónsson
Byrjunarlið:
Fjalar Þorgeirsson
Haukur Páll Sigurðsson
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Andri Fannar Stefánsson ('46)
- Meðalaldur 35 ár

Varamenn:
Ásgeir Þór Magnússon (m)
13. Arnar Sveinn Geirsson

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)

Gul spjöld:
Magnús Már Lúðvíksson ('80)
Nesta Matarr Jobe ('33)
Haukur Páll Sigurðsson ('31)

Rauð spjöld:
@arnardadi Arnar Daði Arnarsson
Valur og Fram skiptu stigunum á milli sín
Magnús Gylfason stillti upp sama Valsliði og bar sigur úr bítum á Skipaskaga í síðustu umferð. Kollegi hans hjá Fram gerði tvær breytingar á sínu liði, Hólmbert Aron og Kristinn Ingi komu inn í byrjunarliðið í stað Viktors Bjarka og Hauk Baldvinssonar.

Það er óhætt að segja það að Valsmenn hafi ekki mætt til leiks í fyrri hálfleik miðjan var hvergi sjáanleg og Valsmenn buðu uppá háa boltann fram á völlinn á Kolbein sem var einn á toppnum, ef boltinn fór til hans, þá átti hann í erfiðleikum gegn bæði Bjarna Hólm og Ólafi Erni í skallabarátunni.

Framararnir litu hinsvegar mjög vel út í fyrri hálfleik, Jordan Halsman með sínar spyrnur inn í teiginn og með þá, Almarr Ormarson, Steven Lennon, Kristin Inga og Hólmbert Aron í sóknarspilinu voru þeir í mikilli sókn, nánast allan fyrri hálfleikinn.

Það var nær ótrúlegt að Framarar hafi einungis verið einu marki yfir í hálfleik. Fyrir þá sem sáu leikinn, var það reyndar ekkert skrýtið að Matar Jobe Nesta hafi nánast gefið markið. Nesta átti því miður ekki sinn besta leik og var tekinn af velli á 40.mínútu fyrir Rúnar Má.

Á 36.mínútu missti hann boltann í miðri vörninni, Steven Lennon nýtti sér það, tók stuttan en snarpann sprett með boltann að markinu, renndi síðan boltann til vinstri þar sem Hólmbert Aron Friðjónsson var mættur og renndi boltanum í netið, framhjá varnarlausum Fjalari Þorgeirssyni.

Framarar fóru því með eins marks forystu inn í hálfleikinn, klaufar að hafa ekki meiri forystu í hálfleik. Magnús Gylfason gerði aðra breytingu á sínu liði í hálfleik. Andri Fannar var tekinn af velli fyrir Matthías Guðmundsson.

Seinni hálfleikurinn var hinsvegar eins og svart og hvítt miðað við fyrri hálfleikinn. Framarar mættu ekki til leiks í seinni hálfleikinn á réttum tíma og Valsmenn voru fljótir að nýta sér það. Á 47.mínútu gaf James Hurst sendingu fyrir markið og þar var Bjarni Hólm Aðalsteinsson óheppinn að fá boltann í sig og boltinn endaði í markinu.

Þetta jöfnunarmark eins og köld vatnsgusa framan í Framarana. Það kom líka á daginn, þeir voru hálf vankaðir og lengi að jafna sig og átta sig á stöðunni. Valsmenn fengu þau fá dauðafæri en voru mun meira með boltann. Varamaðurinn Rúnar Már stjórnaði spili Valsmanna eins og hann var þekktur fyrir að gera í fyrra og það munaði um hann á vellinum.

Á 82.mínútu voru Valsmenn síðan í kjörstöðu að komast yfir. Viktor Bjarki Arnarsson sem hafði komið inn á sem varamaður fékk þá boltann í hönd sína. Það var ekki annað hægt fyrir Valgeir Valgeirsson að benda á punktinn.

Kristinn Freyr Sigurðsson sem hafði skorað fyrir Val í fyrstu tveimur leikjum þeirra í sumar steig á punktinn, en honum brást bogalistin, skot hans í stöngina. Stuttu síðar vildu Framarar síðan fá víti þegar boltinn virtist fara í hendina á Bjarna Ólafi innan teigs en Valgeir sá ekkert athugavert.

Lokatölur á Hlíðarenda 1-1. Jafnvel sanngjörn úrslit eftir allt saman, bæði lið unnu sitthvorn hálfleikinn.
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
11. Almarr Ormarsson ('87) ('87)
28. Bjarni Hólm Aðalsteinsson

Varamenn:
1. Denis Cardaklija (m)
9. Haukur Baldvinsson
13. Viktor Bjarki Arnarsson ('70)
14. Halldór Arnarsson
23. Benedikt Októ Bjarnason

Liðsstjórn:
Daði Guðmundsson
Helgi Sigurðsson (AÞ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: