Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Fylkir
0
1
Stjarnan
0-1 Kennie Chopart '83
16.05.2013  -  19:15
Lautin
Pepsi-deildin
Dómari: Örvar Sær Gíslason
Byrjunarlið:
Bjarni Þórður Halldórsson
4. Finnur Ólafsson
16. Tómas Joð Þorsteinsson
17. Davíð Þór Ásbjörnsson
24. Elís Rafn Björnsson ('75)

Varamenn:
4. Andri Þór Jónsson

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Oddur Ingi Guðmundsson

Gul spjöld:
Bjarni Þórður Halldórsson ('88)
Sverrir Garðarsson ('88)

Rauð spjöld:
@maggimar Magnús Már Einarsson
Kennie kláraði Fylkismenn
Aðstæður á Fylkisvelli í kvöld voru ágætar. Léttvæg gola og völlurinn allur að koma til. Fyrri hálfleikur var hinsvegar ekki uppá marga fiska og skemmtanagildið í lágmarki. Bæði lið voru líflaus og virtust lítinn áhuga hafa á að ná einhverju jákvæðu í gang.
Jafnt var með liðunum en Stjörnumenn kannski að spila ívið meiri bolta þótt ekki hefði mikið verið á milli. Fyrsta færi leiksins fékk Pablo Punyed en skot hans fór framhjá. Tryggvi Guðmunds átti svo slakt skot með vinstri fæti eftir laglegt upphlaup. Besta færi hálfleiksins fékk hinsvegar Garðar Jóhannsson þegar Veigar Páll Gunnarsson fékk boltann við miðjulínu og setti Garðar innfyrir þar sem hann hafði sennilega of mikinn tíma til að athafna sig og lét Bjarna Þórð í markinu verja frá sér. Sannkallað dauðafæri. Besta tilraun heimanna kom eftir fyrirgjöf frá Tryggva sem rataði til Viðars sem fann sig utarlega í teignum, Viðar gerði vel í mótttökunni en fast skot hans fór naumlega framhjá Stjörnumarkinu.

Hálfleikurinn fjaraði svo út þar sem meðalmennskan var í aðalhlutverki hjá báðum liðum.

Síðari hálfeikurinn var tíðindameiri og máttu greinilega sjá batamerki hjá báðum liðum. Stjörnumenn fóru að færa boltann hraðar sín á milli og jókst hraði leiksins í takt við það. Fyrsta hættulega færið leit þó ekki dagsins ljós fyrr en eftir stundarfjórðung þegar Halldór Orri skilaði gæðaspyrnu inná teiginn af vinstri vængnum sem fann Garðar Jóh með tíma og pláss en skalli hans fór yfir mark heimamanna. Stuttu síðar kom hinn danski Kennie Chopart inná fyrir Ólaf Karl Finsen og var hann ekki lengi að stimpla sig inn því með sinni fyrstu snertingu knúði hann Bjarna Þórð til að taka á honum stóra sínum er hann hleypti af föstu skoti í teignum eftir að hafa fengið boltann úr klafsi. Fylkismenn reyndu hvað þeir gátu með Viðar Örn í broddi fylkingar en varnarmenn Stjörnunnar voru vel á verði og hrundu flestum sóknaraðgerðum Fylkismanna.

Halldór Orri var svo nálægt því að leggja upp mark fyrir Veigar Pál en renniskot hans úr markteignum hafnaði í slánni á Fylkismarkinu. Kennie Chopart var svo aftur á ferðinni en Bjarni Þórður sýndi viðbrögð á við norskan skógarkött þegar hann varði fast skot hans úr teignum eftir góða fyrirgjöf Harðar Árna frá vinstri.

Fylkismenn komust næst því að skora þegar Viðar Örn Kjartansson átti gott skot sem hafnaði í varnarmanni Stjörnunnar, boltinn barst þaðan til Fylkismanns sem átti skot sem sigdi meðfram markteignum og upphófst mikill darraðardans í kjölfarið sem endaði á því að Stjörnumenn náðu að koma boltanum frá. Vantaði ekki mikið uppá að einhver Fylkismaður kæmi tá í boltann þar sem hann battaðist manna á milli í markteig Stjörnunnar.

Nokkrum mínútum síðar komst Halldór Orri svo ein innfyrir en vippa hans yfir Bjarna Þórð var hreinsuð af línunnni af varnarmanni Fylkis.

Það var svo varamaðurinn Kennie Chopart sem braut ísinn þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum. Veigar Páll fann hann í hlaupi og gerði Kennie afar vel er hann fór framhjá aðvífandi Bjarna Þórði og slúttaði Kennie smekklega með vinstri úr þröngu færi. Bláir komnir í ákjósanlega stöðu.

Gerðist fátt það sem eftir lifði leiks. Fylkismenn freistuðu þess að koma inn jöfnunarmarkinu en náðu ekki að gera sig líklega og góður 0-1 útisigur Garðbæinga staðreynd þar sem Kennie skákaði Fylki í Árbænum.
Byrjunarlið:
4. Jóhann Laxdal
7. Atli Jóhannsson ('46)
8. Halldór Orri Björnsson
9. Daníel Laxdal
14. Hörður Árnason
17. Ólafur Karl Finsen ('60)
27. Garðar Jóhannsson ('76)

Varamenn:
13. Arnar Darri Pétursson (m)
21. Snorri Páll Blöndal

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Halldór Orri Björnsson ('53)
Garðar Jóhannsson ('45)

Rauð spjöld: