Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
FH
1
1
ÍBV
Atli Guðnason '30 1-0
1-1 Víðir Þorvarðarson '45
Guðjón Árni Antoníusson '85
16.05.2013  -  20:00
Kaplakriki
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Glimrandi sól, völlurinn ágætur
Dómari: Kristinn Jakobsson
Áhorfendur: 1817
Maður leiksins: Guðmann Þórisson (FH)
Byrjunarlið:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
Ólafur Páll Snorrason
Emil Pálsson ('72)
3. Guðjón Árni Antoníusson
4. Sam Tillen
7. Ingimundur Níels Óskarsson ('65)
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
11. Atli Guðnason
21. Guðmann Þórisson
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson ('81)
- Meðalaldur 36 ár

Varamenn:
9. Kristján Flóki Finnbogason
13. Kristján Gauti Emilsson
17. Atli Viðar Björnsson ('65)
18. Einar Karl Ingvarsson
- Meðalaldur 32 ár

Liðsstjórn:
Daði Lárusson

Gul spjöld:
Viktor Örn Guðmundsson ('88)
Björn Daníel Sverrisson ('74)
Freyr Bjarnason ('38)
Ingimundur Níels Óskarsson ('33)

Rauð spjöld:
Guðjón Árni Antoníusson ('85)
@vpeiriksson Valur Páll Eiríksson
Bragðdauft í toppslagnum
FH og ÍBV, tvö þriggja liða með fullt hús fyrir þriðju umferðina mættust í Kaplakrika í kvöld og búist var við hörkuleik. Leikurinn byrjaði ágætlega og hátt tempo var í honum, FH-ingar voru ívið betri og héldu boltanum betur. ÍBV lágu hins vegar vel til baka og erfitt var að brjóta vörn þeirra aftur. Þó náðu FH að brjóta ísinn á 30. mínútu þegar Atli Guðnason skoraði eftir góða fyrirgjöf frá Ólafi Páli þar sem varnarleikurinn hjá Eyjamönnum var þó vafasamur í nánast eina skiptið í leiknum. Þá tóku Eyjamenn heldur betur við sér sóknarlega og náðu að halda boltanum betur og voru nálægt því að skora strax í kjölfarið. Þeir náðu að skora rétt fyrir hálfleik eftir glæsilegt framtak Víðis Þorvarðarsonar áður en hann lagði boltann snyrtilega í hornið.

Það lofaði mjög góðu fyrir síðari hálfleikinn en ekki stóð hann undir því. Ian Jeffs átti fyrsta skot hálfleiksins er hann komst í ágætis færi á 68. mínútu. Heimir Guðjónsson freistaðist til þess að sækja öll þrjú stigin og breytti í 4-4-2 síðustu 10 mínúturnar er Viktor Örn kom inn fyrir slakan Brynjar Ásgeir Guðmundsson. Það fór hins vegar allt í vaskinn þegar fyrirliða Hafnfirðinga, Guðjóni Árna Antoníusyni var hent í sturtu af Kristni Jakobssyni, dómara leiksins, 5 mínútum síðar. Vafasamur dómur svo ekki sé meira sagt. Eyjamenn sóttu því meira undir lokin og má segja að Róbert Örn markmaður FH hafi bjargað stigi fyrir þá með frábærri markvörslu frá Gunnari Þorsteinssyni. Gunnar skaut þá skoppandi bolta upp í nærhornið en Róbert kom í veg fyrir mark.

Heilt yfir sanngjörn úrslit í bragðdaufum leik.
Byrjunarlið:
6. Gunnar Þorsteinsson
11. Víðir Þorvarðarson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
- Meðalaldur 34 ár

Varamenn:
22. Gauti Þorvarðarson

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Guðjón Orri Sigurjónsson
Jón Ingason

Gul spjöld:
Ian Jeffs ('83)
Bradley Simmonds ('37)
Tonny Mawejje ('7)

Rauð spjöld: