Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Stjarnan
1
1
Valur
Michael Præst '15 1-0
1-1 Bjarni Ólafur Eiríksson '59
21.05.2013  -  19:15
Samsung-völlur
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Völlurinn sléttur og grænn
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Áhorfendur: 913
Byrjunarlið:
4. Jóhann Laxdal
7. Atli Jóhannsson ('46)
8. Halldór Orri Björnsson
9. Daníel Laxdal
14. Hörður Árnason
27. Garðar Jóhannsson

Varamenn:
13. Arnar Darri Pétursson (m)
17. Ólafur Karl Finsen ('44)
21. Snorri Páll Blöndal

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Garðar Jóhannsson ('66)
Ólafur Karl Finsen ('58)

Rauð spjöld:
@maggimar Magnús Már Einarsson
Fasteignasalinn gaf ekki neitt
Valsmenn vildu fá vítaspyrnu undir lok leiks en fasteignasalinn, Guðmundur Ársæll Guðmundsson sem flautaði leikinn í Garðabænum í kvöld var ekki á sama máli. Rúnar Már féll í teignum og Valsmenn heimtuðu vítaspyrnu. Eftir leik bauluðu stuðningsmenn Vals á Guðmund og hans aðstoðarmenn þegar þeir löbbuðu í átt að stúkunni.

Það var erfitt að sjá hvort Guðmundur hafði rétt fyrir sér, en varnarmaður Stjörnunnar virtist þó hafa snert Rúnar Má innan teigs. Bæði lið kvörtuðu mikið undan dómgæslunni allan leikinn.

Bæði lið skoruðu sitthvort markið í leiknum og fóru því bæði með eitt stig heim eftir fjörugan leik.

Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar gerði eina breytingu á sínu liði fyrir leikinn frá síðasta leik, Kennie Knak Chopart kom inn í byrjunarliðið fyrir Ólaf Karl Finsen.

Magnús Gylfason gerði hinsvegar þrjár breytingar á sínu liði, Björgólfur Takefusa, Arnar Sveinn og Rúnar Már komu inn í byrjunarliðið fyrir Kolbein Kárason, Matarr Jobe og Andra Fannar.

Stjörnumenn höfðu yfirhöndina í leiknum í fyrri hálfleik, án þess þó að hafa einhverja rosalega yfirburði. Valsmenn náðu hinsvegar aldrei neinum takti í sitt spil í fyrri hálfleiknum.

Heimamenn komust yfir í fyrri hálfleik, þar var að verki miðjumaðurinn grjótharði, Michael Præst eftir aukaspyrnu Halldórs Orra. Boltinn fór í gegnum pakkann og Præst renndi sér í boltann og í netið fór hann.

Stjörnumenn voru síðan líklegri að bæta við öðru marki fyrir hálfleik en Valsmenn að jafna. Stjörnumenn fóru því virkilega svekktir inn í hálfleikinn með eins marks forskot þegar Guðmundur Ársæll flautaði til hálfleiks.

Stjörnumenn urðu fyrir áfalli undir lok fyrri hálfleiks þegar Kennie Chopart fór af velli. Í hálfleik gerði Logi síðan aðra breytingu á sínu liði. Baldvin Sturluson kom inná fyrir Atla Jó.

Magnús Gylfason tók Arnar Svein af velli í hálfleik fyrir Matthías Guðmundsson. Allt annað Valslið kom til seinni hálfleiks og minnti þetta mikið á síðasta leik þeirra í deildinni gegn Fram. Þar voru þeir undir í öllum aðgerðum í fyrri hálfleik en dómineruðu síðan seinni hálfleikinn.

Þeir reyndar dómineruðu ekki seinni hálfleikinn hér í kvöld, en voru þau töluvert líklegri. Eftir sjö mínútuna leik varði til að mynda Baldvin Sturluson á línu og James Hurst átti síðan sláarskot í kjölfarið. Eftir klukkutíma leik jöfnuðu Valsmenn loks metin.

Rúnar Már átti þá frábæra aukaspyrnu inn í vítateig Bjarna Ólaf, sofandaháttur var á varnarmönnum Stjörnunnar. Bjarni Ólafur nýtti sér það og skoraði með skot í fyrsta í þaknetið. Hans fimmta mark á ferlinum.

Síðasti hálftíminn var ágæt skemmtun, Garðar Jóhannsson í framlínu Stjörnunnar og Björgólfur Takefusa fengu báðir fínar tilraunir til að innbyrða sigur síns liðs í leiknum en þeim brást heldur betur bogalistin.

Garðar fékk tvívegis fín skallafæri á meðan Björgólfur fékk tvö fín færi innanteigs eftir flottan undirbúning, Ingvar Jónsson var þó vel á verði í markinu og varði í tvígang frá Takefusa.

Það var síðan í uppbótartíma sem Valsmenn vildu fá vítaspyrnu, Rúnar Már var þá kominn innfyrir vítateiginn og féll við. Varnarmaður Stjörnunnar tók virtist fara í Rúnar Már er hann tók boltann af honum. Víti hefði verið harður dómur en líklega réttur þó.

Umdeildur Guðmundur Ársæll lét leikinn halda áfram og Valsmenn voru allt annað en sáttir. Leikurinn fjaraði síðan út og 1-1 jafntefli í Garðabænum staðreynd. Líklega sanngjörn úrslit í leik sem hefði þó hæglega getað dottið hjá öðru hvoru liðinu.
Byrjunarlið:
Fjalar Þorgeirsson
Haukur Páll Sigurðsson
10. Kristinn Freyr Sigurðsson ('69)
13. Arnar Sveinn Geirsson ('46)
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
- Meðalaldur 35 ár

Varamenn:
Ásgeir Þór Magnússon (m)
23. Andri Fannar Stefánsson ('69)

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)

Gul spjöld:
James Hurst ('14)

Rauð spjöld: