Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
FH
4
1
Afturelding
Ashlee Hincks '22 1-0
Teresa Marie Rynier '28 2-0
Ashlee Hincks '32 3-0
3-1 Sigríður Þóra Birgisdóttir '72
Guðrún Höskuldsdóttir '90 4-1
22.05.2013  -  19:15
Kaplakrikavöllur
Pepsi-deild kvenna
Aðstæður: Völlurinn ágætur, smá blástur en fínasta knattspyrnuveður.
Dómari: Snorri Páll Einarsson
Áhorfendur: 130
Maður leiksins: Ashlee Hincks
Byrjunarlið:
30. Birna Berg Haraldsdóttir (m)
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
Sigrún Ella Einarsdóttir ('89)
Halla Marinósdóttir ('82)
Sveinbjörg Andrea Auðunsdóttir
2. Hugrún Elvarsdóttir ('78)
4. Guðrún Höskuldsdóttir
5. Margrét Sif Magnúsdóttir
8. Viktoría Valdís Guðrúnardóttir
15. Teresa Marie Rynier
26. Ashlee Hincks

Varamenn:
1. Nanna Rut Jónsdóttir (m)
6. Heiða Dröfn Antonsdóttir ('78)
7. Elísabet Guðmundsdóttir
14. Margrét Sveinsdóttir ('82)
17. Guðrún Björg Eggertsdóttir ('89)
17. Alda Ólafsdóttir
28. Sara Hólm Hauksdóttir

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
@antonleifs Anton Ingi Leifsson
Þægilegur FH sigur í Kaplakrika
FH vann nokkuð þægilegan 4-1 sigur á Aftureldingu fyrr í kvöld í mikilvægum leik. FH-liðið var mikið betri aðilinn og vann sanngjarnan 4-1 sigur, en fengu þó á sig ansi skrautlegt mark.

Ashlee Hincks og Teresa Rynier voru lykilmenn FH í þessum sigri í kvöldi. Ashlee var virkilega ógnandi í fremstu víglínu og skoraði tvö mörk. Teresa var á miðjunni, stjórnaði spilinu vel, varðist vel og skoraði eitt flott mark og lagði upp einnig. Aðrir leikmenn FH áttu einnig góðan dag, til að mynda Halla Marinósdóttir vann gott verk á miðjunni og svo mætti lengi telja.

Aftureldingar-liðið verður að líta í eigið barm eftir niðurstöðuna og miðað við þennan leik, að minnsta kosti fyrri hálfleikinn gætu þær lent í basli í sumar. Eftir að FH komst í 3-0, ákvað Marcia Rosa Silva að halda léttan fund á vellinum sem var kostuleg sjón. Þessi fundarhöld skiluðu þó litlu.

Afturelding skoraði skrautlegt mark á 72. mínútu, en Birna Berg, markvörður FH, greip fyrirgjöf og ætlaði að vera snögg að koma honum í leik. Það heppnaðist ekki betur en svo að boltinn fór beint aftur fyrir hana og þar var Sigríður Þóra Birgisdóttir og skoraði í autt markið.

FH er eftir leikinn með fjögur stig eftir fjóra leiki, líkt og Afturelding.
Byrjunarlið:
Halla Margrét Hinriksdóttir
Telma Hjaltalín Þrastardóttir
4. Kristrún Halla Gylfadóttir
5. Jenna R Roncarati
9. Lára Kristín Pedersen
9. Aldís Mjöll Helgadóttir
10. Sigríður Þóra Birgisdóttir
20. Guðný Lena Jónsdóttir
22. Sandra Dögg Björgvinsdóttir
26. Halldóra Þóra Birgisdóttir
27. Marcia Rosa Silva

Varamenn:
12. Megan Link (m)
6. Valdís Björg Friðriksdóttir ('85)
8. Hafdís Rún Einarsdóttir
17. Kristín Tryggvadóttir
28. Guðrún Ýr Jóhannesdóttir ('85)

Liðsstjórn:
Svandís Ösp Long
Eydís Embla Lúðvíksdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: