Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Leiknir R.
2
2
Víkingur R.
Brynjar Hlöðversson '35 1-0
1-1 Aron Elís Þrándarson (f) '51
Hjalti Már Hauksson '63
Hilmar Árni Halldórsson '65 , víti 2-1
2-2 Viktor Jónsson '91
13.06.2013  -  19:15
Leiknisvöllur
1. deildin
Dómari: Leiknir Ágústsson
Byrjunarlið:
Ólafur Hrannar Kristjánsson
Vigfús Arnar Jósepsson ('80)
Óttar Bjarni Guðmundsson
Eyjólfur Tómasson
10. Fannar Þór Arnarsson
11. Brynjar Hlöðversson
21. Hilmar Árni Halldórsson
23. Gestur Ingi Harðarson

Varamenn:
8. Sindri Björnsson
- Meðalaldur 31 ár

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Óttar Bjarni Guðmundsson ('47)
Dánjal á Lakjuni ('37)
Gestur Ingi Harðarson ('17)

Rauð spjöld:
@elvargeir Elvar Geir Magnússon
Allt á suðupunkti í Breiðholti
Leiknir og Víkingur gerðu jafntefli í toppslag í 1. deildinni í kvöld 2-2. Þegar heildarmyndin er skoðuð má stimpla þetta sem sanngjörn úrslit en leikurinn var taumlaus skemmtun og áhorfendur höfðu um ansi mikið að ræða eftir leikinn.

Heimamenn voru öflugri í fyrri hálfleiknum og komust yfir þegar Brynjar Hlöðversson skoraði af fjærstönginni eftir hornspyrnu. Eftir hálfleikinn komu gestirnir mun ákveðnari til leiks og Leiknismenn voru í vandræðum.

Aron Elís Þrándarson jafnaði með flottu skoti sem fór í stöngina og inn. Á 63. mínútu kom upp gríðarlega umdeilt atvik þegar Hjalti Már Hauksson, leikmaður Víkings, fékk sitt annað gula spjald fyrir orðaskipti við aðstoðardómara. Víkingar mótmæltu harðlega og Hjalti var gríðarlega undrandi.

Nokkrum sekúndum síðar benti dómarinn Leiknir Ágústsson á punktinn, dæmd var hrinding á Ingvar Kale sem virtist ansi strangur dómur. Víkingar voru allt annað en sáttir og mótmæltu harðlega en dómnum var ekki haggað.

Hilmar Árni Halldórsson skoraði og kom Leikni 2-1 yfir úr vítinu. Tíu gegn ellefu voru gestirnir engu síðri en heimamenn og áttu nokkrar hættulegar tilraunir. Jöfnunarmarkið kom þegar klukkan sló 90 mínútur, varamaðurinn Viktor Jónsson skoraði með hörkuskalla eftir hornspyrnu.

Í lokin voru Leiknismenn millimetrum frá því að skora sigurmarkið. Fyrst átti Ólafur Hrannar Kristjánsson stangarskot og svo skaut Fannar Þór Arnarsson í slá. Inn vildi boltinn ekki og jafntefli niðurstaðan.

Undarleg ákvörðun KSÍ
Þeir sem hafa fylgst með baráttunni í 1. deild undanfarin ár vita það að þegar Leiknir og Víkingur eigast við er erfiðleikastuðullinn fyrir dómarann með hæsta móti. Sú varð svo sannarlega raunin í kvöld. Mjög erfiður leikur að dæma sem dómaratríóið höndlaði því miður ekki.

Sú niðurröðun að setja mjög umdeildan dómara á leikinn sem aldrei hefur dæmt í efstu deild verður að teljast undarleg. Sérstaklega í ljósi þess að tveir af okkar bestu dómurum, milliríkjadómararnir Þorvaldur Árnason og Kristinn Jakobsson, voru að störfum á sama tíma í 2. deild á leikjum sem báðir voru gríðarlega ójafnir og alls ekki krefjandi.

Hvernig menn í Laugardalnum geta útskýrt þetta þætti mér mjög fróðlegt að vita.
Byrjunarlið:
4. Igor Taskovic
20. Pape Mamadou Faye ('80)
27. Tómas Guðmundsson ('25)

Varamenn:
9. Viktor Jónsson ('80)
21. Arnþór Ingi Kristinsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Óttar Steinn Magnússon ('86)
Marko Pavlov ('62)
Hjalti Már Hauksson ('55)
Igor Taskovic ('44)

Rauð spjöld:
Hjalti Már Hauksson ('63)