Þróttur R.
0
3
Grindavík

0-1
Jósef Kristinn Jósefsson
'23
0-2
Juraj Grizelj
'24
0-3
Guðfinnur Þórir Ómarsson
'88
13.06.2013 - 19:15
Valbjarnarvöllur
1.deild karla
Dómari: Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Valbjarnarvöllur
1.deild karla
Dómari: Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Byrjunarlið:
Erlingur Jack Guðmundsson
('70)
('70)
1. Ögmundur Ólafsson (m)
('34)
('34)
9. Arnþór Ari Atlason
11. Halldór Arnar Hilmisson
('83)
('83)
14. Hlynur Hauksson
15. Davíð Sigurðsson
21. Sveinbjörn Jónasson
23. Aron Bjarnason
27. Oddur Björnsson
Varamenn:
30. Trausti Sigurbjörnsson (m)
('34)
('34)
5. Haukur Hinriksson
('70)
('70)
9. Andri Björn Sigurðsson
('83)
('83)
22. Andri Gíslason
23. Aron Lloyd Green
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Sveinbjörn Jónasson ('73)
Davíð Sigurðsson ('66)
Oddur Björnsson ('62)
Karl Brynjar Björnsson ('59)
Erlingur Jack Guðmundsson ('32)
Rauð spjöld:
Grindvíkingar óstöðvandi
Tvær mínútur í fyrri hálfleik urðu Þrótturum að falli á heimavelli í kvöld þegar Grindvíkingar komu í heimsókn. Þróttarar sem hafa byrjað mótið illa tóku á móti heitasta liði 1.deildar, Grindavík á Valbjarnarvellinum.
Jósef Kristinn Jósefsson og Juraj Grizelj skoruðu keimlík mörk á sitthvorri mínútunni í fyrri hálfleik og það gerði nánast útum leikinn. Mörkin komu á 22. og 23. mínútu leiksins. Frábær skot fyrir utan teig, í fjærhornið óverjandi fyrir Ögmund Ólafsson í marki Þróttar sem fór skömmu síðar útaf vegna eymsla í nára.
Þriðja mark Grindvíkinga kom síðan undir lok leiks. Jósef Kristinn átti þá sprett upp allan völlinn, skaut að marki sem var varið út í teiginn og þar var varamaðurinn, fyrrum Þróttarinn, Guðfinnur Þórir Ómarsson réttur maður á réttum stað og lagði boltann í netið.
Það virtist sem Þróttarar léku einum færri í fyrri hálfleiknum gegn Grindvíkingum. Allar sendingar og allt spil upp völlinn gengu erfiðlega fyrir sig og greinilegt að sjálfstraustið er lítið sem ekkert í herbúðum Þróttara þessa dagana. Skiljanlega, uppskeran þrjú stig eftir sex umferðir hlýtur að setjast á sálina á mönnum.
Langar og háar sendingar einkenndu leik Þróttara, eitthvað sem þeir eru ekki vanir að sýna Kötturum og öðrum áhorfendum á leikjum sínum.
Grindvíkingar líta hinsvegar rosalega vel út þessa dagana, þrátt fyrir að vera með tvo til þrjá byrjunarliðsmenn í meiðslum, þá er það ekki að sjá á leikmannahóp liðsins. Á varamannabekknum er síðan allt leikmenn með úrvalsdeildarreynslu.
Þeir voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik en síðan sýndu þeir ekki jafn mikið í seinni hálfleik. Þróttarar voru mun meira með boltann en voru þó ekki nema einu sinni, líklegir að minnka muninn. Þá átti miðvörðurinn hávaxni Karl Brynjar Björnsson skalla í stöng eftir hornspyrnu frá Aroni Bjarnasyni.
Halldór Breiðfjörð dómari leiksins lyfti gula spjaldinu sjö sinnum í leiknum, þar af fimm sinnum í átt að Þrótturum. Halldór dæmdi leikinn ágætlega og miðað við tuðið í leikmönnum Þróttar mega þeir prísa sig sæla að hafa ekki fengið fleiri spjöld.
Grindvíkingar halda áfram á sömu braut og þeir hafa verið og virðast óstöðvandi. Þeir mæta hinsvegar taplausum Leiknismönnum á heimavelli í næstu umferðum og það verður próf sem verður erfitt að taka. Ná þeir því, eru þeir hinsvegar á góðri leið í deild þeirra bestu.

1. Óskar Pétursson (m)
Jósef Kristinn Jósefsson
3. Daníel Leó Grétarsson
5. Juraj Grizelj
8. Jóhann Helgason
9. Matthías Örn Friðriksson
10. Scott Ramsay
('70)
('70)
14. Alen Sutej
('87)
('87)
15. Denis Sytnik
('77)
('77)
20. Stefán Þór Pálsson
21. Guðmundur Egill Bergsteinsson
Varamenn:
Óli Baldur Bjarnason
('70)
('70)
7. Alex Freyr Hilmarsson
11. Hafþór Ægir Vilhjálmsson
('77)
('77)
18. Guðfinnur Þórir Ómarsson
24. Björn Berg Bryde
Liðsstjórn:
Benóný Þórhallsson
Marko Valdimar Stefánsson (AÞ)
Gul spjöld:
Jóhann Helgason ('64)
Daníel Leó Grétarsson ('18)
Rauð spjöld: