Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Víkingur Ó.
0
4
FH
0-1 Freyr Bjarnason '5
0-2 Björn Daníel Sverrisson '35
0-3 Guðmann Þórisson '52
0-4 Atli Viðar Björnsson '77
16.06.2013  -  17:00
Ólafsvíkurvöllur
Pepsi-deildin
Aðstæður: Sól og blíða, hægur andvari. Völlurinn lítur frábærlega út...allar aðstæður bjóða uppá alvöru leik!
Dómari: Örvar Sær Gíslason
Áhorfendur: 745
Maður leiksins: Dominic Furness
Byrjunarlið:
1. Einar Hjörleifsson (m)
Tomasz Luba
Brynjar Kristmundsson
Alfreð Már Hjaltalín ('78)
4. Damir Muminovic
5. Björn Pálsson ('78)
6. Arnar Már Björgvinsson ('83)
9. Guðmundur Magnússon
15. Farid Zato
20. Eldar Masic
25. Insa Bohigues Fransisco
- Meðalaldur 39 ár

Varamenn:
30. Kaspars Ikstens (m)
9. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
10. Steinar Már Ragnarsson ('78)
22. Vignir Snær Stefánsson ('83)
23. Anton Jónas Illugason

Liðsstjórn:
Fannar Hilmarsson
Kristinn Magnús Pétursson

Gul spjöld:
Damir Muminovic ('64)

Rauð spjöld:
@elvargeir Elvar Geir Magnússon
FH á cruise control á Snæfellsnesrúntinum.
Íslandsmeistarar FH gerðu góða ferð vestur á Snæfellsnes og slátruðu nýliðum Víkings 4-0 í sjöundu umferð Pepsi-deildarinnar í dag.

Segja má að leikurinn hafi allt að því klárast eftir 4 mínútur þegar Hafnfirðingar settu fyrsta markið. Segja má að það hafi komið úr óvæntri átt því að varnarhöfðinginn Freyr Bjarnason fékk endalausan tíma til að setja boltann í markið eftir hornspyrnu Ólafs Páls með steinsofandi heimamenn í kringum sig.

Heimamenn voru slegnir út af laginu við þetta og FH var á sama hátt komnir á þann stað sem þeir vildu, héldu boltanum og stjórnuðu tempóinu. Upp úr miðjum hálfleiknum hafði heimamönnum vaxið aðeins ásmegin, komnir aðeins framar á völlinn og farnir að sækja inn í teiginn.

Í einni slíkri ferð vildu þeir fá vítaspyrnu eftir mikið klafs í teignum, en dómaratríóið var ekki sammála og stuttu síðar kom annað mark hvítsvartra. Það var ódýrara en það fyrsta, hreinsun út úr teignum endaði í fótum Björns Daníels sem skaut að markinu, boltinn virtist á leið framhjá þegar Farid Zato teygði fótinn í veg fyrir hann. Það endaði með ósköpum því stefnubreytingin varð til þess að Einar markvörður átti ekki möguleika á að verja.

Þannig var staðan í hálfleik. Heimamenn komu nokkuð grimmir út eftir hlé og pressuðu FH ofar á vellinum en á 52.mínútu kláraðist leikurinn. Annað horn, nú endaði bolti Sam Tillen á kolli Guðmanns sem skallaði að marki, Damir reyndi að bjarga á línunni en Einar aðstoðardómari var viss í sinni sök um að boltinn hafi farið yfir og mark því dæmt.

40 mínútur eftir og útlitið slæmt fyrir bláklædda Víkinga. Það sem eftir lifði leiks má lýsa í stuttu máli því að Víkingar lokuðu til baka og vörðust vel að mestu leyti og reyndu að beita skyndisóknum á meðan að FH rúlluðu leikinn á cruise control að mestu með gríðaröflugt miðjutríóið í stýrimannssætinu og Furness þar fremstan í flokki. Þeir voru ákveðnir í að halda hreinu en sóttu heldur ekki af miklum ákafa. Þeir bættu þó fjórða markinu við þegar Ólafur Páll fór illa með vörn Víkings og sendi boltann á fjærstöng þar sem Atli Viðar stýrði honum í markið.

Brynjar Kristmundsson komst næst því að skora fyrir heimamenn en reynsla hins fertuga unglambs Daða Lár kom í veg fyrir það þegar hann varði í one-on-one stöðu.

Þegar flautað var til leiksloka var öruggur sigur í höfn þó vissulega hann væri heldur stór miðað við gang leiksins, FH fljúga aftur af stað í toppbaráttuna en erfiðara hlutskipti bíður Víkinganna.

Þeir hafa nú ekki skorað í deildinni í 440 mínútur og eru með 1 stig eftir fyrstu 7 leikina.

Það var vissulega stór biti að reikna með miklu gegn ríkjandi Íslandsmeisturum en það hlýtur að vera ákveðið umhugsunarefni að eitthvað virðist vanta upp á baráttuanda, vilja og grimmd.

Víkingsliðið hefur verið þekkt fyrir þessi atriði síðustu ár og það þarf nú að grafa í kistuna eftir þessum eiginleikum til að kveikja gleðineista í Pepsiævintýrinu á Snæfellsnesi!
Byrjunarlið:
Ólafur Páll Snorrason ('80)
Daði Lárusson
3. Guðjón Árni Antoníusson
4. Sam Tillen ('75)
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
11. Atli Guðnason
17. Atli Viðar Björnsson ('82)
21. Guðmann Þórisson
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson
- Meðalaldur 36 ár

Varamenn:
4. Pétur Viðarsson ('75)
7. Ingimundur Níels Óskarsson ('80)
13. Kristján Gauti Emilsson
14. Albert Brynjar Ingason ('82)
16. Jón Ragnar Jónsson

Liðsstjórn:
Emil Pálsson

Gul spjöld:
Brynjar Ásgeir Guðmundsson ('88)

Rauð spjöld: