Fram
4
1
Þór

Hólmbert Aron Friðjónsson
'21
1-0
Steven Lennon
'30
2-0
2-1
Mark Tubæk
'48
Hólmbert Aron Friðjónsson
'50
3-1
Hólmbert Aron Friðjónsson
'79
4-1
16.06.2013 - 17:00
Laugardalsvöllur
Pepsi-deildin
Aðstæður: Rigningarúði og logn
Dómari: Valgeir Valgeirsson
Áhorfendur: 642
Maður leiksins: Hólmbert Aron Friðjónsson (Fram)

Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
Halldór Hermann Jónsson
11. Almarr Ormarsson
('63)
('63)
13. Viktor Bjarki Arnarsson
('66)
('66)
28. Bjarni Hólm Aðalsteinsson
Varamenn:
1. Denis Cardaklija (m)
8. Aron Þórður Albertsson
('82)
('82)
9. Haukur Baldvinsson
('66)
('66)
14. Halldór Arnarsson
23. Benedikt Októ Bjarnason
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Steven Lennon ('85)
Haukur Baldvinsson ('78)
Halldór Hermann Jónsson ('66)
Bjarni Hólm Aðalsteinsson ('35)
Rauð spjöld:
Hólmbert í ham
Hólmbert Aron Friðjónsson stal senunni í fyrsta heimaleik Ríkharðs Daðasonar sem þjálfari Fram í dag. Ríkharður var oft öflugur í fremstu víglínu Fram á sínum tíma og Hólmbert fór að fordæmi hans í dag með því að skora þrennu í 4-1 sigri á Þór.
Fyrsta markið var það fallegasta en Hólmbert skoraði þá með þrumuskoti í slána og inn eftir að hafa fengið boltann í hendina skömmu áður.
Markið stóð og eftir að Steven Lennon bætti við öðru marki með skalla í slána og inn skömmu síðar var nánast aldrei spurning hvoru meginn sigurinn myndi enda.
Þórsarar minnkuðu muninn í upphafi síðari hálfleiks en Hólmbert bætti þá um betur með tveimur mörkum og innsiglaði um leið 4-1 sigur Framara sem eru búinn að vinna fyrstu tvo leikina síðan Ríkharður tók við stjórnvölunum.
Fram liðið leit mjög vel út í leiknum í dag. Hólmbert var síógnandi í fremstu víglínu og það sama má segja um Steven Lennon á vinstri kantinum. Á miðjunni var Sam Hewson frábær og öll holning á Fram liðinu var góð.
Þórsarar þurfa aftur á móti að fara að skoða varnarleik sinn af alvöru eftir að hafa fengið á sig níu mörk í síðustu tveimur leikjum og samtals tuttugu mörk í fyrstu sjö umferðunum.
Varnarlínan var mjög óörugg í dag og Srdjan Rajkovic, sem kom inn í markð fyrir Josh Wicks, gat lítið gert í mörkunum. Chuck Chijindu var nokkuð sprækur frammi og Þórsarar áttu ágætis sóknir en ef varnarleikurinn batnar ekki fljótlega þá er ljóst að sumarið verður mjög erfitt hjá Akureyringum.

Orri Freyr Hjaltalín
6. Ármann Pétur Ævarsson
9. Jóhann Helgi Hannesson (f)
13. Ingi Freyr Hilmarsson
14. Hlynur Atli Magnússon
15. Janez Vrenko
20. Jóhann Þórhallsson
Varamenn:
Andri Hjörvar Albertsson
5. Atli Jens Albertsson
21. Kristján Páll Hannesson
Liðsstjórn:
Sveinn Elías Jónsson (Þ)
Gul spjöld:
Jóhann Þórhallsson ('53)
Mark Tubæk ('51)
Rauð spjöld: