Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
KR
4
2
ÍA
0-1 Andri Adolphsson '27
Gunnar Þór Gunnarsson '60 1-1
Kjartan Henry Finnbogason '64 2-1
Gary Martin '69 3-1
Óskar Örn Hauksson '81 4-1
4-2 Jón Vilhelm Ákason '90
16.06.2013  -  19:15
KR-völlur
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Ágætar, völlurinn fínn og smá bleyta
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Áhorfendur: 1615
Maður leiksins: Óskar Örn Hauksson
Byrjunarlið:
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
3. Haukur Heiðar Hauksson
6. Gunnar Þór Gunnarsson
8. Jónas Guðni Sævarsson ('57)
11. Emil Atlason ('61)
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson
- Meðalaldur 35 ár

Varamenn:
8. Þorsteinn Már Ragnarsson ('74)
9. Kjartan Henry Finnbogason ('61)
18. Aron Bjarki Jósepsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Guðmundur Reynir Gunnarsson ('76)

Rauð spjöld:
@vpeiriksson Valur Páll Eiríksson
Skagamenn allir aðrir en það dugði ekki til
KR-ingar tóku á móti Skagamönnum í Vesturbænum í kvöld. Eftir slæma byrjun var þetta tilvalinn leikur fyrir Skagamenn að ná upp stemmingu í sitt lið.

Það gekk eftir, Skagamenn komu af miklum krafti inn í leikinn og byrjuðu leikinn betur. KR-ingar unnu sig hins vegar hægt og rólega inn í leikinn og stjórnuðu án þess þó að skapa sér færi. Skagamenn beittu gegn því skyndisóknum og litu vel út.

ÍA fengu ávöxt erfiðis síns á 27. mínútu þegar að Garðar Gunnlaugsson fékk boltann í fætur á miðjulínunni. Grétar Sigfinnur elti hann út, Garðar sendi góða sendingu upp í hornið sem Theodore Furness náði eftir kapphlaup við Gunnar Þór miðvörð KR. Hann gaf fyrir þar sem Andri Adolphsson var á undan Hauki Heiðari bakverði í boltann og klöngraði honum inn framhjá Hannesi í markinu. KR vörnin tætt í sundur með einfaldri sókn.

KR-ingar héldu áfram að stýra leiknum en færanýting þeirra ekki til að hrópa húrra fyrir. Liðin héldu til búningsherbergja í stöðunni 0-1.

Í síðari hálfleik munaði minnstu að Garðar Gunnlaugsson kæmi ÍA í 2-0 á 53. mínútu en frábær varnarleikur Gunnars Þórs kom í veg fyrir það. Sjö mínútum síðar var Gunnar aftur á ferðinni en hann jafnaði þá leikinn með lipru skoti eftir klaps í teignum í kjölfar hornspyrnu Atla Sigurjónssonar.

Í þann mund er KR jafnaði gerði Rúnar Kristinsson þá breytingu að láta Kjartan Henry Finnbogason inná fyrir Emil Atlason. Það skilaði sér heldur betur því rúmlega tveimur mínútum síðar skoraði Kjartan Henry sitt fyrsta mark í sumar og það með sinni fyrstu snertingu í leiknum. Það var eftir ágætis sókn KR og góða fyrirgjöf Óskars Arnar.

Ekki nema fimm mínútum síðar átti Óskar Örn aðra góða fyrirgjör á Gary Martin sem lúrði á fjær og setti boltann inn. Keimlíkt marki Kjartans. Óskar komst þá loks sjálfur á blað 10 daufum mínútum síðar eftir sendingu frá Atla Sigurjónssyni. Enn daufari voru síðustu 10 mínúturnar eftir það en þá kom mark frá ÍA sem þruma úr heiðskíru lofti. Líklega fallegasta mark leiksins frá Jóni Vilhelm Ákasyni sem kom inn í lið ÍA í dag eftir meiðsli.

4-2 sigur KR niðurstaðan en margt jákvætt sem Skagamenn geta tekið með sér í næsta leik gegn Blikum í bikarnum á fimmtudaginn. KR-ingar mæta þá Leikni á Ghettoground í Breiðholtinu. KR á svo Víking Ó. heima næstu helgi og Skagamenn fá þá Keflavík í heimsókn.
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Jóhannes Karl Guðjónsson
Arnar Már Guðjónsson
10. Jón Vilhelm Ákason
17. Andri Adolphsson
20. Gylfi Veigar Gylfason
32. Garðar Gunnlaugsson ('60)

Varamenn:
19. Eggert Kári Karlsson ('60)
27. Darren Lough

Liðsstjórn:
Páll Gísli Jónsson
Aron Ýmir Pétursson (AÞ)
Dean Martin (AÞ)

Gul spjöld:
Arnar Már Guðjónsson ('80)

Rauð spjöld: