Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Stjarnan
1
0
Keflavík
Ólafur Karl Finsen '29 1-0
16.06.2013  -  20:00
Samsung-völlur
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Logn, skýjað og þurrt.
Dómari: Kristinn Jakobsson
Áhorfendur: 793
Maður leiksins: Daníel Laxdal
Byrjunarlið:
4. Jóhann Laxdal
7. Atli Jóhannsson ('82)
8. Halldór Orri Björnsson
9. Daníel Laxdal
17. Ólafur Karl Finsen
27. Garðar Jóhannsson ('84)

Varamenn:
13. Arnar Darri Pétursson (m)
14. Hörður Árnason ('84)
21. Snorri Páll Blöndal

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Halldór Orri Björnsson ('88)
Veigar Páll Gunnarsson ('58)

Rauð spjöld:
@arnardadi Arnar Daði Arnarsson
Stjarnan hélt hreinu og skoraði eitt
Knattspyrna snýst ekki um sanngirni. Knattspyrna snýst um að skora fleiri mörk en hitt liðin og það sýndi sig svo sannarlega í Garðabænum í kvöld.

Þar skoraði Ólafur Karl Finsen eina mark leiksins og dugði það til sigurs gegn Keflavík sem hafa verið í vandræðum í sumar og vandræðin halda áfram.

Magnús Þórir Matthíasson tók út leikbann í liði Keflavíkur eftir að hafa verið vikið af velli í síðustu umferð, þá var Jóhann Birnir og framherjinn Marjan Jugovic á bekknum.

Kennie Chopart var ekki í leikmannahóp Stjörnunnar í kvöld, en hann fékk heilahristing í síðustu umferð og er enn að jafna sig.

Eina mark leiksins leit dagsins ljós á 29.mínútu, Halldór Kristinn missti boltann klaufalega rétt fyrir utan teig og Stjarnan nýtti sér það vel, Veigar Páll gaf stutta sendingu á Ólaf Karl sem gerði vel, stillti boltanum fyrir framan sig og lagði boltann í fjærhornið.

Bæði lið fengu nokkur ágætisfæri en engin afgerandi. Hörður Sveinsson hefði mátt gera betur þegar Grétar Atli gaf góða fyrigjöf fyrir en Hörður hitti ekki boltann þegar hann ætlaði að skalla að marki í góðri stöðu.

Undir lok fyrri hálfleiks var mikill kraftur kominn í Keflavík en þeir náðu ekki að halda sama krafti í byrjun seinni hálfleik. Seinni hálfleikurinn var mun rólegri en sá fyrri.

Besta færi seinni hálfleiks fékk Halldór Orri en David Preece kom vel á móti honum og varði vel. Gestirnir þurftu aðeins meiri neista fram á við ætluðum þeir sér að jafna metin í leiknum. Sá neisti kom ekki og þar við sat, þriðji 1-0 sigur Stjörnunnar á tímabilinu staðreynd.

Öll varnarlína Stjörnunnar með Præst fyrir framan sig var virkilega stöðug og gaf fá færi á sér. Ólafur Karl Finsen átti einnig góðan leik í liði Stjörnunnar og vann mikla varnarvinnu eitthvað sem hann er kannski ekki vanur.

Garðar Jóhannsson og Veigar Páll fundu sig hinsvegar ekki í leiknum og voru báðir teknir af velli í seinni hálfleik.

Hjá Keflavík áttu miðjumennirnir fínan leik, þeir Andri Fannar, Sigurbergur og Arnór Ingvi. Frans Elvarsson var virkilega duglegur í liði Keflavíkur í fyrri hálfleik en það sá á honum í seinni hálfleik og var hann tekinn af velli um miðjan seinni hálfleikinn. Keflvíkingar geta tekið margt jákvætt úr þessum leik en þeir þurfa meiri þyngd í sóknarleik sinn ætli þeir sér að vinna knattspyrnuleiki og fækka varnarmistökunum, sem kostuðu þá sigurinn í dag.
Byrjunarlið:
Haraldur Freyr Guðmundsson
Sigurbergur Elísson
10. Hörður Sveinsson
11. Bojan Stefán Ljubicic ('64)
25. Frans Elvarsson ('86)
- Meðalaldur 40 ár

Varamenn:
12. Bergsteinn Magnússon (m)

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson

Gul spjöld:
Benis Krasniqi ('49)

Rauð spjöld: