Víkingur Ó.
5
6
Fram

0-1
Almarr Ormarsson
'29
Fannar Hilmarsson
'70
1-1
1-2
Steven Lennon
'120
, víti
Damir Muminovic
'120
, misnotað víti
1-2
1-3
Hólmbert Aron Friðjónsson
'120
Brynjar Kristmundsson
'120
, víti
2-3
2-3
Haukur Baldvinsson
'120
, misnotað víti
Guðmundur Magnússon
'120
, víti
3-3
3-4
Jordan Halsman
'120
, víti
Emir Dokara
'120
, víti
4-4
4-5
Bjarni Hólm Aðalsteinsson
'120
, víti
Insa Bohigues Fransisco
'120
, víti
5-5
5-6
Alan Lowing
'120
, víti
Alfreð Már Hjaltalín
'120
, misnotað víti
5-6
19.06.2013 - 19:15
Ólafsvíkurvöllur
Borgunarbikarinn
Aðstæður: Sól og brakandi blíða. Völlurinn frábær!
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Áhorfendur: 350

Byrjunarlið:
1. Einar Hjörleifsson (m)
Tomasz Luba
Fannar Hilmarsson
('76)
('76)
4. Damir Muminovic
6. Arnar Már Björgvinsson
('83)
('83)
9. Guðmundur Magnússon
10. Steinar Már Ragnarsson
('69)
('69)
13. Emir Dokara
15. Farid Zato
20. Eldar Masic
25. Insa Bohigues Fransisco
- Meðalaldur 39 ár
Varamenn:
30. Kaspars Ikstens (m)
Alfreð Már Hjaltalín
('76)
('76)
5. Björn Pálsson
('69)
('69)
22. Vignir Snær Stefánsson
23. Anton Jónas Illugason
Liðsstjórn:
Brynjar Kristmundsson (Þ)
Kristinn Magnús Pétursson
Gul spjöld:
Steinar Már Ragnarsson ('40)
Rauð spjöld:
Frammarar hárfínt áfram í 8 liða úrslit.
Frammarar eru komnir í 8 liða úrslit eftir sigur á Víkingum í Ólafsvík í kvöld.
Til þess að knýja fram úrslit þurfti vítakeppni eftir fínasta fótboltaleik.
Fyrri hálfleikurinn var þó frekar tíðindalítill og fá færi litu dagsins ljós. Í raun bara eitt og upp úr því kom mark. Á 29.mínútu vann Hólmbert boltann úti á hægri kanti upp úr klafsi þar sem heimamenn vildu fá brot, sendi boltann á Lennon sem lék framhjá varnarmanni og stakk boltanum í gegn á Almarr Ormarsson sem kláraði færið vel, við litla gleði heimamanna innan vallar sem utan.
Í upphafi síðari hálfleiks fengu gestirnir þrjú góð sóknarfæri til að skora en náðu ekki að nýta þau, það besta féll í skaut Hólmberts sem skallaði framhjá úr sannkölluðum deddara.
Almarr fór útaf meiddur og heimamenn gerðu tvær skiptingar á svipuðum tíma. Hvort það var lykillinn að breyttum leik er erfitt að segja en á 70 mínútu jöfnuðu heimamenn.
Boltinn datt á Tomasz Luba sem stakk honum innfyrir vörnina á Fannar Hilmarsson sem kláraði færið mjög vel, vippaði boltanum yfir Ögmund í markinu. Fyrsta mark Víkings í töluverðan tíma.
Og nú breyttist leikurinn. Heimamenn fengu sjálfstraust og sóttu nokkuð stíft að marki gestanna. Næst því að skora komst Guðmundur Magnússon sem átti flottan skalla eftir horn en besti maður Frammara í kvöld, markvörðurinn Ögmundur, sló boltann glæsilega yfir markið.
Framlengingin var bragðdauf, mikill hiti í kvöld kallaði á svita, blóð og tár og liðin áttu erfitt með að skapa sér færi. Þó var mark Frammara dæmt af vegna rangstöðu á 107.mínútu en á 118.mínútu fóru heimamenn ansi nálægt því að sigra þegar Farid Zato, sem var bestur bláklæddra, átti svakalegt skot af 30 metrum sem fór í utanverða stöngina á marki Frammara. Hárfínt!
Vítakeppnin var ansi spennandi. Ögmundur varði víti frá Damir frábærlega og Einar varði frá Hauki Baldvinssyni. Aðrar spyrnur í fyrstu fimm enduðu í markinu en þegar kom að bráðabananum kláraðist leikurinn.
Alan Lowing skoraði úr sjötta víti gestanna og þá var komið að Alfreð Hjaltalín sem átti frábæra innkomu í leikinn og hafði verið mjög ógnandi. Fast víti hans fór framhjá markinu. Hárfínt og þar með lauk viðureigninni með sigri gestanna sem hafa nú slegið út tvö Pepsideildarlið á útivelli í Borgunarbikarnum og ætla sér langt.
Heimamenn fara hundsvekktir með tap úr leiknum en geta verið sáttir við margt í kvöld, þeirra besta frammistaða í langan tíma í sumar og eitthvað að byggja á fyrir átökin framundan í deildinni.

1. Ögmundur Kristinsson (m)
Halldór Hermann Jónsson
11. Almarr Ormarsson
('64)
('64)
14. Halldór Arnarsson
28. Bjarni Hólm Aðalsteinsson
Varamenn:
1. Denis Cardaklija (m)
8. Aron Þórður Albertsson
9. Haukur Baldvinsson
('59)
('59)
13. Viktor Bjarki Arnarsson
('64)
('64)
23. Benedikt Októ Bjarnason
Liðsstjórn:
Daði Guðmundsson
Gul spjöld:
Jordan Halsman ('100)
Rauð spjöld: