Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Breiðablik
3
2
Keflavík
Ellert Hreinsson '11 1-0
1-1 Elías Már Ómarsson '18
1-2 Bojan Stefán Ljubicic '25 , víti
Árni Vilhjálmsson '38 2-2
Guðjón Pétur Lýðsson '87 3-2
28.09.2013  -  14:00
Kópavogsvöllur
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Framúrskarandi miðað við árstíma.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Áhorfendur: 543
Byrjunarlið:
2. Gísli Páll Helgason ('45)
4. Damir Muminovic
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Árni Vilhjálmsson
18. Finnur Orri Margeirsson
19. Kristinn Jónsson
22. Ellert Hreinsson ('72)
30. Andri Rafn Yeoman
45. Guðjón Pétur Lýðsson

Varamenn:
24. Arnór Bjarki Hafsteinsson (m)
16. Ernir Bjarnason ('45)
17. Elvar Páll Sigurðsson
27. Tómas Óli Garðarsson ('46)
77. Þórður Steinar Hreiðarsson

Liðsstjórn:
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Ernir Bjarnason ('71)

Rauð spjöld:
@jedissson Jóhann Óli Eiðsson
Sigur Breiðabliks í pressulausum lokaleik
Lokaumferð Pepsi-deildarinnar fór fram í dag og á meðal þeirra leikja sem var á dagskrá var leikur Breiðabliks og Keflavíkur. Í raun og veru var ekkert undir, Blikar höfðu tryggt sér fjórða sætið og Keflavík gat endað í sjöunda til tíunda sæti. Leikurinn bar eilítinn keim af þessu pressuleysi enda sóttu liðin á báða bóga þó Blikar hafi haft yfirhöndina lengst af.

Í upphafi sóttu þeir vel og mikið upp hægri kantinn þar sem Gísli Páll Helgason fór mikinn. Það var því alls ekki gegn gangi leiksins að Ellert Hreinsson skoraði fyrsta mark leiksins. Markið kom eftir fyrirgjöf frá hægri sem var skölluð frá, Renee Troost kom boltanum aftur fyrir og Ellert skoraði laglegt mark.

En eftir að hafa byrjað vel var Gísli Páll heillum horfinn. Sendingar hans voru slæmar auk þess að hann var oft út úr stöðu sem gaf Keflvíkingum færi til að sækja enda áður en hálftími var liðinn voru þeir komnir yfir. Fyrst skoraði Elías Már Ómarsson er hann fylgdi eftir skoti Bojans Ljubicic. Bojan skoraði svo sjálfur af vítapunktinum skömmu síðar eftir að brotið var á Magnúsi Þóri Magnússyni. Vítið var ódýrt og virtist vera augljós dýfa.

Eftir hálftíma leik vildu gestirnir fá rautt spjald á Elfar Freyr Helgason er hann og Hörður Sveinsson voru á harðaspretti eftir boltanum. Elfar virtist toga í Hörð og hindra hann en Þóroddur Hjaltalín mat það svo að Hörður skildi fá gult spjald. Skömmu síðar jafnaði Árni Vilhjálmsson leikinn eftir góðan undirbúning Guðjóns Péturs Lýðssonar.

Í hálfleik gerði Ólafur Kristjánsson tvöfalda skiptingu er hann tók Gísla Pál og Elfar Frey útaf og setti Viggó Kristjánsson og Tómas Óla Garðarsson inn. Skiptingin virkaði líkt og vítamínssprauta fyrir Blika og munar þá mest um Tómas Óla sem var útum allt og var óheppinn að skora ekki. Einnig kom hann í veg fyrir mark er hann varði á línu frá Elíasi Má Ómarssyni

Guðjón Pétur Lýðsson, sem átti annars mjög slakan spyrnudag, tókst að koma einum bolta í þverslánna úr aukaspyrnu og skoraði síðan sigurmarkið úr vítaspyrnu. Tómas Óli var á góðum spretti og féll við, reyndi að standa upp og var sparkaður niður og víti dæmt.

Úrslitin þýddu að Breiðablik endaði í fjórða sæti líkt og áður var sagt en Keflvíkingar luku leik í níunda sæti.
Byrjunarlið:
Ómar Jóhannsson
10. Hörður Sveinsson
11. Bojan Stefán Ljubicic ('90)
20. Magnús Þórir Matthíasson
25. Frans Elvarsson (f)

Varamenn:
12. Bergsteinn Magnússon (m)
2. Anton Freyr Hauksson
8. Ari Steinn Guðmundsson ('90)
29. Fannar Orri Sævarsson ('90)

Liðsstjórn:
Aron Elís Árnason

Gul spjöld:
Halldór Kristinn Halldórsson ('42)
Magnús Þórir Matthíasson ('36)
Hörður Sveinsson ('33)
Daníel Gylfason ('31)

Rauð spjöld: