Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
FH
2
0
ÍA
Heiða Dröfn Antonsdóttir '43 1-0
Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir '90 2-0
20.05.2014  -  19:15
Kaplakrikavöllur
Pepsi-deild kvenna 2014
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:
1. Guðrún Anna Atladóttir (m)
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
Sveinbjörg Andrea Auðunsdóttir
2. Hugrún Elvarsdóttir
5. Margrét Sif Magnúsdóttir ('46)
6. Heiða Dröfn Antonsdóttir ('90)
8. Viktoría Valdís Guðrúnardóttir
9. Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir
13. Ana Victoria Cate
16. Ásgerður Arna Pálsdóttir
17. Guðrún Björg Eggertsdóttir ('65)

Varamenn:
17. Alda Ólafsdóttir
24. Hildur Egilsdóttir ('90)

Liðsstjórn:
Halla Marinósdóttir
Hafdís Erla Gunnarsdóttir
Elva Björk Ástþórsdóttir
Maria Selma Haseta
Erna Guðrún Magnúsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Góða kvöldið! Hér verður bein textalýsing frá leik FH og ÍA í 2. umferð Pepsi-deildar kvenna.
Fyrir leik
Byrjunarliðin hjá báðum liðum eru komin og hægt er að sjá þau hér til hliðar.
Fyrir leik
FH byrjaði mótið vel með 3-1 sigri á Aftureldingu á meðan Skaginn tapaði 1-0 fyrir Fylki.
Fyrir leik
ÍA gerir tvær breytingar á liði sínu frá því í síðasta leik. Áslaug Ragna Ákadóttir og Heiðrún Sara Guðmundsdóttir koma inn í liðið á meðan Bryndís Rún Þórólfsdóttir og Unnur Ýr Haraldsdóttir fara á bekkinn.
Fyrir leik
FH gerir einnig breytingu á sínu liði frá síðasta leik. Ana Victoria Cate kemur inn fyrir Höllu Marinós.
1. mín
Skaginn byrjar með boltann.
2. mín
Skaginn byrjar af krafti og átti góða sókn upp hægri kantinn.
3. mín
FH í smá vandræðum með Skagann sem pressa hátt. ÍA á hornspyrnu.
4. mín
Ekkert varð úr hornspyrnunni en ÍA sækir þó af miklum krafti. Guðrún Karítas komst í gott færi og var nálægt því að skora.
7. mín
Guðrún Björg með skot fyrir FH sem fer þó hátt yfir.
8. mín
FH fær hornspyrnu.
8. mín
Ekkert varð úr hornspyrnu FH og endar boltinn í höndunum á Höllu markmanni ÍA.
10. mín
Skaginn í vandræðum og FH sækja grimmt eins og er.
16. mín
Smá miðjumoð í gangi og liðin sækja á víxl.
18. mín
FH óheppnar að skora ekki þarna. Hugrún og Guðrún áttu gott spil upp hægri kantinn og Hanna óheppin að setja hann ekki.
19. mín
Margrét Sif með skot rétt framhjá fyrir FH.
23. mín
FH er með öll völd á vellinum.
25. mín
ÍA aðeins að gefa í og sækja nú af krafti.
27. mín
ÍA átti góða sókn og Guðrún Karítas hefði mátt gera betur þarna.
27. mín
Hiti í leiknum og Þórður þjálfari FH ekki sáttur með dómgæsluna.
33. mín
Liðin sækja til skiptis og mikið jafnræði inn á vellinum.
38. mín
Skaginn óheppnar að skora ekki. Kom gott innkast inn í teig og markmaður FH missti af boltanum. En inn fór boltinn ekki.
39. mín
Markmaður FH með góða markvörslu þegar Guðrún Karítas var komin ein í gegn.
42. mín
Skaginn átti góða sókn sem endaði með skoti langt yfir markið. Maren Leósdóttir hefði mátt gera betur þarna. Virtist hafa meiri tíma í teignum.
43. mín MARK!
Heiða Dröfn Antonsdóttir (FH)
Maaaark !! Heiða Dröfn kemur FH yfir.. þetta leit út eins og fyrirgjöf en markmaður ÍA misreiknar boltann og slær hann hálfpartinn inn.
Arnar Daði Arnarsson
44. mín
Jóhanna Steinþóra með hörku skot fyrir FH sem fór rétt framhjá.
45. mín
Dómarinn búinn að flauta, 1-0 fyrir FH í fyrri hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn.
46. mín
Inn:Halla Marinósdóttir (FH) Út:Margrét Sif Magnúsdóttir (FH)
46. mín
Inn:Unnur Ýr Haraldsdóttir (ÍA) Út:Áslaug Ragna Ákadóttir (ÍA)
46. mín
Bæði lið gerðu skiptingu í hálfleik.
48. mín
Skipta þarf um bolta í leiknum - dómarinn var ekki sáttur með þennan sem var í notkun.
51. mín
FH fær hornspyrnu
51. mín
Slök spyrna sem endar fyrir aftan markið.
54. mín
Seinni hálfleikur fer rólega af stað
54. mín
Skaginn komst í góða sókn. Ingunn bakvörður fékk boltann upp kantinn en fyrirgjöfin ekki nóg og góð og markmaður FH greip boltann.
55. mín
FH fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Heiðrún Sara hjá ÍA fær gult spjald eftir að boltinn fór í hendina á henni fyrir utan teig.
55. mín Gult spjald: Heiðrún Sara Guðmundsdóttir (ÍA)
56. mín
Heiða dröfn tekur aukaspyrnuna og sparkar boltanum í varnarvegg ÍA.
58. mín
FH fær hornspyrnu
59. mín
Sigmundína var óheppin að skora ekki fyrir FH og FH fær aðra hornspyrnu sem ekkert varð úr.
60. mín
Unnur Ýr fær sendinu frá vinstri kant en nær ekki að gera næginlega vel inn í teig.
61. mín
Skaginn í hættulegi færi sem endar í hornspyrnu.
62. mín
hættuleg hornspyrna og boltinn nálægt því að fara inn hjá ÍA
62. mín
Skaginn fær aðra hornspyrnu og var hún ekki nóg og góð og boltinn endar hjá FH sem fara hratt upp völlinn.
64. mín
Guðrún Karítas átti glæsilegan sprett upp völlinn og fíflaði varnarmenn FH. Sendir hann fyrir á Eyrúnu sem setti boltann yfir markið. Óskiljanlegt að þær hafi ekki náð að skora úr þessu færi.
65. mín
Inn:Erna Guðrún Magnúsdóttir (FH) Út:Guðrún Björg Eggertsdóttir (FH)
66. mín
Hart barist inn á vellinum og Skaginn líklegri eins og er
67. mín
Inn:Bryndís Rún Þórólfsdóttir (ÍA) Út:Heiðrún Sara Guðmundsdóttir (ÍA)
70. mín
FH aðeins að bæta í og Jóhanna Steinþóra hitti ekki boltann í góðu færi
72. mín
Halla Marinósdóttir í góðu færi en náði ekki að hitta á rammann.
73. mín
Jóhanna Steinþóra með flotta móttöku á boltann og var óheppin að skora ekki. Halla í marki ÍA átti fína vörslu þarna!
80. mín
Jóhanna Steinþóra með skot yfir mark ÍA
82. mín
Halla Marinósdóttir með góða fyrirgjöf inn í teig en laus skalli Heiðu fór framhjá marki ÍA
83. mín
FH nálægt því að skora en markmaður ÍA rétt nær í boltann eftir klafs í teignum
84. mín
Allt að gerast inn á vellinum, Gréta Stefánsdóttir braut á Jóhönnu Steinþóru og FH fær aukaspyrnu.
84. mín
Góð aukaspyrna sem Erna Guðrún Magnúsdóttir rétt skallar framhjá
86. mín
Lítið eftir og ÍA þarf að bæta í ef þær ætla að ná að jafna leikinn
90. mín
MAAARK !!!!
90. mín MARK!
Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir (FH)
Stoðsending: Halla Marinósdóttir
Glææææsileg sending fyrir hjá Höllu Marinós og Jóhanna Steinþóra skallar hann inn!
90. mín
Inn:Hildur Egilsdóttir (FH) Út:Heiða Dröfn Antonsdóttir (FH)
91. mín
Skaginn fær hornspyrnu
91. mín
Ekkert varð úr hornspyrnunni
Leik lokið!
Dómarinn er búinn að flauta, FH sigrar 2-0.
Byrjunarlið:
1. Halla Margrét Hinriksdóttir (m)
Eyrún Eiðsdóttir
Heiðrún Sara Guðmundsdóttir ('67)
6. Ingunn Dögg Eiríksdóttir
8. Gréta Stefánsdóttir
9. Maren Leósdóttir
10. Áslaug Ragna Ákadóttir ('46)
13. Birta Stefánsdóttir
13. Valdís Marselía Þórðardóttir
15. Laken Duchar Clark
23. Guðrún Karítas Sigurðardóttir

Varamenn:
5. Aníta Sól Ágústsdóttir
7. Elínborg Llorens Þórðardóttir
10. Bryndís Rún Þórólfsdóttir ('67)
16. Veronica Líf Þórðardóttir
17. Unnur Ýr Haraldsdóttir ('46)

Liðsstjórn:
Steindóra Sigríður Steinsdóttir
Aldís Ylfa Heimisdóttir

Gul spjöld:
Heiðrún Sara Guðmundsdóttir ('55)

Rauð spjöld: