Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Fylkir
1
3
Stjarnan
0-1 Arnar Már Björgvinsson '35
0-2 Rolf Toft '37
Ásgeir Örn Arnþórsson '45 1-2
1-3 Niclas Vemmelund '81
20.07.2014  -  20:00
Fylkisvöllur
Pepsi-deild karla 2014
Dómari: Kristinn Jakobsson
Byrjunarlið:
32. Björn Hákon Sveinsson (m)
Kristján Valdimarsson
Oddur Ingi Guðmundsson
2. Ásgeir Eyþórsson
6. Andrew Sousa ('64)
7. Gunnar Örn Jónsson ('46)
10. Andrés Már Jóhannesson
16. Tómas Þorsteinsson
20. Stefán Ragnar Guðlaugsson
24. Elís Rafn Björnsson
49. Ásgeir Örn Arnþórsson ('80)

Varamenn:
9. Hákon Ingi Jónsson
11. Kjartan Ágúst Breiðdal ('64)
14. Albert Brynjar Ingason ('46)
25. Agnar Bragi Magnússon ('80)

Liðsstjórn:
Bjarni Þórður Halldórsson
Daði Ólafsson
Ragnar Bragi Sveinsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Fylkis og Stjörnunnar.
Fyrir leik
Fylkir lagði Fram í síðustu umferð með tveimur mörkum gegn engu á meðan Stjarnan gerði 2-2 jafntefli við FH í toppslag.
Fyrir leik
Stjarnan er að fara í gegnum erfitt prógram þessa dagana en liðið var að spila gegn Motherwell í vikunni í undankeppni Evrópudeildarinnar þar sem liðið gerði 2-2 jafntefli.
Fyrir leik
Öllum vantar lykilorðið á netið hér í Árbæ. Personal Hotspot er ágætis uppfinning á svona tímum.
Fyrir leik
Við bíðum eftir skýrslu frá KSÍ en byrjunarliðin koma innan skamms.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn en hér til hliðar má sjá þau.
Fyrir leik
Jóhann Laxdal er á bekknum hjá Stjörnunni en hann var að koma heim frá Noregi þar sem hann lék með Ull/Kisa.
Fyrir leik
Albert Brynjar Ingason er þá á bekknu hjá Fylki en hann kom frá FH á dögunum.
Fyrir leik
Rolf Toft sem Stjarnan fékk í sínar raðir á dögunum fer inn í byrjunarliðið.
Fyrir leik
Kristinn Jakobsson er á flautunni í dag.
Fyrir leik
Ólafur Karl Finsen og Veigar Páll GUnnarsson eru ekki í leikmannahópnum hjá Stjörnunni eins og sjá má en þeir verða hvíldir fyrir leikinn gegn Motherwell.
Fyrir leik
Það verður því áhugavert að sjá hvernig Stjarnan tæklar það að vera án tveggja lykilmanna.
Fyrir leik
Björn Hákon heldur sæti sínu í markinu hjá Fylkismönnum. Hann átti flottan leik gegn Fram í síðustu umferð.
Fyrir leik
Leikurinn fer að hefjast. Nokkrar mínútur í þetta.
1. mín
Leikurinn er kominn af stað!
9. mín
Þarna munaði litlu. Fylkismenn voru komnir í álitlega sókn upp úr engu en Ingvar Jóns fór í smá Neuer og hreinsaði.
12. mín
ATLI FREYR!! Stjörnumenn sækja á Fylkismenn og Rauschenberg keyrði vinstra megin í teignum. Eftir darraðadans í teignum fékk Atli Jó boltann og hamraði hann á hausinn á Atla Frey sem stangaði boltann á markið en Björn Hákon gerði vel og greip boltann.
15. mín
STÖNGIN!!!! Gunnar Örn Jónsson með fyrirgjöf frá hægri á Andrés sem kemur boltanum í stöngina. Þarna munaði heldur betur litlu að heimamenn kæmust yfir!!

23. mín
Ási er að sjálfsögðu í appelsínugulu peysunni sinni sem hann skartaði í sigrinum á Fram. Falleg peysa frá Ísafirði.
32. mín
Stjörnumenn fá hornspyrnu. Vildi að ég gæti sagt ykkur frekari tíðindi en það.
35. mín MARK!
Arnar Már Björgvinsson (Stjarnan)
ARNAR MÁR !!!! Þetta var virkilega furðulegt. Björn Hákon hoppaði upp í boltann en sýndist Rolf Toft brjóta á honum ef ég fer rétt með mál. Björn missir boltann úr höndunum og Arnar Már nýtir það og leggur boltann í netið!!
37. mín MARK!
Rolf Toft (Stjarnan)
Stoðsending: Arnar Már Björgvinsson
ROLF TOFT!!!!! Þetta er fljótt að gerast. Arnar Már stingur sér inn fyrir og er kominn á móti Birni ásamt Rolf. Arnar lagði boltann til hliðar á Rolf sem skoraði örugglega!

45. mín MARK!
Ásgeir Örn Arnþórsson (Fylkir)
ÁSGEIR!!! Mikill atgangur í teignum sem endar með því að boltinn dettur fyrir lappirnar á honum og hann setti hann með hægri í vinstra hornið, laglega gert.
45. mín
Hálfleikur: 1-2
Stjörnumenn gengu á lagið á tveggja mínútna kafla þar sem Arnar Már skoraði og lagði upp. Fylkismenn náðu hinsvegar mikilvægu marki undir lok fyrri hálfleiks sem heldur þeim inni í leiknum.
46. mín
Inn:Albert Brynjar Ingason (Fylkir) Út:Gunnar Örn Jónsson (Fylkir)
Albert að koma inná í sínum fyrsta leik fyrir Fylki á þessu tímabili.
46. mín
Leikurinn er kominn af stað!
47. mín
ALBERT!! Hann fær boltann þarna inni í teignum og lætur vaða en sýndist Ingvar verja hann í horn.
48. mín
Ásgeir Örn! Hann fékk boltann frá Andrew Sousa og lét svo vaða rétt fyrir utan teig en Ingvar ver.
50. mín
ODDUR INGI!! Hann fékk góða sendingu rétt fyrir utan teig og lét vaða í fyrstu snertingu og boltinn fór í samskeytin. Þetta hefði sennilega verið eitt af mörkum ársins hefði hann dottið inn!
53. mín
Fylkismenn verið töluvert betri í byrjun síðari hálfleiks.
60. mín
Inn:Jóhann Laxdal (Stjarnan) Út:Atli Freyr Ottesen Pálsson (Stjarnan)
Laxdal er mættur!
61. mín
Þarna munaði litlu. Pablo Punyed fékk boltann fyrir utan teig og reyndi að stinga honum þarna inná Toft að mér sýndist en boltinn var of fastur.
64. mín
Inn:Kjartan Ágúst Breiðdal (Fylkir) Út:Andrew Sousa (Fylkir)
64. mín
Albert Brynjar var kominn í algjöran dead-ara en hann nær ekki að klára færið! Gott úthlaup hjá Ingvari.
66. mín
Andrés Már með hörkuskot á markið en Ingvar heldur boltanum örugglega.
67. mín
846 áhorfendur hafa lagt leið sína hér á Fylkisvöll ekki 510 eins og við sögðum frá áðan. Teljarinn í einhverju rugli.
71. mín
Oddur er með byssuna vel hlaðna og er að hleypa vel af henni. Hann átti hér þrumuskot sem fór rétt yfir markið!
75. mín
ÁSGEIR!!! Hann var kominn einn í gegn á móti Ingvari og lyftir boltanum hátt yfir hann en boltinn dettur vinstra megin við markið. Það virðist liggja mark í loftinu hjá heimamönnum!
80. mín
Inn:Þorri Geir Rúnarsson (Stjarnan) Út:Pablo Punyed (Stjarnan)
80. mín
Inn:Agnar Bragi Magnússon (Fylkir) Út:Ásgeir Örn Arnþórsson (Fylkir)
80. mín
Inn:Snorri Páll Blöndal (Stjarnan) Út:Atli Jóhannsson (Stjarnan)
81. mín MARK!
Niclas Vemmelund (Stjarnan)
VEMMELUND!!! Aukaspyrna frá hægri sem Vemmelund stangar í netið. Björn Hákon komst í boltann en það var ekki nóg!
87. mín
Fylkismenn í góðu færi. Skall rétt yfir markið eftir fyrirgjöf. Þetta virðist þó vera að fjara hægt og rólega út.
90. mín
Þremur mínútum er bætt við venjulegan leiktíma.
Leik lokið!
1-3 sigur Stjörnunnar staðreynd. Þetta er fínt veganesti fyrir seinni leikinn gegn Motherwell og þetta gerði liðið án Veigars og Óla Kalla. Viðtöl og umfjöllun koma innan skamms.
Byrjunarlið:
7. Atli Jóhannsson ('80)
9. Daníel Laxdal
11. Arnar Már Björgvinsson
14. Hörður Árnason
20. Atli Freyr Ottesen Pálsson ('60)

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
3. Aron Rúnarsson Heiðdal
6. Þorri Geir Rúnarsson ('80)
18. Jón Arnar Barðdal
21. Snorri Páll Blöndal ('80)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: