Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Stjarnan
1
0
Breiðablik
Harpa Þorsteinsdóttir '42 , víti 1-0
22.07.2014  -  19:15
Samsung völlurinn
Pepsi-deild kvenna 2014
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Byrjunarlið:
1. Sandra Sigurðardóttir (m)
Harpa Þorsteinsdóttir
4. Glódís Perla Viggósdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (f)
9. Kristrún Kristjánsdóttir
9. Sigrún Ella Einarsdóttir ('74)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
17. Rúna Sif Stefánsdóttir ('74)
19. Anna Björk Kristjánsdóttir
20. Marta Carissimi ('85)

Varamenn:
1. Berglind Hrund Jónasdóttir
5. Írunn Þorbjörg Aradóttir ('74)
11. Elva Friðjónsdóttir ('74)
18. Heiðrún Ósk Reynisdóttir
24. Bryndís Björnsdóttir ('85)
27. Danka Podovac

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Kristrún Kristjánsdóttir ('78)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir ('55)
Lára Kristín Pedersen ('15)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá toppslag Stjörnunnar og Breiðabliks í Pepsi-deild kvenna.

Breiðablik vann fyrri leik liðanna í 1. umferðinni í maí 1-0 en leikið var í Fífunni þá.

Það er eini tapleikur Stjörnunnar í deildinni síðan sumari 2012.

Stjarnan er á toppnum með 24 stig en Breiðablik í 3. sæti með 19 stig og einu stigi frá Fylki í 2. sætinu.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hér er aðeins farið að bæta í vind og einstaka dropar falla niður.
Fyrir leik
Leikmenn eru að fara inn í klefa eftir upphitun. Styttist í einn mikilvægasta leik sumarsins í baráttunni um titilinn hjá þessum liðum.
Fyrir leik
Gló­dís Perla Viggós­dótt­ir, Ásgerður Stef­an­ía Baldursdótt­ir og Harpa Þor­steins­dótt­ir voru allar valdar í lið fyrri umferðar hjá KSÍ og Harpa Þorsteins valin leikmaður fyrri umferðar.

Í liði fyrri umferðinnar hjá Blikunum voru Sonný Lára Þrá­ins­dótt­ir og Rakel Hönnu­dótt­ir.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Blikar byrja.
4. mín
Leikurinn fer rólega af stað. Leikmenn að koma sér inn í leikinn og meta stöðuna.
5. mín
Fyrsta skotið í leiknum á Fanndís ágætis tilraun en skotið aðeins yfir markið.
8. mín
Liðin eru vel skipulögð, engnir sénsar teknir eins og er.
10. mín
María Rós með mistök í vörninni og Harpa endar með boltann inn í teig. En varnarmenn og Sonný Lára koma til bjargar.
12. mín
Stjarnan fær horn. Rúna Sif spyrnir á nærstöng. Blikar ná að hreinsa í innkast.
14. mín
Fjolla Shala með fínt skot að markinu en fer rétt framhjá. Góð tilraun.
15. mín Gult spjald: Lára Kristín Pedersen (Stjarnan)
17. mín
Fanndís tekur aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Skýtur beint á markið en Sandra þarf að hafa lítið fyrir að verja skotið hennar.
19. mín
Glódís nær að pota í boltann inn í teig eftir hornspyrnu og boltinn fer rétt yfir.
20. mín Gult spjald: Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik)
21. mín
Carissimi með lausan skalla yfir markið. Engin hætta á ferð.
23. mín
Stjarnan á ógnandi sókn sem þær kláruðu með skoti.
25. mín
Fjolla með tæklingu rétt fyrir utan teig og brýtur á leikmanni Breiðabliks. Adda tekur aukaspyrnuna. Tók hana stutta og sendi á Hörpu sem skaut að marki en frmhjá var það.
29. mín
Falleg sókn hjá Stjörnunni. Spiluðu sig í gegnum vörn Blikanna en aðstoðardómarinn dæmdi rangstöðu.
35. mín
Glódís með aukapsyrnu og sendi háann inn í teig. Harpa nær til hans en afgreiðslan er og máttlaus.
39. mín
Telma Hjaltalín fiskar horn eftir efnilega sókn hjá Blikunum. Hornið ver Sandra vel og boltinn útaf og horn númer tvö sem Blikarnir fá en þá er brotið á Söndru inn í teig.
42. mín Mark úr víti!
Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
MMMAARRKKK!!!

Hildur Sif tæklaði Hörpu inn í teig og víti dæmt. Ekkert spjald fer á loft.
45. mín
Hálfleikur.

Leikurinn er búinn að vera jafn og spennandi. Liðin hafa skipst á að sækja en ekkert alvöru dauðafæri myndast úr þeim sóknum.

Varnarleikur liðanna hefur verið mjög góður fyrir utan vítið sem Harpa fékk.
46. mín
Leikurinn er hafinn.
47. mín
Aukaspyrna sem Blikar hreinsa strax í burtu.
48. mín
Rakel Hönnu með gott skot að markinu en rétt framhjá.
51. mín
Breiðablik búið að eiga tvær sóknir á stuttum tíma en loka touch-ið hefur vantað upp á.
51. mín
Stórhættulegur skalli frá Glódísi eftir hornspyrnu.
52. mín
Annar stórhættulegur skalli, þessi kom frá Hörpu.
53. mín
Fanndís sækir hornspyrnu. Tekur sjálf en engin inn í teig nær til hans og Stjarnan hefur sókn.
54. mín
Rúna Sif með góða aukaspyrnu og sendi botann með jörðinni. Mikil hætta skapaðist en Blikar náðu svo að hreinsa.
55. mín Gult spjald: Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Stjarnan)
56. mín
Fanndís sækir aukaspyrnu. Tekur sjálf, boltinn fór yfir Söndur í marknu en Stjörnustelpur hreinsa síðan.
59. mín
Breiðablik búið að sækja meira fyrstu mínúturnar í seinni hálfleik.
62. mín
Hornspyrna sem Aldís Kara sækir. En Stjarnan fer upp í skyndisókn sem ekkert fæst úr.
63. mín
Inn:Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (Breiðablik) Út:Aldís Kara Lúðvíksdóttir (Breiðablik)
64. mín
Þvílík innkoma hjá Andreu Rán sem á fast skot í slána. Þarna skall hurð nærri hælum hjá Söndru í markinu.
68. mín
Fanndís með ágætis skot sem Sandra átt í örlitlum erfiðleikum með að halda.
70. mín
Inn:Ingibjörg Sigurðardóttir (Breiðablik) Út:Jóna Kristín Hauksdóttir (Breiðablik)
74. mín
Inn:Elva Friðjónsdóttir (Stjarnan) Út:Sigrún Ella Einarsdóttir (Stjarnan)
74. mín
Inn:Írunn Þorbjörg Aradóttir (Stjarnan) Út:Rúna Sif Stefánsdóttir (Stjarnan)
77. mín
Aukaspyrna sem Guðrún Arnardóttir tekur. Spyrnan fer í vegginn.
78. mín Gult spjald: Kristrún Kristjánsdóttir (Stjarnan)
82. mín
Inn:Ragna Björg Einarsdóttir (Breiðablik) Út:Fjolla Shala (Breiðablik)
84. mín
Góð fyrirgjöf frá Fanndísi sem Sandra tekur en missir svo boltann frá sér. En hún var snar í snúningum og náði honum fljótt aftur.
85. mín
Inn:Bryndís Björnsdóttir (Stjarnan) Út:Marta Carissimi (Stjarnan)
88. mín
Stjarnan komin í 5 manna vörn.
Leik lokið!
Stjarnan sigrar hér í miklum baráttuleik í Garðabænum.
Byrjunarlið:
Fjolla Shala ('82)
Sonný Lára Þráinsdóttir
Telma Hjaltalín Þrastardóttir
3. Hlín Gunnlaugsdóttir
4. María Rós Arngrímsdóttir
6. Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('63)
7. Hildur Sif Hauksdóttir
10. Jóna Kristín Hauksdóttir ('70)
22. Rakel Hönnudóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir
28. Guðrún Arnardóttir

Varamenn:
55. Halla Margrét Hinriksdóttir (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
25. Ingibjörg Sigurðardóttir ('70)
30. Petrea Björt Sævarsdóttir

Liðsstjórn:
Ragna Björg Einarsdóttir
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Ásta Eir Árnadóttir

Gul spjöld:
Fanndís Friðriksdóttir ('20)

Rauð spjöld: