Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
ÍA
0
2
Haukar
0-1 Hilmar Trausti Arnarsson '50
0-2 Hilmar Rafn Emilsson '90
13.09.2014  -  13:00
Norðurálsvöllurinn
1. deild karla 2014
Aðstæður: Völlurinn góður en töluverður vindur
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 300
Maður leiksins: Sigmar Ingi Sigurðarson
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Ármann Smári Björnsson
Arnór Snær Guðmundsson ('88)
Ingimar Elí Hlynsson
8. Hallur Flosason
10. Jón Vilhelm Ákason ('20)
15. Teitur Pétursson ('70)
17. Andri Adolphsson
27. Darren Lough
32. Garðar Gunnlaugsson

Varamenn:
2. Þórður Þorsteinn Þórðarson
3. Sindri Snæfells Kristinsson
19. Eggert Kári Karlsson ('20)
20. Gylfi Veigar Gylfason ('70)

Liðsstjórn:
Páll Gísli Jónsson

Gul spjöld:
Hallur Flosason ('66)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur og velkomnir í beina textalýsingu frá leik ÍA og Hauka í næstsíðustu umferð í 1. deild karla.
Fyrir leik
Þetta er mikilvægur leikur fyrir heimamenn. Skagamenn eru í öðru sæti deildarinnar og í harðri baráttu um að ná efsta sætinu af Leikni en Haukar spila bara upp á heiðurinn í áttunda sæti deildarinnar.
Fyrir leik
Liðin hafa mæst í 10 skipti í opinberum leikjum á vegum KSÍ og hefur ÍA unnið sex leiki, Haukar fjóra en leik hefur aldrei lokið með jafntefli. Markatalan er einnig ÍA í hag eða 16 mörk gegn 13 mörkum Hauka.
Fyrir leik
Dómari leiksins er Þorvaldur Árnason. Honum til aðstoðar eru Gylfi Már Sigurðsson og Tómas Orri Hreinsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Einar K. Guðmundsson.
Fyrir leik
Vallaraðstæður virðast eiga eftir að verða nokkuð erfiðar í dag. Norðurálsvöllur lítur út fyrir að vera í góðu ástandi. Það er skýjað og töluverður vindur þvert á völlinn.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús en þau má sjá hér til hliðar.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Skagamenn byrja með boltann.
2. mín
Matthías Guðmundsson með skalla að marki ÍA en Árni Snær Ólafsson ver boltann yfir slánna.
6. mín
Jón Vilhelm Ákason með hörkuskot að marki Hauka en boltinn smellur í þverslánni.
7. mín
Hilmar Rafn Emilsson með skot en boltinn fer nokkuð framhjá marki ÍA.
12. mín
Kristján Ómar Björnsson með skot en hátt yfir mark ÍA.
14. mín
Andri Adolphsson með góða rispu upp hægri kantinn. Hann kemur boltanum á Garðar Gunnlaugsson sem leikur á varnarmann og nær föstu skoti. Sigmar Ingi Sigurðarson ver vel í marki Hauka.
20. mín
Inn:Eggert Kári Karlsson (ÍA) Út:Jón Vilhelm Ákason (ÍA)
31. mín
Darren Lough með skot að marki Hauka en Sigmar Ingi ver auðveldlega.
38. mín
Fyrri hálfleikur er búinn að vera frekar tilþrifalítill. Mikið um langar sendingar fram völlinn sem engu skila.
40. mín Gult spjald: Úlfar Hrafn Pálsson (Haukar)
45. mín
Úlfar Hrafn Pálsson með skalla að marki ÍA eftir hornspyrnu en boltinn fór framhjá stönginni.
45. mín
Fyrri hálfleik er lokið. Staðan er 0-0 í frekar döprum leik.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn. Haukar byrja með boltann.
46. mín
Skagamenn byrja af krafti. Hörkusókn og Andri Adolphsson á skot sem Sigmar Ingi ver í horn.
48. mín
Skagamenn í stórsókn. Garðar Gunnlaugsson fer með boltann upp vallarhelming Hauka og nær föstu skoti sem Sigmar Ingi ver út í vítateig. Þar nær Hallur Flosason boltanum og á skot sem varnarmaður Hauka bjargar á marklínu.
50. mín MARK!
Hilmar Trausti Arnarsson (Haukar)
Hilmar Trausti Arnarsson leikur sig í gegnum flata vörn ÍA og á ekki í vandræðum með að renna boltanum í markið, framhjá Árna Snæ.
53. mín
Andri Adolphsson á skot að marki Hauka sem Sigmar Ingi ver vel í markinu.
59. mín
Hallur Flosason með skot að marki Hauka en boltinn fer framhjá.
66. mín Gult spjald: Hallur Flosason (ÍA)
70. mín
Inn:Aron Jóhannsson (Haukar) Út:Matthías Guðmundsson (Haukar)
70. mín
Inn:Gylfi Veigar Gylfason (ÍA) Út:Teitur Pétursson (ÍA)
79. mín Gult spjald: Hafþór Þrastarson (Haukar)
80. mín
Darren Lough með skot úr aukaspyrnu sem Sigmar Ingi ver auðveldlega í marki Hauka.
83. mín
Inn:Birgir Magnús Birgisson (Haukar) Út:Úlfar Hrafn Pálsson (Haukar)
84. mín
Garðar Gunnlaugsson með skot að marki Hauka en boltinn fór yfir markið.
88. mín
Inn:Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban (ÍA) Út:Arnór Snær Guðmundsson (ÍA)
88. mín
Garðar Gunnlaugsson með gott skot en Sigmar Ingi ver vel í marki Hauka.
89. mín
Brynjar Benediktsson með skot að marki ÍA en Árni Snær Ólafsson varði vel í markinu.
90. mín MARK!
Hilmar Rafn Emilsson (Haukar)
Hilmar Rafn Emilsson leikur á varnarmann ÍA og á skot sem fer í stöngina og inn.
90. mín
Leiknum er lokið. Haukar vinna góðan 0-2 sigur.
Byrjunarlið:
1. Sigmar Ingi Sigurðarson (m)
Kristján Ómar Björnsson
Hilmar Rafn Emilsson
Hilmar Trausti Arnarsson
Ásgeir Þór Ingólfsson
Hafþór Þrastarson
4. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
6. Úlfar Hrafn Pálsson ('83)
11. Matthías Guðmundsson ('70)
19. Brynjar Benediktsson
21. Gísli Eyjólfsson

Varamenn:
16. Birgir Magnús Birgisson ('83)
17. Daníel Snorri Guðlaugsson
18. Andri Gíslason
22. Aron Jóhannsson ('70)
28. Haukur Björnsson

Liðsstjórn:
Árni Ásbjarnarson

Gul spjöld:
Hafþór Þrastarson ('79)
Úlfar Hrafn Pálsson ('40)

Rauð spjöld: