Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Þór
0
2
FH
0-1 Kassim Doumbia '61
0-2 Kassim Doumbia '64
14.09.2014  -  17:00
Þórsvöllur
Pepsi-deild karla 2014
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Byrjunarlið:
Sveinn Elías Jónsson
Orri Freyr Hjaltalín
Orri Sigurjónsson
Sandor Matus
4. Shawn Robert Nicklaw
5. Atli Jens Albertsson
6. Ármann Pétur Ævarsson
8. Jónas Björgvin Sigurbergsson ('82)
10. Sigurður Marinó Kristjánsson
13. Ingi Freyr Hilmarsson
23. Chukwudi Chijindu

Varamenn:
1. Hjörtur Geir Heimisson
3. Aron Ingi Hlynsson
11. Kristinn Þór Björnsson ('82)
12. Þórður Birgisson
16. Kristinn Þór Rósbergsson
20. Jóhann Þórhallsson
21. Bergvin Jóhannsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Orri Sigurjónsson ('74)
Ármann Pétur Ævarsson ('70)
Sigurður Marinó Kristjánsson ('54)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og FH í 19. umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn fer fram á Þórsvelli.
Fyrir leik
Gengi liðanna í sumar gæti ekki hafa verið ólíkara. Heimamenn sitja í neðsta sætinu með einungis 9 stig á meðan gestirnir eru í toppsætinu með 41 stig, tveimur stigum á undan Stjörnunni sem eru í 2. sætinu.
Fyrir leik
Fyrri leik liðanna í sumar lauk með 1-1 jafntefli í Kaplakrika. Kristján Gauti Emilsson kom FH-ingum yfir áður en Jóhann Helgi Hannesson jafnaði fyrir Þórsara.
Fyrir leik
Tapi Þórsarar í dag eru þeir fallnir. Eins og staðan er núna eru 9 stig upp í öruggt sæti og 12 stig í pottinum. Útlitið er því gríðarlega svart í Þorpinu.
Fyrir leik
Garðar Örn Hinriksson, rauði baróninn dæmir leikinn í dag. Honum til aðstoðar verða svo Gunnar Sverrir Gunnarsson og Haukur Erlingsson.
Fyrir leik
Leikirnir sem Þór eiga eftir í sumar, fyrir utan þennan leik, eru Valur á útivelli, Breiðablik heima og KR úti, ekki beint auðveldasta prógramið. FH-ingar eiga KR heima, Fram heima, Val úti og Stjörnuna heima.
Fyrir leik
Þórsarar gera tvær breytingar á liði sínu frá tapi liðsins gegn Víkingi í síðustu umferð. Ingi Freyr og Sigurður Marinó koma inn fyrir Kristin Þór Björnsson og Jóhann Helga Hannesson
Fyrir leik
Mikið sunnanrok er í þorpinu í dag. Vindurinn liggur yfir endilangan völlinn svo ljóst er að hann mun hafa mikil áhrif.
Fyrir leik
Heimir Guðjónsson stillir upp nákvæmlega sama liði og síðast. Meira að segja bekkurinn er sá sami og síðast.
Fyrir leik
Smá töf verður á leiknum þar sem að stuðningsmaður FH féll niður úr stúkunni og lenti á steyptum kanti þar fyrir neðan. Lögreglan og sjúkraflutningamenn eru að hlúa að manninum.
Fyrir leik
Maðurinn er fluttur burt með sjúkrabíl. Rétt á eftir ganga leikmenn inn á völlinn
1. mín
Leikurinn er hafinn!
4. mín
Þórsarar byrja með rokið í bakið.
10. mín
Fyrsta tilraun leiksins. Chuck með skot utan teigs en það fór framhjá.
14. mín
Davíð Þór með fullorðins tæklingu, náði þó boltanum en Jónas liggur eftir
16. mín
Sveinn Elías í fínu færi. Setti boltann framhjá.
26. mín
Flott sókn. Chuck með langan bolta út á Svein, hann með fyrirgjöf en Jón Jónsson er á undan Jónasi í boltann og bjargar í horn.
28. mín
Flott sókn hjá FH sem endar með því að Óli Palli á fína fyrirgjöf en Atli Jens hreinsar á síðustu stundu.
33. mín
Sveinn Elías með skalla framhjá eftir fína sendingu frá Inga Frey.
36. mín
Shawn Nicklaw með hörkuskot af 30 metrunum. Mjög fast skot sem fór rétt framhjá.
44. mín
Chuck liggur eftir, Pétur Viðarsson steig á hann.
45. mín
Steven Lennon sparkar hér í Atla Jens eftir að flautað var. Virtist vera viljandi og Lennon heppinn að sleppa.
45. mín
Hálfleikur!
45. mín
Seinni hálfleikurinn er kominn af stað
48. mín
FH-ingar eru núna með rokið í bakið. Mjölnismenn eru mættir í stúkuna en þeir létu ekki sjá sig í fyrri hálfleik.
54. mín Gult spjald: Sigurður Marinó Kristjánsson (Þór )
Fyrir að brjóta á Óla Palla
60. mín
Lennon komst í fínt færi en Sandor Matus sá við honum.
61. mín MARK!
Kassim Doumbia (FH)
Stoðsending: Ólafur Páll Snorrason
Óli með horn og "The Dream" mætti á nærstöngina á stangaði boltann í netið. Enginn varnarmaður elti hann.
63. mín
Með þessu marki er Kassim að senda Þórsarana niður, svo lengi sem staðan breytist ekki.
64. mín MARK!
Kassim Doumbia (FH)
Stoðsending: Ólafur Páll Snorrason
Sama uppskrift, Óli Palli á Kassim. Nú var það aukaspyrna og Kassim mætti á fjærstöng í þetta skiptið.
70. mín Gult spjald: Ármann Pétur Ævarsson (Þór )
Fyrir viðskipti við Kassim
70. mín Gult spjald: Kassim Doumbia (FH)
Fær gult fyrir sinn þátt
71. mín
Inn:Emil Pálsson (FH) Út:Ingimundur Níels Óskarsson (FH)
71. mín
Inn:Sam Hewson (FH) Út:Hólmar Örn Rúnarsson (FH)
72. mín Gult spjald: Jón Ragnar Jónsson (FH)
73. mín
Sigurður Marinó með rosalega aukaspyrnu sem small í þverslánni. Á móti vindi meira að segja!
74. mín Gult spjald: Orri Sigurjónsson (Þór )
Fyrir brot á Kassim
82. mín
Inn:Kristinn Þór Björnsson (Þór ) Út:Jónas Björgvin Sigurbergsson (Þór )
85. mín
Inn:Guðjón Árni Antoníusson (FH) Út:Atli Guðnason (FH)
87. mín
Það eina sem er í gangi núna er að það bætir í vindinn, leikurinn frekar dapur
92. mín Gult spjald: Davíð Þór Viðarsson (FH)
Loksins loksins myndi einhver segja
Leik lokið!
Umfjöllun og viðtöl á leiðinni.
Byrjunarlið:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
Ólafur Páll Snorrason
Davíð Þór Viðarsson
4. Pétur Viðarsson
7. Ingimundur Níels Óskarsson ('71)
7. Steven Lennon
11. Atli Guðnason ('85)
16. Jón Ragnar Jónsson
20. Kassim Doumbia
25. Hólmar Örn Rúnarsson ('71)
26. Jonathan Hendrickx

Varamenn:
12. Kristján Finnbogi Finnbogason (m)
3. Guðjón Árni Antoníusson ('85)
6. Sam Hewson ('71)
8. Emil Pálsson ('71)
17. Atli Viðar Björnsson
21. Böðvar Böðvarsson
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Davíð Þór Viðarsson ('92)
Jón Ragnar Jónsson ('72)
Kassim Doumbia ('70)

Rauð spjöld: