Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Víkingur R.
0
4
Valur
0-1 Haukur Ásberg Hilmarsson '6
0-2 Ragnar Þór Gunnarsson '21
0-3 Gunnar Gunnarsson '25
0-4 Kristinn Freyr Sigurðsson '63
15.01.2015  -  19:00
Egilshöll
Reykjavíkurmót karla B-riðill
Dómari: Örvar Sær Gíslason
Byrjunarlið:
Stefán Þór Pálsson ('83)
9. Haukur Baldvinsson ('65)
10. Rolf Glavind Toft ('46)
12. Halldór Smári Sigurðsson ('46)
14. Atli Fannar Jónsson ('54)
15. Andri Rúnar Bjarnason
23. Finnur Ólafsson
24. Davíð Örn Atlason ('71)
26. Ásgeir Frank Ásgeirsson

Varamenn:
3. Ívar Örn Jónsson ('71)
7. Erlingur Agnarsson ('46)
11. Dofri Snorrason ('46)
12. Kristófer Karl Jensson ('46)
28. Eiríkur Stefánsson ('65)
29. Agnar Darri Sverrisson ('54)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valsmenn vinna öruggan sigur í leik sem aldrei var spennandi. Valsmenn með markatöluna 13-1 eftir tvo leiki í Reykjavíkurmótinu.
85. mín
Inn:Darri Sigþórsson (Valur) Út:Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
83. mín
Inn:Ómar Friðriksson (Víkingur R.) Út:Stefán Þór Pálsson (Víkingur R.)
82. mín Gult spjald: Haukur Ásberg Hilmarsson (Valur)
Fyrir leikaraskap.
71. mín
Inn:Ívar Örn Jónsson (Víkingur R.) Út:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Agnar Darri fékk skallafæri hér rétt áðan en yfir fór boltinn.
70. mín
Inn:Marteinn Högni Elíasson (Valur) Út:Þórður Steinar Hreiðarsson (Valur)
Þórður fer meiddur af velli.
65. mín
Inn:Eiríkur Stefánsson (Víkingur R.) Út:Haukur Baldvinsson (Víkingur R.)
63. mín MARK!
Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
Ragnar Þór Gunnarsson með sendingu á Kristinn sem kláraði í netið smekklega. Valsmenn innsigla sigurinn ef það var einhver spurning...
54. mín
Inn:Agnar Darri Sverrisson (Víkingur R.) Út:Atli Fannar Jónsson (Víkingur R.)
53. mín
Páll Magnús Pálsson í skallafæri hjá Val en hitti ekki rammann, erfið fyrirgjöf við að eiga.
48. mín
Haukur Ásberg nálægt því að bæta við öðru marki sínu en Kristófer Karl sem kom inn í hálfleik í mark Víkings bjargaði.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
46. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.)
46. mín
Inn:Dofri Snorrason (Víkingur R.) Út:Rolf Glavind Toft (Víkingur R.)
46. mín
Inn:Kristófer Karl Jensson (Víkingur R.) Út:Sigurður Hrannar Björnsson (Víkingur R.)
46. mín
Inn:Páll Magnús Pálsson (Valur) Út:Kristinn Ingi Halldórsson (Valur)
45. mín
Hálfleikur - Víkingar byrjuðu leikinn herfilega en það var jafnræði í lokakafla fyrri hálfleiksins. Það vantar leikmenn í bæði lið en fleiri stóra hlekki í Víkingsliðið og það sést.
38. mín
Einar Karl Ingvarsson með skot af löngu færi fyrir Val en framhjá. Fín tilraun.
36. mín
Kale að verja frá Rolf Toft úr dauðafæri. Bæsta færi Víkinga hingað til.
31. mín
Valsmenn bjarga á línu. Það er smá líf í Víkingunum, pínulítið.
28. mín
Varnarleikur Víkinga verið ákaflega dapur það sem af er og lítið hefur skapast sóknarlega. Valsmenn hafa nýtt sín færi og eru nánast búnir að gera út um þennan leik strax.
25. mín MARK!
Gunnar Gunnarsson (Valur)
Valsmenn ætla að klára þennan leik auðveldlega. Sigurður Hrannar í marki Víkinga misreiknaði boltann eftir aukaspyrnu Sigurðar Egils og Gunnar Gunnarsson skoraði auðveldlega.
21. mín MARK!
Ragnar Þór Gunnarsson (Valur)
Valsmenn skora annað mark! Fyrirgjöf frá vinstri sem Ragnar á ekki í erfiðleikum með að setja í netið, klárar í fyrsta óverjandi fyrir Sigurð Hrannar í markinu.
6. mín MARK!
Haukur Ásberg Hilmarsson (Valur)
MARK!! Valsmenn taka forystuna! Sigurður Egill Lárusson með góða sendingu á Hauk Ásberg sem tók boltann laglega niður áður en hann setti hann laglega í hornið. Haukur er fæddur 1995 og kom við sögu í fimm leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra.
4. mín
Atli Fannar Jónsson með skot naumlega framhjá. Haukur Baldvinsson átti góðan sprett og boltinn hraukk á Atla sem var rétt fyrir utan teig og átti hörkuskot framhjá.
1. mín
Leikurinn er hafinn - Valsmenn í bláum varabúningum í kvöld.
Fyrir leik
Það verður ekki síður hressandi að fylgjast með boðvöngum kvöldsins. Ólafur Jóhannesson og Sigurbjörn Hreiðarsson Valsmegin og Ólafur Þórðarson og Milos Milojevic Víkingsmegin. Allt líflegir menn!
Fyrir leik
Í byrjunarliði Víkings má sjá ný andlit. Andri Rúnar Bjarnason sem kom frá BÍ/Bolungarvík, Atli Fannar Jónsson sem kom frá ÍBV, Haukur Baldvinsson sem kom frá Fram, Stefán Þór Pálsson sem spilaði með KA í fyrra og Finnur Ólafsson sem kom frá Fylki byrja allir. Einnig Daninn Rold Toft sem spilaði með Stjörnunni í fyrra.
Fyrir leik
Ingvar Kale og Anton Ari Einarsson hafa verið að hálfleikjaskipta leikjunum hingað til en Kale byrjar í kvöld.
Fyrir leik
Ingvar Kale, markvörður Víkinga í fyrra, færði sig um set í vetur þegar ekki náðust samningar milli hans og uppeldisfélagsins og samdi hann við Val. Víkingar sömdu við 22 ára danskan markvörð í hans stað, Thomas Nielsen, en hann hefur ekki fengið leikheimild fyrir Reykjavíkurmótið.
Fyrir leik
Velkomin til leiks í Egilshöll þar sem Víkingur og Valur eigast við í Reykjavíkurmótinu klukkan 19:00. Þetta er fyrsti leikur Víkinga í mótinu en Valsmenn burstuðu ÍR 9-1 í fyrstu umferð.
Byrjunarlið:
1. Ingvar Þór Kale (m)
4. Einar Karl Ingvarsson
7. Haukur Páll Sigurðsson ('85)
8. Kristinn Ingi Halldórsson ('46)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
14. Haukur Ásberg Hilmarsson
14. Gunnar Gunnarsson
15. Þórður Steinar Hreiðarsson ('70)
23. Andri Fannar Stefánsson

Varamenn:
33. Anton Ari Einarsson (m)
6. Daði Bergsson
13. Bjarki Steinar Björnsson
19. Marteinn Högni Elíasson ('70)
22. Darri Sigþórsson ('85)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Haukur Ásberg Hilmarsson ('82)

Rauð spjöld: