Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Mjólkurbikar karla
Augnablik
LL 1
2
Stjarnan
Mjólkurbikar karla
Þróttur R.
LL 1
2
HK
Mjólkurbikar karla
Valur
LL 3
0
FH
Mjólkurbikar karla
LL 2
9
KR
Léttir
0
6
ÍBV
0-1 Dominic Khori Adams '24
0-2 Jonathan Glenn '36
0-3 Dominic Khori Adams '71
0-4 Richard Sæþór Sigurðsson '87
0-5 Richard Sæþór Sigurðsson '88
0-6 Dominic Khori Adams '91
03.06.2015  -  17:30
Hertz völlurinn
Borgunarbikar karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:
12. Gísli Þór Einarsson (m)
6. Haukur Már Ólafsson
7. Stefán Karl Snorrason
9. Hafliði Hafliðason
10. Þorleifur Sigurlásson
11. Viggó Pétur Pétursson
20. Kristófer Davíð Traustason
24. Gunnar Hilmar Kristinsson
26. Baldur Þór Sigmundsson
27. Ólafur Magnússon
31. Hrannar Karlsson

Varamenn:
4. Ottó Valur Leifsson
8. Orri Rafn Sigurðarson
15. Sindri Rafn Arnarsson
18. Kristján Jón Pálsson
21. Rizon Gurung
22. Valgeir Þór Þorvaldsson
26. Sigurður Ernst Berndsen

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÍBV í 16-liða úrslit. Auðveldur dagur á skrifstofunni hjá Eyjamönnum.
Elvar Geir Magnússon
91. mín MARK!
Dominic Khori Adams (ÍBV)
Skallamark! 6-0 fyrir ÍBV! Klaufaleg mistök hjá markverði Léttis.
Elvar Geir Magnússon
90. mín
Yngvi með bakfallsspyrnu rétt yfir!!! Það mátti heyra saumnál detta! Spennan var rafmögnuð meðan boltinn var á leiðinni á markið.
Elvar Geir Magnússon
88. mín MARK!
Richard Sæþór Sigurðsson (ÍBV)
AFTUR!!! Hvað er í gangi. Léttis-menn tóku miðjuna, boltinn barst til Gunnars Hilmars Kristinssonar sem missti boltann aftast í vörninni! Richard komst aftur í færi og skoraði sitt annað mark!!!
Elvar Geir Magnússon
87. mín MARK!
Richard Sæþór Sigurðsson (ÍBV)
Strákur fæddur 1997 að skora. Kom inn sem varamaður. Komst einn inn fyrir vörn léttis, fór framhjá Gísla markvarði og lagði boltann í netið.
Elvar Geir Magnússon
83. mín
Það er ekkert í gangi í leiknum núna... stefnir í mjög þægilegan og fyrirhafnalítinn sigur ÍBV.
Elvar Geir Magnússon
71. mín MARK!
Dominic Khori Adams (ÍBV)
HAAAMMMER!!! Viðstöðulaus á lofti. Takk fyrir!
Elvar Geir Magnússon
69. mín
Léttismenn voru að bjarga á línu.
Elvar Geir Magnússon
66. mín
ÍBV sækir og sækir án þess að skapa sér opin færi.
Elvar Geir Magnússon
65. mín
Rosa lítið að frétta úr Breiðholtinu. Einhverjar skiptingar en þær munu ekki koma fram í þessari lýsingu þar sem engin fjölmiðlaaðstaða er.
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Rétt fyrir hálfleikinn átti Gauti skot á markið sem markvörður Léttis blakaði yfir.
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Þorleifur Sigurlásson, sonur Sigurlásar Þorleifssonar, markamaskínu og ÍBV goðsagnar, er í byrjunarliði Léttis. Mágur Tryggva Guðmundssonar, aðstoðarþjálfara ÍBV.
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Elvar Geir Magnússon
40. mín
Fyrsta skot Léttis á markið kom áðan. Viggó Pétur Pétursson átti skot sem var auðvelt viðureignar fyrir Abel.
Elvar Geir Magnússon
39. mín
Fyrir annað markið fékk ÍBV dauðafæri. Jón Ingason með frábæran bolt inn í teig sem Glenn skallaði að marki en vel varið í horn.
Elvar Geir Magnússon
36. mín MARK!
Jonathan Glenn (ÍBV)
Gauti með skot í varnarmann, þaðan fer boltinn til Glenn sem skorar auðvelt mark í autt netið.
Elvar Geir Magnússon
24. mín MARK!
Dominic Khori Adams (ÍBV)
Eftir aukaspyrnu frá Jóni Ingasyni dettur boltinn á Adams sem skorar með skoti fyrir utan teig í nærhornið.
Elvar Geir Magnússon
21. mín
Eyjamenn vilja hendi og víti! Helgi dómari dæmir ekkert. Tryggvi Guðmunds allt annað en sáttur.
Elvar Geir Magnússon
18. mín
Mees Junior Siers með skot innan teigs en Gísli Þór Einarsson varði frábærlega í horn!
Elvar Geir Magnússon
16. mín
Þess má geta að reynsluboltinn Yngvi og kjúklingurinn Devon eru saman í miðverðinum hjá ÍBV. Yngi er fæddur 1975 en Devon er fæddur 1997! 22 ára aldursmunur á þeim!
Elvar Geir Magnússon
13. mín
Rólegt fyrstu mínúturnar. ÍBV meira með boltann og hefur fengið tvö horn. Léttir í erfiðleikum með að halda boltanum innan liðs.
Elvar Geir Magnússon
1. mín
Leikurinn er hafinn - Fjölmiðlaaðstaðan hjá Létti er ekki upp á marga fiska og verður þessi textalýsing þar af leiðandi heldur ekki upp á marga fiska. Arnar Daði mun vera í símasambandi frá Mjóddinni og láta vita þegar eitthvað stórmerkilegt gerist.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Í marki Léttis er enginn annar en Gísli Þór Einarsson.

Hann lék með Breiðablik í Trópídeildinni 1994 og svo í Sjóvá-Almennra-deildinni 1996.

Þegar Gísli var að spila í Trópí-deildinni, þá voru fjölmargir leikmenn ÍBV ekki enn orðnir að hugmynd.
Fyrir leik
Rapparinn, Orri Err er á varamannabekk Léttis í kvöld.

Hér má sjá lag með honum.
Fyrir leik
Átta breytingar á byrjunarliði ÍBV.

Víðir Þorvarðarson, Aron Bjarnason, Hafsteinn Briem og Guðjón Orri eru settir á bekkinn. Bjarni Gunnars., Jonathan Barden, Ian Jeffs, og Andri Ólafs fara einnig úr byrjunarliðinu og eru ekki í hóp ásamt því að Tom Even Skogsrud sem hefur verið á bekknum í undanförnum leikjum er ekki í hóp.

Í þeirra stað koma Abel Dhaira, Devon Már Griffin, Sead Gavranovic ,Gunnar Þorsteinsson, Gauti Þorvarðarson, Dominic Adams, Yngvi Borgþórs. og Benedikt Októ.
Fyrir leik
Það eru nóg af breytingum í liði ÍBV í þessum leik frá því í 3-2 sigrinum á Víking í síðustu umferð í Pepsi-deildinni.
Fyrir leik
Léttir fóru skemmtilega leið í 32-liða úrslitin.

Þeir unnu Elliða 4-0 í fyrstu umferð og unnu síðan ÍR 1-0 með marki frá Hauki Ólafssyni. Léttir er einmitt svokallað, varalið ÍR.
Fyrir leik
Byrjunarlið liðanna fara detta inn hvað úr hverju. Það verður spennandi að sjá hvernig Jóhannes Harðarson þjálfari ÍBV stillir upp sínu liði hér í dag, gegn 4.deildarliði Léttis.
Fyrir leik
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Léttis og ÍBV í 32-liða úrslitum í Borgunarbikar karla.
Byrjunarlið:
1. Abel Dhaira (m)
Jonathan Glenn
Yngvi Magnús Borgþórsson
5. Jón Ingason (f)
6. Gunnar Þorsteinsson
15. Devon Már Griffin
20. Mees Junior Siers
21. Dominic Khori Adams
22. Gauti Þorvarðarson
23. Benedikt Októ Bjarnason
28. Sead Gavranovic

Varamenn:
3. Felix Örn Friðriksson
4. Hafsteinn Briem
7. Aron Bjarnason
11. Víðir Þorvarðarson
13. Richard Sæþór Sigurðsson
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson

Liðsstjórn:
Guðjón Orri Sigurjónsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: