Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Ísland
2
1
Tékkland
0-1 Borek Dockal '55
Aron Einar Gunnarsson (f) '60 1-1
Kolbeinn Sigþórsson '76 2-1
12.06.2015  -  18:45
Laugardalsvöllur
A-karla EM 2016
Aðstæður: Stillt veður
Dómari: William Collum (Skotland)
Áhorfendur: 9767 & 5 hrafnar
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
6. Ragnar Sigurðsson
7. Jóhann Berg Guðmundsson
8. Birkir Bjarnason
9. Kolbeinn Sigþórsson ('93)
10. Gylfi Þór Sigurðsson
14. Kári Árnason (f)
17. Aron Einar Gunnarsson (f)
20. Emil Hallfreðsson ('62)
23. Ari Freyr Skúlason

Varamenn:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
13. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
3. Hallgrímur Jónasson
3. Kristinn Jónsson
5. Sölvi Ottesen
11. Alfreð Finnbogason
16. Rúnar Már S Sigurjónsson
19. Rúrik Gíslason ('93)
21. Viðar Örn Kjartansson
22. Eiður Smári Guðjohnsen
22. Jón Daði Böðvarsson ('62)
25. Theodór Elmar Bjarnason

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Takk fyrir mig í kvöld - Þetta var geðveikt.

Eftir að hafa lent undir, þá sýndu íslensku leikmennirnir hvað í þeim býr, svöruðu fyrir sig stuttu seinna og Kolbeinn Sigþórsson tryggði síðan öll stigin á 76. mínútu leiksins.

Góða skemmtun í kvöld - farið hægt um gleðinnar dyr og ÁFRAM ÍSLAND!

Skýrslan, viðtöl og allt sem tengist landsleiknum verður hér hent inn á síðuna í allt kvöld!
Leik lokið!
Ísland á EM syngja áhorfendur hér á Laugardalsvelli.......
95. mín
Gæsahúð!
Leik lokið!
LEIKNUM ER LOKIÐ.

Ísland vinnur 2-1 og eru þar með komnir á topp riðilsins eftir sex umferðir!

VÁVÁVÁ! Þvílíkur dagur, þvílíkur leikur, þvílíkt lið!
95. mín
Petr Cech á síðustu snertingu leiksins. Með skalla sem Hannes grípur!
94. mín
Cech er kominn inn í teig!
94. mín
Jaroslav Plasil með skot utan teigs sem Hannes ver og slær í horn.
93. mín
Inn:Rúrik Gíslason (Ísland) Út:Kolbeinn Sigþórsson (Ísland)
Hetjan útaf! Þetta er að klárast!
91. mín
Pavel Kaderabek með langa sendingu inn í teig sem Hannes grípur.

Milan Skoda fer í Hannes, sem liggur og vinnur inn nokkrar dýrmætar sekúndur.
90. mín
Uppbótartíminn er þrjár mínútur.
90. mín
Jóhann Berg geysist upp völlinn og nær síðan fínu skoti utan teigs sem Cech ver í horn.

Jæja, taka sinn tíma í þetta, tíminn vinnur með okkur.
89. mín
Rosicky með hornið sem Hannes kýlir í burtu.
88. mín
Tékkar fá hornspyrnu.

Krejci reyndi fyrirgjöf en Birkir Már fór fyrir boltann.
86. mín
Fjórar mínútur. Allt íslenska landsliðið er komið á sinn vallarhelming.
85. mín
Sókn Tékka þyngist, er það nú nema von?

Þeir eru undir og fimm mínútur eftir, plús uppbótartími. Vörn Íslendinga er þétt að vanda. Einungis fengið á sig þrjú mörk í undankeppninni, reyndar öll á móti Tékkum.
84. mín
Inn:Vladimír Darida (Tékkland) Út:Borek Dockal (Tékkland)
Darida, miðjumaður Freiburg í Þýskalandi er kominn inná.
82. mín
Jón Daði gerir vel og vinnur boltann í baráttunni við varnarmann Tékka, en gerir síðan ekki nægilega vel í kjölfarið þegar hann sendir boltann fyrir inn í teiginn, þar var Kolbeinn Sigþórsson á fljúgandi ferð, en boltinn fór fyrir aftan hann og Tékkar ná að hreinsa frá.
79. mín
Inn:Milan Skoda (Tékkland) Út:Lukas Vacha (Tékkland)
Milan Skoda er kominn inná. Hann kom inn í hóp Tékka í kjölfar þess að sóknarmaðurinn, Lafata meiddist.
78. mín
12 langar og strangar mínútur eftir af þessum leik.

Koma svo !
76. mín MARK!
Kolbeinn Sigþórsson (Ísland)
Jájájájá!

Íslenska landsliðið er komið yfir og þar með komnir á toppinn í riðlinum!

Jón Daði Böðvarsson var að leika sér með boltann fyrir framan vítateig Tékka, Tomas Sivok tæklaði boltann til Kolbeins sem var skyndilega kominn einn gegn Cech. Lék á "Hjálminn" og renndi boltanum í autt markið!
75. mín
Milan Skoda er að koma inná hjá Tékkum.
72. mín Gult spjald: Ladislav Krejci (Tékkland)
Gaf Birki Má olnbogaskot í skallabaráttu. Hárrétt hjá Skotanum.
70. mín
Illa gert hjá varamanninum Ladislav Krejci.

Rangstæðu-gildra vörn Íslendinga klikkaði hrikalega og Krejci var kominn einn innfyrir en síðasta snerting hans, sveik hann gjörsamlega og Hannes náði til boltans.

Þetta leit ekki vel út á tímabili en sem betur fer, var Krejci enn ískaldur.
68. mín
Inn:Ladislav Krejci (Tékkland) Út:Vaclav Pilar (Tékkland)
Átti fínar skot-tilraunir í byrjun seinni hálfleiks..

Krejci er leikmaður Sparta Prag í heimalandinu.
64. mín
Birkir aleinn við vítateigshornið, keyrir inn í teiginn með boltann en nær ekki skoti á markið og Íslendingar fá horn.

Petr Cech grípur boltann frá Gylfa úr horninu, alltof auðveldlega.
64. mín
Eiður Smári er að gera sig líklegan til að koma inná.
62. mín
Inn:Jón Daði Böðvarsson (Ísland) Út:Emil Hallfreðsson (Ísland)
Emil hefur átt betri daga. Vann nokkur skalla einvígi og var harður í horn að taka, en meira var það ekki að þessu sinni.
60. mín MARK!
Aron Einar Gunnarsson (f) (Ísland)
Stoðsending: Ari Freyr Skúlason
Jááááááá!!!!!

Og aftur JÁÁÁÁÁÁÁ!

Ekki lengi að jafna, hornspyrna Gylfa var skölluð út fyrir teiginn, Ari Freyr fékk boltann vinstra megin, átti glimrandi fyrirgjöf yfir á fjær þar sem Aron Einar gjörsamlega STANGAÐI boltann í fjærhornið.
59. mín
Gylfi reynir skot fyrir utan teig en varnarmúr Tékka er erfiður á að eiga. Skot Gylfa í varnarmann Tékka og í horn.
57. mín
Eftir að Tékkarnir komust yfir hafa Íslendingar fengið tvær ágætis sóknir en ekki náð skoti á markið.

Jón Daði Böðvarsson er að gera sig líklegan til að koma inná.
56. mín
Emil Hallfreðsson missti boltann í kjölfarið á marki Tékka.

Ekki í fyrsta skiptið sem miðjumenn Íslands missa boltann svona auðveldlega á miðjunni og Tékkarnir refsuðu í þetta skiptið.
55. mín MARK!
Borek Dockal (Tékkland)
Stoðsending: Tomás Necid
Borek Dockal fær fína skotstöðu fyrir utan teig sem hann nýtir sér vel - nær hörkuskoti upp í nærhornið sem Hannes nær ekki til.

Fyrsta skot Tékka á markið og það er inni.
54. mín
Obbosiss!!!!

Gylfi "þræðir" Sig(urðsson) framhjá David Limberský innan vítateigs en skotið hans hárfínt framhjá fjærstönginni.

Áfram svona - þetta er okkar völlur og allt það!
53. mín
Gylfi tekur aukaspyrnu sem Cech kýlir í burtu, Íslendingar halda pressunni áfram en vörn Tékka þétt og þeir ná að hreinsa frá, eftir fyrirgjafir frá Emil.
51. mín
Vaclav Pilar með skot utan teigs en aftur yfir.

Jæja Ísland! Nú megiði fara mæta til leiks í seinni hálfleiknum.
49. mín
Vaclav Pilar endar sókn Tékka með bakfallspyrnu yfir markið. Lítil hætta.
47. mín
Birkir brýtur létt á Borek Duckal og Tékkar fá aukaspyrnu á sínum eigin vallarhelmingi.
46. mín
Birkir Bjarna. og Emil hafa skipt um stöður.

Emil er kominn á hægri vænginn og Birkir á þann vinstri.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er byrjaður!
46. mín
Heimir Hallgrímsson í viðtali á RÚV í hálfleik. ,,Mér finnst við eiga einn gír inni," segir hann.

Heimir segir íslenska liðið geta gert betur þegar það er með boltann og segir að Aron Einar muni taka fleiri löng innköst í síðari hálfleiknum.
Magnús Már Einarsson
45. mín

45. mín
Hálfleikstölur í Lettlandi:
Lettland 0 - 0 Holland
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik.

Þetta er í lagi, en við viljum sjá meira. Þá sérstaklega frá þeim Jóhanni Berg og Kolbeini Sigþórssyni.

Aron Einar virðist vera eitthvað tæpur, spurning hvernig hann kemur inn í seinni hálfleikinn.

Miðverðirnir Kári Árnason og Ragnar Sig. hafa verið traustir varnarlega en hafa átt í erfiðleikum með að koma boltanum frá sér á sóknarmenn Íslands. Löngu og háu spyrnur þeirra, hafa lítið skilað.
45. mín
Illa farið með hornið. Gylfi og Jói tóku stutta hornspyrnu, gáfu síðan á Ara Freyr sem var fyrir utan teiginn og hann lætur vaða, en skotið lélegt og langt framhjá.
45. mín
Íslendingar fá hornspyrnu.

Jóhann Berg reyndi fyrirgjöf sem endar í varnarmanni Tékka og í horn.
45. mín
Uppbótartíminn er ein mínúta.
44. mín
Tvö hættulegustu tækifæri íslenska liðsins í leiknum voru aukaspyrnur Gylfa rétt fyrir framan vítateiginn.

Meira hefur það ekki verið.
43. mín
Nú snýst dæmið við.

Pilar brýtur nú á Birki á vallarhelmingi Tékka.

Gylfi tekur spyrnuna og rúmlega hálft íslenska liðið komið inn í teiginn.

Sivok skallar boltann frá sem endar með fyrirgjöf frá Ara Frey langt og hátt yfir markið.
41. mín
Birkir missir boltann á vinstri vængnum og Vaclav Pilar gerir sig líklegan að fara í hraða skyndisókn.

Birkir gerði það sem hann þurfti að gera, stöðva hann og dæmdur brotlegur. Sleppur við spjaldið.
40. mín
Tomas Rosicky tekur aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Íslendinga.

En íslenska vörnin gerir vel og hreinsar frá.
38. mín
Íslenska liðið náði nokkrum sendingum sín á milli, unnu sig hærra upp völlinn með hverri sendingunni, en endar síðan með misskilningi milli leikmanna og sending Ara Freys endar hjá Petr Cech.
33. mín
Tékkar fá horn. Hægri bakvörðurinn Pavel Kaderabek fór upp hægri kantinn og van horn.

Miðvörðurinn, Tomas Sivok skallar boltann hinsvegar yfir markið, úr horninu.
31. mín
Kári Árnason með erfiða sendingu upp á Birki Má sem endar með því að Tékkar fá innkast.
29. mín
Aukaspyrna Gylfa ofan á þaknetið.

Vá. Þetta var alvöru tvær mínútur hjá íslenska liðinu.

Veislan er rétt að byrja - koma svo - Áfram Ísland!
29. mín Gult spjald: Tomás Rosicky (Tékkland)
Fyrsta spjald leiksins, fær Arsenal-leikmaðurinn Tomas Rosicky.

Hann fór með fæturnar í höfuðið á Aroni Einari.

Gylfi gerir sig kláran
28. mín
Gylfi með fína spyrnu í fjærhornið sem Cech skutlar sér og slær boltann frá.

Íslendingar halda pressunni áfram, Emil kemur með fyrirgjöf og í kjölfarið er sparkað í höfuðið á Aroni Einari.

Önnur aukaspyrna, á enn betri stað en sú fyrri!
26. mín
Aukaspyrna á vítateigslínunni!

Tomas Sivok brýtur á Kolbeini alveg við vítateiginn vinstra megin.

Staðsetning sem Gylfi ætti að þekkja vel!

Hvaaaað gerir Sigurdsonn?
25. mín
Leikurinn er í miklu jafnvægi fyrstu 25 mínútur leiksins.

Bæði lið hafa átt álitlegar sóknir. Eftir góða byrjun Tékka er íslenska landsliðið að vinna sig hægt og bítandi meira inn í leikinn og eru farnir að verða líklegri en áður.

Áfram gakk!
25. mín
Rosalegasta snerting leiksins átti Gylfi Þór Sigurðsson nú rétt í þessu.

Tók hann með hælnum fyrir aftan bak á lofti. Svaðalegt!
23. mín
Lukas Vacha brýtur á Gylfa é miðjum vellinum.

Íslendingar stilla upp og Ari Freyr tekur spyrnuna.
21. mín
Jóhann Berg í baráttunni við Prochazka. Þeir missa báðir af boltanum og boltinn endar í höndum Petr Cech.
19. mín
Gylfi með sendingu með hægri, frá hægri kantinum og þar er Jóhann Berg í skallabaráttu sem hann því miður tapar. Þarna vantaði nokkra cm upp á, hjá Jóa.
18. mín
Tékkarnir loka vel á allar leiðir Íslendinga.

Þeir bíða eftir því að við gerum mistök og reyna síðan að svara með hröðum sóknum.
15. mín
Úff!

Tomas Necid með skalla rétt framhjá úr dauðafæri eftir fyrirgjöf frá Pavel Kaderabek.

Kaderabek eld fljótur úr hægri bakverðinum og kom með frábæra fyrirgjöf. Necid hoppaði manna hæst og þarna hefðu allir Tékkar viljað sjá boltann inni.
12. mín
Emil búinn að vera duglegur að vinna þessi skalla-einvígi sem hann hefur farið í fyrstu mínútur leiksins! Meira af þessu Emil!
11. mín
Aron Einar reynir langa sendingu fram völlinn sem Kolbeinn Sigþórsson nær ekki til.
9. mín
Tékkarnir með hættulega fyrirgjöf frá hægri sem fer yfir pakkann. Hannes í kapphlaupi við Vaclav Pilar um boltann.

Endar með því að boltinn fer aftur fyrir endamörk og markspyrna.
6. mín
Jaroslav Plasil leggur á vellinum eftir skalla einvígi. Þarf aðhlynningu að halda.
5. mín
Hornspyrnan frá Tomas Rosicky sem Emil skallar frá, í tveimur tilraunum.
4. mín
Tékkar fá aukaspyrnu á vallarhelming Íslands.

Borek Dockal tekur spyrnuna sem endar með fyrirgjöf frá David Limbersky. Emil skallar í horn.

Tékkar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
3. mín
Kári Árnason á skalla eftir aukaspyrnu, en boltinn beint í fangið á Petr Cech. Auðvelt fyrir Cech.
1. mín
Kolbeinn Sigþórsson dæmdur rangstæður. Fyrsta rangstæða leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
LEIKURINN er byrjaður.

Íslendingar byrja með boltann og sækja í átt að Laugardalshöllinn.

Íslenska liðið í bláum búningum og Tékkarnir í hvítum.
Fyrir leik
Martin Hermannsson landsliðsmaður í körfubolta er nú að taka Icelandair auglýsinguna af miðjunni. - Með hjálp frá þeim Ólafi Ægi og Elíasi Bóassyni leikmönnum Fram í handbolta.
Fyrir leik
Veislan er að byrja!!!

Það er ágætis knattspyrnuveður, gott sem logn, bjart.

Stúkan er að fyllast og tekur vel undir, bæði í þjóðsöngnum og klappar vel fyrir því þegar Röddin kynnir byrjunarlið Íslands!
Fyrir leik
Og svo er það þjóðsöngur Íslands.
Fyrir leik
Þjóðsöngur Tékka er nú í spilun.
Fyrir leik
Tékkarnir eru taplausir á toppi riðilsins með 13 stig, fjórir sigrar og eitt jafntefli. Með markatöluna 11-6.
Fyrir leik
Fylgstu með fotboltinet á Snapchat!


Fyrir leik
Fyrir leik
Lokatölur
Kasakstan 0 - 1 Tyrkland

Tyrkirnir því komnir í 8 stig, stigi á undan Hollandi sem mætir Lettum í kvöld.
Fyrir leik
Tólfan er að mæta leik til leiks!
Fyrir leik
Allur íslenski hópurinn er byrjaður að hita upp. Nóg af boltum og mikil gæði. Allir hressir.
Fyrir leik
Hannes Þór, Ögmundur og Gunnleifur eru mættir út á völl og byrjaðir að hita upp.
Fyrir leik
Sex rútur af stuðningsmönnum Tékka eru mættar á svæðið.
Fyrir leik
Petr Cech er mættur með hjálminn inn á völlinn. Byrjaður að skokka.
Fyrir leik
Fyrstu áhorfendurnir eru mættir í stúkuna. 17:47
Fyrir leik
Tyrkirnir eru komnir yfir í Kasakstan.

Arda Turan með markið á 83. mínútu. 1-0.
Fyrir leik
Klukkutími í LEIKINN!!!
Fyrir leik
Tomas Necid, framherji Zwolle í Hollandi, fær það hlutverk að fylla skarð framherjans David Lafata sem er ekki með vegna meiðsla.

Tékkar eru með aðeins varnarsinnaðara lið en hingað til í undankeppninni en Lukas Vacha leikmaður Sparta Prag kemur inn á miðjuna fyrir Vladimír Darida. Vacha er varnarsinnaðari en Darida.

Þá kemur Vaclav Prochazka inn í vörnina fyrir Michal Kadlec sem spilaði lítið með Fenerbache síðari hluta tímabils. Prochazka er líkamlega sterkari en Kadlec samkvæmt tékkneskum sparkspekingum.

Petr Cech og Tomas Rosicky eru á sínum stað en sá síðarnefndi er með fyrirliðabandið.
Fyrir leik
Vaclav Pilar er á vinstri vængnum hjá Tékkum. Stórhættulegur, vængmaður, leikmaður Plzen í heimalandinu. Hann er kominn með tvö mörk í undankeppninni.
Fyrir leik
Borek Dockal er markahæsti leikmaður Tékka í undankeppninni með þrjú mörk. Hann byrjar á hægri vængnum í kvöld.

Fremstur er Tomas Necid, leikmaður Zwolle í Hollandi. Hann er kominn með eitt mark í þremur leikjum í undankeppninni.
Fyrir leik
Starfsmenn vallarins eru búnir að kveikja á vökvunargræjunum.

Boltinn á greinilega að renna vel á vellinum í kvöld.
Fyrir leik

Fyrir leik
Eftir að dómararnir hafa yfirgefið Laugardalsvöllinn, þá mæta leikmenn Tékkana og skoða völlinn vel og vandlega.
Fyrir leik
Ari Freyr Skúlason er eini leikmaður í íslenska landsliðshópnum sem er á hættusvæði, varðandi gul spjöld.

Hann er kominn með tvö spjöld, fái hann spjald í kvöld, verður hann í leikbanni í næsta leik gegn Hollandi.
Fyrir leik
Dómarar leiksins eru mættir á völlinn. Vel jakkafataðir og fyrsta sem þeir gera er að kyssa grasið. (Það væri óskandi, en ekki satt).

Þeir kíkja á netið á mörkunum og það virðist allt vera í lagi.
Fyrir leik

Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands

Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á bekknum en hann er eini leikmaðurinn sem dettur úr liðinu síðan í 3-0 sigrinum á Kasakstan í mars.

Jóhann Berg Guðmundsson verður í fremstu víglínu með Kolbeini Sigþórssyni eftir að hafa leikið á kantinum í síðasta leik.

Emil Hallfreðsson byrjar hins vegar á vinstri kantinum.

Birkir Már Sævarsson byrjar í hægri bakverði líkt og á móti Kasakstan en Theódór Elmar Bjarnason, sem byrjaði fyrstu fjóra leikina í keppninni í hægri bakverðinum, er á bekknum.
Fyrir leik
Páll Sævar Guðjónsson, "Röddin" - er þessa stundina að hita upp fyrir leikmannakynningu kvöldsins. Hún verður á næsta level-i!
Fyrir leik
Hvaða leiki eiga Ísland eftir í riðlinum?

Tékkland (heima) (í kvöld)
Holland (úti) (3. sept)
Kasaka (heima) (6. sept)
Lettland (heima) (10. okt)
Tyrkland (úti) (13. okt)
Fyrir leik
Það er hálfleikur í leik Kasaka og Tyrkja og staðan er markalaus.
Fyrir leik

Fyrir leik
Þrír starfsmenn vallarins eru þessa stundina að fara yfir grasið og laga það sem hægt er að laga. Völlurinn lítur ágætlega út, sem og starfsmennirnir sjálfir.
Fyrir leik

Fyrir leik
Dómari leiksins, er hinn 36 ára Skoti, William Collum.

Aðstoðardómararnir eru þeir, Damien McGraith frá Írlandi og Skotinn, Francis Connor.

Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Viltu sjá öll mörk íslenska landsliðsins frá 2012?

Sjáðu öll mörk Íslands frá 2012!
Fyrir leik
Heil umferð í riðlinum fer fram í kvöld.

Auk Ísland - Tékkland fara fram:
Kasakstan - Tyrkland
Lettland - Holland
Fyrir leik
Hvernig er staðan í riðlinum?

Tékkland 13 stig
Ísland 12 stig
Holland 7 stig
Tyrkland 5 stig
Lettland 3 stig
Kasakstan 1 stig

Sjá nánar.
Fyrir leik
,,Það er Þjóðhátíðardagur," sagði Árni Súperman hjá Tólfunni.

Smelltu hér til að sjá viðtal við Súperman!

Fyrir leik
Ekki gleyma því að Twitter gerir leikinn miklu skemmtilegri.

Taktu þátt með kassamerkinu fotboltinet.

#fotboltinet
Fyrir leik
Leikurinn hefst klukkan 18:45 og það eru því nákvæmlega þrír tímar í að leikurinn byrji.

Það eru flæðandi fréttir inn á síðunni, hægri vinstri sem ég mæli hiklaust með því að lesa.

Ef Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ fær sér samloku, þá verður hent í frétt um leið.
Fyrir leik
Góðan daginn, góðan daginn!

Nú hefst textalýsingin formlega. Ísland - Tékkland er LEIKURINN, segir Heimir Hallgrímsson annar af landsliðsþjálfurum Íslands og veistu, ég er sammála honum.

Fylgstu með hér í allan dag, fram að leik, á meðan leik stendur og jafnvel eitthvað lengur.

Komið með mér í þessa veislu!
Byrjunarlið:
1. Petr Cech (m)
4. Pavel Kaderabek
5. Vaclav Prochazka
6. Tomás Sivok
7. Tomás Necid
8. David Limberský
9. Borek Dockal ('84)
10. Tomás Rosicky
12. Vaclav Pilar ('68)
13. Jaroslav Plasil
15. Lukas Vacha ('79)

Varamenn:
16. Jan Lastuvka (m)
23. Jaroslav Drobný (m)
2. Gebre Selassie
3. Michal Kadlec
11. Jan Kopic
14. Vaclav Kadlec
17. Marek Suchy
18. Daniel Kolár
19. Ladislav Krejci ('68)
20. Jan Kovarik
21. Milan Skoda ('79)
22. Vladimír Darida ('84)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Tomás Rosicky ('29)
Ladislav Krejci ('72)

Rauð spjöld: