Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Valur
3
1
KR
Elín Metta Jensen '17 1-0
Katia Maanane '18 2-0
Katia Maanane '65 3-0
3-1 Sigríður María S Sigurðardóttir '71
21.07.2015  -  19:15
Vodafonevöllurinn
Pepsi-deild kvenna 2015
Aðstæður: Skýjað og pínu kvasst en góðar aðstæður
Dómari: Gunnar Helgason
Áhorfendur: 100
Maður leiksins: Katia Maanane
Byrjunarlið:
12. Þórdís María Aikman (m)
7. Hildur Antonsdóttir ('72)
10. Elín Metta Jensen
10. Berglind Rós Ágústsdóttir ('45)
21. Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir ('72)
23. Heiða Dröfn Antonsdóttir
30. Katrín Gylfadóttir
31. Vesna Elísa Smiljkovic

Varamenn:
2. Hlíf Hauksdóttir
2. Lilja Dögg Valþórsdóttir
5. Inga Dís Júlíusdóttir ('72)
14. Rebekka Sverrisdóttir ('45)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir ('72)
20. Agla María Albertsdóttir

Liðsstjórn:
Kristín Ýr Bjarnadóttir

Gul spjöld:
Elín Metta Jensen ('58)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur skellir sér upp í þriðja sætið!

KR ennþá í fallbulli. Viðtöl og skýrsla á leiðinni. Takk fyrir mig.
90. mín
Elín Metta er í virkilega góðu færi en hún klikkar er hún reynir að fara framhjá Macdonald í markinu og færið rennur út í sandinn.
90. mín
Nú er komið í uppbótartímann hérna í Hlíðarenda og virðist vera nokkuð ljóst að Valsstúlkur skella sér upp í þriðja sæti deildarinnar.
85. mín Gult spjald: Margrét María Hólmarsdóttir (KR)
Alltof sein í tæklingu.
84. mín
Mesta orkan virðist vera farin úr KR liðinu sem virtist jafnvel ætla að gera leik úr þessu.
80. mín
Hugrún Lilja var næst að reyna en hennar skot er rétt framhjá markinu.
79. mín
KR stúlkur hafa komist aðeins meira inn í leikinn eftir að hafa skorað.

Margrét María tók skot rétt utan teigs sem Þórdís ver örugglega.
77. mín
Katia á skalla að marki eftir hornspyrnu en í hliðarnetið. Þarna hefði hún getað náð þrennunni.
76. mín
Varamaðurinn, Málfríður Anna, reynir skot af löngu færi sem fer rétt framhjá markinu. Þarna mátti ansi litlu muna.
72. mín
Inn:Inga Dís Júlíusdóttir (Valur) Út:Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir (Valur)
72. mín
Inn:Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur) Út:Hildur Antonsdóttir (Valur)
71. mín MARK!
Sigríður María S Sigurðardóttir (KR)
MAAAAAAAAAAAARK!!

Game on?

Þórdís er búin að vera dugleg að Neuer á þetta í dag og er búin að vera snögg úr markinu. Það hefur gengið vel þangað til núna. Sigríður María lyftir boltanum snyrtilega yfir hana og í netið. Fallegt mark.
70. mín
Inn:Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR) Út:Sonja Björk Jóhannsdóttir (KR)
69. mín
Vesna er í fínu færi en skotið hennar fer í varnarmann og þaðan í horn.

Maria Selma skallar boltann í markið eftir hornspyrnuna en það var búið að dæma og markið stendur ekki.
66. mín
KR stúlkur hafa lítið komist inn í leikinn í seinni hálfleik eftir að hafa átt fínan fyrri hálfleik. Virkilega vel spilað hjá heimastúlkum eftir hlé.
65. mín MARK!
Katia Maanane (Valur)
MAAAAAAAAAARK!!

Katia er aftur á ferðinni, fær boltann nokkuð skyndilega í virilega góðu færi og hún skorar af öryggi.
64. mín
Katia í viiiirkilega góðu færi, fær boltann á markteig en hún setur hann framhjá markinu. Töluvert erfiðara færi en hún skoraði úr áðan.
62. mín
Katia Maanane tók smá sprett upp völlinn. Guð minn góður, 80 km hraði eða svo. Sú er snögg þegar hún tekur upp á því að spretta.
61. mín
Inn:Sigrún Birta Kristinsdóttir (KR) Út:Sara Lissy Chontosh (KR)
61. mín
Inn:Sigríður María S Sigurðardóttir (KR) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (KR)
58. mín Gult spjald: Elín Metta Jensen (Valur)
Braut á Chelsea og fékk réttilega gult spjald.
57. mín
Valsstúlkur hafa verið töluvert betri aðilinn í seinni hálfleik hingað til.
55. mín
Katia kemur með hörkuskot eftir að Vesna hafi gefið á hana. Macdonald varði vel í horn.

Mist skallar síðan hornspyrnuna í slánna og KR-ingar rétt sleppa.
53. mín
Vesna kemst inn í teig KR og er við það að komast í skotfæri, Hugrún Lilja fer síðan nokkuð harkalega í hana og Vesna fellur við. Smá vítaspyrnulykt af þessu en KR stúlkur sleppa.
50. mín
Chelsea er við það að sleppa í gegn, Þórdís kemur langt út úr markinu, Chelsea nær að skjóta framhjá henni en skotið hittir ekki rammann. Þórdís og Chelsea rekast saman í kjölfarið en þær standa báðar upp og halda leik áfram. Með því hættulegra hjá KR hingað til í leiknum.
48. mín
Katia Maanane er við það að komast í gott færi en Macdonald nær að trufla hana og sóknin rennur út í sandinn.
45. mín
Seinni hálfleikurinn er byrjaður
45. mín
Inn:Rebekka Sverrisdóttir (Valur) Út:Berglind Rós Ágústsdóttir (Valur)
45. mín
Hálfleikur
Valur leiðir í hálfleik. Furðulegur leikur, KR liðið var heilt yfir betra liðið en Valsliðinu dugði tvær sóknir til að komast í þessa líka góðu stöðu í hálfleik.
45. mín
Katia platar varnarmenn KR upp úr skónum áður en hún á skot sem Macdonald nær að verja. Uppbótartími í fyrri hálfleik núna.
45. mín
Elín Metta fer upp hægri vænginn og kemst að endamörkum, fyrirgjöfin hennar endar í utanverðri stönginni og þaðan fer boltinn útaf.
41. mín
Leikurinn hefur dottið svolítið niður síðustu mínúturnar en hann hefur verið stoppaður svolítið oft. Chelsea liggur nú eftir og fær aðhlinningu.
35. mín
Vesna virðist fá boltann í andlitið af miklu afli og liggur hún eftir.
34. mín
Sara Chontosh reyndi fyrirgjöf á Chelsea en Þórdís var vel vakandi og náði til boltans á undan stúlkunni frá Bandaríkjunum.
30. mín
Þessi leikur heldur áfram að fara fram að mestu leiti inn í teig Valsstúlkna en KR-liðinu vantar meira bit fram á við. Uppspilið er gott en Þórdís hefur haft það náðugt í markinu.
26. mín Gult spjald: Oktavía Jóhannsdóttir (KR)
Oktavía fer illa í Berglindi við hliðarlínuna og fær að launum verðskuldað gult spjald.
23. mín
Stórfurðulegur leikur, KR var betra liðið, Valur skorar tvö mörk á tveimur mínútum og síðan heldur KR áfram að vera betra liðið. Mjög vel spilaður leikur hjá KR hingað til fyrir utan tvær mínútur.

Skemmtilegur leikur sem fótboltinn er.
22. mín
Chelsea A. Leiva fer niður í teignum eftir aukaspyrnu frá gestunum. Mist Edvards virtist hrinda henni og maður hefur séð dæmt víti á svona.
18. mín MARK!
Katia Maanane (Valur)
MAAAAAAAAAAAAAAARK!!

Það er ekkert annað. Margrét María Hólmarsdóttir á skot rétt yfir mark Vals. Eftir það bruna Valsstúlkur í sókn, Katia notar hraðann sinn í að stinga varnarmenn KR af. Hún klárar síðan virkilega vel. 2-0. Fljótt að gerast.
17. mín MARK!
Elín Metta Jensen (Valur)
MAAAAAAAAAAAARK!!!

Eftir fínan kafla hjá KR, þá eru það Valsstúlkur sem komast yfir. Elín Metta gerir vel er hún er komin ein í gegn eftir lélega sendingu úr vörn KR, hún fer framhjá Tara Mcdonald í marki KR og skorar af öryggi!
14. mín
Sonja Björk var við það að sleppa í gegn en Þórdís kom vel út úr markinu og bjargaði mjög vel.

KR-liðið sterkara eins og er.
13. mín
Eftir sterka byrjun Valsstúlkna, hefur KR-liðið komist meira inn í leikinn og hefur leikurinn veirð inná vallarhelmingi Valsstúlkna undanfarnar mínútur.

Hulda Ósk Jónsdóttir var rétt í þessu í þokkalegu skallafæri en hún hitti ekki boltann.
9. mín
KR-stúlkur eru að standa vel í Valsliðinu hingað til en hvorugt liðið hefur búið sér til alvöru færi hingað til.
7. mín
Þær eru báðar harðar af sér og standa upp og leikurinn heldur áfram.
6. mín
Sonja Björk og Mist Edvarsdóttir lenda í einhverju samstuði og liggja báðar eftir. Gunnar Helgason stöðvar því leikinn.
4. mín
Valsstúlkur byrja betur og setja KR liðið strax undir mikla pressu.
Fyrir leik
Leikur hafinn
Valsstúlkur byrja með boltann.
Fyrir leik
Agla María Albertsdóttir er á bekknum hjá Val en hún kom frá Breiðablik á dögunum.
Fyrir leik
Nú styttist óðum í þetta, það eru ungar stúlkur komnar inná með fána Pepsi deildarinnar og leikmennirnir fara að fylgja innan skamms.
Fyrir leik
Liðin eru búin að mætast tvisvar í sumar en markatalan í leikjunum er 9-0, Val í vil.

Valur vann deildarleik liðanna í Frostaskjólinu, 5-0. Þær fóru síðan aftur illa með KR í bikarleik liðanna fyrr í júlí en þá fóru leikar 4-0.
Fyrir leik
Valur steinlá fyrir Þór/KA í síðasta leik en lokatölur urðu 5-0 á Akureyri.

KR-ingar töpuðu á meðan naumlega fyrir Stjörnunni, 1-0.
Fyrir leik
Fyrir leikinn er Valsliðið í fimmta sæti en þær eru með 18 stig.

KR hefur aðeins unnið einn leik í allt sumar og eru þær í botnbaráttu með aðeins sex stig.
Fyrir leik
Búast má við hörkuleik en eins og flestir vita, þá er lítil vinsemd á milli þessara félaga.
Fyrir leik
Góðan dag lesendur kærir, hér verður fylgst með leik Vals og KR í Pepsi deild kvenna.
Byrjunarlið:
1. Tara E Macdonald (m)
Margrét María Hólmarsdóttir
Hugrún Lilja Ólafsdóttir
3. Chelsea A. Leiva
4. Oktavía Jóhannsdóttir
7. Sonja Björk Jóhannsdóttir ('70)
8. Sara Lissy Chontosh ('61)
14. Hulda Ósk Jónsdóttir ('61)
17. Jóhanna K Sigurþórsdóttir
18. Íris Ósk Valmundsdóttir
26. Kelsey Loupee

Varamenn:
5. Sigrún Birta Kristinsdóttir ('61)
11. Ásdís Karen Halldórsdóttir ('70)
19. Helena Sævarsdóttir
23. Guðrún María Johnson

Liðsstjórn:
Sigríður María S Sigurðardóttir

Gul spjöld:
Oktavía Jóhannsdóttir ('26)
Margrét María Hólmarsdóttir ('85)

Rauð spjöld: