Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
KA
2
1
Fjarðabyggð
Benjamin James Everson '15 1-0
Elfar Árni Aðalsteinsson '49 2-0
2-1 Ólafur Örn Eyjólfsson '90
23.07.2015  -  19:15
Akureyrarvöllur
1. deild karla 2015
Aðstæður: Völlurinn flottur en kalt í veðri og vindur
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Byrjunarlið:
Davíð Rúnar Bjarnason
Srdjan Rajkovic
Halldór Hermann Jónsson
3. Callum Williams
5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Ævar Ingi Jóhannesson ('91)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
11. Jóhann Helgason ('67)
19. Benjamin James Everson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Archie Nkumu ('68)

Varamenn:
18. Fannar Hafsteinsson (m)
4. Ólafur Aron Pétursson ('68)
14. Úlfar Valsson
24. Sveinn Helgi Karlsson
26. Ívar Sigurbjörnsson ('91)
29. Josip Serdarusic ('67)
30. Bjarki Þór Viðarsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Archie Nkumu ('7)
Hrannar Björn Steingrímsson ('75)
Ívar Örn Árnason ('76)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
KA-menn landa sigri hér. Viðtöl og skýrsla væntleg
91. mín
Inn:Ívar Sigurbjörnsson (KA) Út:Ævar Ingi Jóhannesson (KA)
90. mín MARK!
Ólafur Örn Eyjólfsson (Fjarðabyggð)
Stoðsending: Víkingur Pálmason
Gestirnir hafa minnkað munin. Víkingur með fyrirgjöf á Ólaf sem skorar með skalla. Það er enn von fyrir gestina
90. mín
Þremur mínútum bætt við
88. mín
Ævar með fyrirgjöf á Josip sem skýtur beint á Kile í markinu
87. mín
Andri Þór með aukaspyrnu útfyrir vegginn en boltinn fer framhjá markinu
87. mín
Ekki mikið um opin færi hérna í seinni hálfleik
83. mín
Inn:Ólafur Örn Eyjólfsson (Fjarðabyggð) Út:Viðar Þór Sigurðsson (Fjarðabyggð)
tvöföld skipting hjá Fjarðabyggð
83. mín
Inn:Víkingur Pálmason (Fjarðabyggð) Út:Hákon Þór Sófusson (Fjarðabyggð)
79. mín
Frábær sprettur hjá Ævari, snýr af sér tvo varnarmenn og kemur með boltann fyrir en gestirnir hreinsa í horn

Davíð Rúnar á skot yfir markið í góðu færi upp úr horninu
78. mín
Ekkert verður úr aukaspyrnunni, lítil ógn í föstum leikatriðum hjá gestunum
76. mín Gult spjald: Ívar Örn Árnason (KA)
Gestirnir með aukaspyrnu utan af kanti
75. mín Gult spjald: Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Fyrir að toga í Hákon Sófusson
73. mín
Brynjar Jónsson bjarsýnn á því og tekur skot lengst utan af velli sem fer hátt yfir
70. mín
Stórhættuleg aukaspyrna frá Viktori Erni en Rajko ver vel í markinu
68. mín
Inn:Ingvar Ásbjörn Ingvarsson (Fjarðabyggð) Út:Hafþór Þrastarson (Fjarðabyggð)
Þrjár skiptingar á sama tíma
68. mín
Inn:Ólafur Aron Pétursson (KA) Út:Archie Nkumu (KA)
67. mín
Inn:Josip Serdarusic (KA) Út:Jóhann Helgason (KA)
65. mín
Nýjasti liðsmaður KA, Josip Serdarusic er að gera sig kláran í að koma inná
63. mín
Flott markvarsla hjá Kile, kemur vel út eftir horn og lokar á Ævar
61. mín
KA-menn í fínni stöðu en Ævar of lengi á boltanum og sóknin rennur út í sandinn
59. mín
Rajko við það að missa boltann eftir hornspyrnu, heimamenn ná þó að koma boltanum í burtu
56. mín
Viðar Þór sleppur í gegn en er dæmdur rangstæður
52. mín
Andri Þór í vandræðum með að hreinsa boltann. Vindurinn að þvælast fyrir honum en gestirnir leika á móti vindi í seinni hálfleik
50. mín
Ævar og Elfar hafa náð gríðarlega vel saman í sumar!
49. mín MARK!
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Stoðsending: Ævar Ingi Jóhannesson
Annað markið er komið!!!

Ævar gerir mjög vel í að komast upp að endamörkum og sendir boltann inní teiginn. Elfar Árni sýnir flotta takta, nær seinni boltanum og boltinn endar í netinu
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný. Engar breytingar sjáanlegar á liðunum
45. mín
Liðin eru að koma sér inná aftur. Seinni hálfleikurinn fer að bresta á
45. mín
Hálfleikur
Guðmundur Ársæll flautar hér til háfleiks. Ekki mikill munur á liðunum, bæði lið fengið færi en mark Ben Everson á 15.mínútu er það sem skilur að
41. mín
VÁÁ þarna voru KA-menn heppnir. Mikið klafs í teignum endar með skoti í slánna frá Viðari Þór. Boltinn berst síðan aftur inn í teig þar sem Rajko ver með andlitinu frá markteig
32. mín
Skotið frá Jóa fer yfir markið
32. mín Gult spjald: Hafþór Þrastarson (Fjarðabyggð)
Heimamenn fá aukapspyrnu Jói stendur yfir boltanum
30. mín
Rajko og Elvar fara upp í skallabolta sem endar í því að Rajko fær aukaspyrnu. Réttur dómur
21. mín
Ben með hörkuskot á markið, Elfar Árni er við það að ná frákastinu en er dæmdur rangstæður
19. mín
Hættuleg sending inn í teig frá Elvari Inga en Hrannar gerir vel í að koma boltanum í burtu
16. mín
Gestirnir fá hornspyrnu sem endar með skoti hátt yfir markið frá Sveini Sæmundssyni
15. mín MARK!
Benjamin James Everson (KA)
Stoðsending: Halldór Hermann Jónsson
MAAAARK. Fyrsta markið er komið. Halldór Herman á sendingu á Ben Eversson sem er fyrir utan teig. Tekur síðan skot í fjær sem fer undir Kile í markinu. Kile átti einfaldlega að verja þennan
12. mín
Viðar Þór á skalla á Brynjar Jónsson sem er í dauðafæri en er dæmdur rangstæður á endanum
8. mín
Elvar Ingi nær skalla en hann fer framhjá markinu
7. mín Gult spjald: Archie Nkumu (KA)
Fjarðabyggð með aukaspyrnu á fínum stað

1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn
Fyrir leik
Aðeins 5 mínútur í að leikurinn hefjist
Fyrir leik
Hvetjum áhorfendur til þess að taka þátt í umræðunni á Twitter með kassamerkinu #fotboltinet
Fyrir leik
Gestirnir gera einnig tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá tapinu gegn Grindavík. Jóhann Ragnar Benediktsson fer út fyrir Hákon Þór Sófusson og Bjarni Mark Antonsson fer út fyrir Viðar Þór Sigurðsson en Bjarni er á láni frá KA og má því ekki spila í dag
Fyrir leik
KA-menn gera tvær breytingar á sínu liði frá jafnteflinu við Fram. Ívar Örn Árnason kemur inn fyrir Hilmar Trausta Eiðsson sem fékk rautt spjald í síðasta leik. Ben Everson kemur síðan inn fyrir Juraj Grizelj
Fyrir leik
Dómari hér í dag er Guðmundur Ársæll Guðmundsson og aðstoðarmenn hans eru þeir Bryngeir Valdimarsson og Sveinn Þórður Þórðarson
Fyrir leik
Þessi lið mættust í Fjarðabyggðarhöllini í annari umferð deildarinnar. Þar fóru KA-menn með 1-0 sigur en Elfar Árni skoraði sigurmarkið á 90.mínútu
Fyrir leik
Bæði lið töpuðu stigum í síðustu umferð. KA-menn gerðu 1-1 jafntefli við Fram á meðan Fjarðabyggð tapaði 0-3 gegn Grindavík
Fyrir leik
Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið í baráttuni um sæti í Pepsi deildinni á næsta ári. Gestirnir að austan eru í 3.sæti með 24 stig en heimamenn í KA eru í því sjötta með 19 stig.

KA-menn verða hreinlega að vinna leikinn ef þeir vilja ekki hellast úr lestinni
Fyrir leik
Verið velkomin í beina textalýsingu frá stórleik KA og Fjarðabyggðar í 13.umferð 1.deildar karla
Byrjunarlið:
20. Kile Gerald Kennedy (m)
6. Stefán Þór Eysteinsson
7. Elvar Ingi Vignisson
9. Brynjar Jónasson
10. Viktor Örn Guðmundsson
11. Andri Þór Magnússon
13. Hákon Þór Sófusson ('83)
16. Nik Chamberlain
18. Viðar Þór Sigurðsson ('83)
20. Sveinn Fannar Sæmundsson
21. Hafþór Þrastarson ('68)

Varamenn:
12. Þorvaldur Marteinn Jónsson (m)
4. Martin Sindri Rosenthal
13. Víkingur Pálmason ('83)
22. Ólafur Örn Eyjólfsson ('83)
25. Ingvar Ásbjörn Ingvarsson ('68)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Hafþór Þrastarson ('32)

Rauð spjöld: