Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fjölnir
2
1
KR
Guðmundur Karl Guðmundsson '5 1-0
1-1 Hólmbert Aron Friðjónsson '56
Mark Charles Magee '77 2-1
05.08.2015  -  19:15
Fjölnisvöllur
Pepsi-deild karla 2015
Aðstæður: Hitamælirinn segir 15°C og það er hægur andvari á annað markið...blæs niður að Grafarvogi frá Korpúlfsstöðum svona fyrir landfræðinga. Völlurinn lítur vel út.
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 1264
Byrjunarlið:
12. Þórður Ingason (m)
Gunnar Már Guðmundsson ('76)
3. Bergsveinn Ólafsson (f)
3. Illugi Þór Gunnarsson
6. Atli Már Þorbergsson
7. Viðar Ari Jónsson
13. Kennie Chopart ('90)
16. Guðmundur Böðvar Guðjónsson
22. Ragnar Leósson ('84)
26. Jonatan Neftali Diez Gonzales
29. Guðmundur Karl Guðmundsson

Varamenn:
7. Birnir Snær Ingason
10. Aron Sigurðarson ('84)
13. Anton Freyr Ársælsson
18. Mark Charles Magee ('76)
19. Arnór Eyvar Ólafsson
28. Hans Viktor Guðmundsson ('90)

Liðsstjórn:
Steinar Örn Gunnarsson

Gul spjöld:
Bergsveinn Ólafsson ('39)
Jonatan Neftali Diez Gonzales ('55)
Guðmundur Böðvar Guðjónsson ('67)
Mark Charles Magee ('81)
Þórður Ingason ('83)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Fjölnismenn stóðu áhlaup KR í lokin af sér með sömu baráttu og einkenndi leik þeirra í fyrri hálfleik.

Sterkur sigur þeirra sog gríðarleg stemming á meðal heimafólks.

Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
93. mín
OFBOÐSLEG LÆTI OG BARÁTTA HERNA!
90. mín
Inn:Hans Viktor Guðmundsson (Fjölnir) Út:Kennie Chopart (Fjölnir)
Chopart búinn að skila sínu.

Uppbót er sögð 4 mínútur.
90. mín
Óskar Örn þrumar yfir eftir enn eitt hornið.
88. mín
Fjölnir lagstir mjög neðarlega KR dæla löngum.

Enn eitt hornið!
84. mín
Inn:Aron Sigurðarson (Fjölnir) Út:Ragnar Leósson (Fjölnir)
83. mín Gult spjald: Þórður Ingason (Fjölnir)
Tafir við markspyrnu
81. mín Gult spjald: Mark Charles Magee (Fjölnir)
Sparkar boltanum í burtu eftir að dæmt var á hann.
77. mín
Þetta verður rætt í kvöld.

Guðmundur Karl sendi í gegn þar sem Chopart var rangstæður og virtist fara á eftir boltanum en hætti því þegar hann sá að Magee var að ná honum.

Sá var allan daginn réttstæður og sendi boltann framhjá Þórði.

Fyrsta sókn heimamanna í seinni hálfleik!
77. mín MARK!
Mark Charles Magee (Fjölnir)
Stoðsending: Guðmundur Karl Guðmundsson
76. mín
Inn:Mark Charles Magee (Fjölnir) Út:Gunnar Már Guðmundsson (Fjölnir)
Gunnar búinn að hlaupa duglega í kvöld.

Magee fær sama verkefnið í kortér.
72. mín
Inn:Gary Martin (KR) Út:Pálmi Rafn Pálmason (KR)
Pálmi prófaði að halda áfram eftir höggið en hættir því.

Schoop fer á miðjuna með Kristni.
67. mín Gult spjald: Guðmundur Böðvar Guðjónsson (Fjölnir)
Brýtur illa á Schoop úti á kanti.
67. mín
Áhorfendur eru 1264 hér í kvöld.
64. mín
Sindri neglir Pálma Rafn í jörðina hér, fór í úthlaup úr aukaspyrnu en hitti höfuð Húsvíkingsins í stað boltans.

Búið var að flagga en Pálmi stendur upp.
63. mín
Sannfæringin í baráttu heimamanna er mun minni en í fyrri hálfleik.
60. mín
Kristinn skýtur hátt yfir utan teigsins.

KR með öll völd á vellinum þessar mínútur.
58. mín
Enn fá KR ingar horn.

Mikil pressa þeirra síðustu mínútur.
57. mín
Inn:Þorsteinn Már Ragnarsson (KR) Út:Almarr Ormarsson (KR)
56. mín MARK!
Hólmbert Aron Friðjónsson (KR)
Límdi þessa aukaspyrnu í varnarveggshornið við stöngina.
55. mín Gult spjald: Jonatan Neftali Diez Gonzales (Fjölnir)
Braut á Schoop utan teigs.

Skotfæri.
54. mín
Gamla debatið.

Fjölnismaður hreinsar horn með hjólhestaspyrnu af pönnunni á Skúla sem fellur og vill víti.

Ekkert flautað.
51. mín Gult spjald: Skúli Jón Friðgeirsson (KR)
Stoppaði skyndisókn á miðjunni.

Skúli búinn að eiga erfitt kvöld hérna í blíðunni.
48. mín
Leiðrétti mig hér.

Frederiksen er hægri bakvörður og Skúli enn í hafsent.
46. mín
Við erum komin af stað hérna á ný.
45. mín
Inn:Sören Frederiksen (KR) Út:Gonzalo Balbi Lorenzo (KR)
Þetta þýðir að Kristinn fer í hafsent og Skúli í hægri bakvörð.

Frederiksen inn á miðjuna.
45. mín
Hálfleikur
Gríðarlega fjörugur leikur hér á ferð.

Fjölnismenn búnir að berjast ofboðslega hér og verðskulda alveg forystuna fyrir það.

Bæði lið fengið færi til að skora umfram glæsimark Guðmundar en enn bara eitt mark.

Núna kaffi og kleina!
44. mín
Óskar Örn með skalla að marki en beint í hendur Þórðar.
43. mín
FRÁBÆR VARSLA!

Óskar Örn vinnur sig í frábært færi á vítapunktinum og neglir á markið en Þórður ver frábærlega út við stöng.
40. mín
Aukaspyrna Hólmberts er beint á Þórð.
39. mín Gult spjald: Bergsveinn Ólafsson (Fjölnir)
ALvöru tækling um fimm metra utan teigs. Hárrétt.

Skotfæri fyrir KR.
37. mín
Bergsveinn rennur og Hólmbert kemst óvænt í gott færi en Gonzaeles bjargar í horn. Númer átta í hornum hjá KR.

Þetta svífur í gegnum allan teiginn án snertingar og í útspark.
35. mín
Hornið hreinsað langt í burtu.
34. mín
Balbi með frábært hlaup og kemst í dauðafæri af vítapunkti en Viðar Ari hendir sér fyrir og bjargar í horn.
33. mín
Enn og aftur skyndisókn Fjölnis og Ragnar kemst í fínt færi en skýtur hátt yfir og framhjá.
32. mín
Skúli Jón í ruglinu, ætlar að skýla boltanum í útspark en Chopart vinnur hann af honum og sendir inn í teig þar sem Gunnar hleður í hjólhestaspyrnutilraun sem tekst ekki. Alvöru færi.
31. mín
Hornið deyr út í sandinn.
30. mín
Flott skyndisókn hjá Fjölni uppúr horni KR endar með flottri reddingu Christiansen í horn.
26. mín
Flott hornspyrna frá Almarri sem fer beint á koll Hólmberts en hann skallar hátt yfir.

Hefði getað gert betur þarna.
23. mín
Chopart og Gunnar Már skipta reglulega um hlutverk og þvílík vinna sem þeir eru að skila.

Hefur þýtt það að uppspil KR hefur verið býsna mikið í háum boltum sem varnarmenn heimamanna ráða vel við.
20. mín
Óskar fellur rétt utan teigs en ekkert dæmt.

Allt þjálfarateymið úr Vesturbænum hoppaði hressilega upp í loft og létu sína skoðun í ljós.
17. mín
KR ingar eru nú komnir ofar á völlinn en Fjölnismenn gefa fá færi á sér, mjög þéttir ennþá og þröngt milli varnar og miðju.
13. mín
Christiansen bjargar í horn eftir mikinn darraðadans í markteignum!

Það endar í höndum Sindra.
12. mín
Gonzales með skot utan teigs eftir fast leikatriði en Sindri handsamar þetta frekar örugglega.
9. mín
Uppstilling KR:

Balbi - Skúli - Christiansen - Gunnar

Kristinn - Pálmi

Almarr - Schoop - Óskar

Hólmbert.
7. mín
Uppstilling Fjölnis:

Atli - Bergsveinn - Gonzalez - Viðar

Ragnar - Guðmundur Böðvar - Illugi - Guðmundur Karl

Chopart

Gunnar Már.

Semsagt 4-4-1-1 eða bara 4-4-2.
7. mín
Hólmbert skallar yfir eftir horn frá hægri.
5. mín MARK!
Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
Stoðsending: Viðar Ari Jónsson
SÆLL!!!

Viðar Ari hendir innkasti í fætur Guðmundar á vítateigslínunni.

Guðmundur fintar sig með framhjá varnarmanni og klínir boltann í fjær.

Þvílíkt mark og GAME ON!
3. mín
DAUÐAFÆRI

Balgi sendir inní, Hólmbert flikkar á fjær þar sem Óskar er einn í markteignum en Þórður ver frábærlega í horn.

Ekkert varð úr því.
1. mín
Leikur hafinn
Við erum komin af stað.
Fyrir leik
Leikur hafinn
Fjölnir vinna uppkastið og ákveða að hefja leik undan golunni.

Það þýðir að KR mun eiga upphafsspyrnuna.
Fyrir leik
Gunnar Már Guðmundsson fær hér verðlaunaskjöld og blómvönd en hann hefur nú leikið 200 leiki fyrir Fjölni.

Enda annað nafn stráksins Hr. Fjölnir.
Fyrir leik
Og þá loksins láta liðin sjá þig. Klukkan er nú 19:15 svo að við verðum seinna af stað en ætlað var.

Fyrir leik
Við erum komin í replay á inngöngumarsi!

Eitthvað hlýtur að hafa komið uppá hér....
Fyrir leik
Leikmenn láta bíða eftir sér.

Gæti orðið replay á introlaginu svei mér þá...erum í loka-chorusnum!
Fyrir leik
Flöggin virðast hreyfast hraðar en þegar ykkar þjónn mætti hér í stólinn, vindurinn gæti alveg haft einhver áhrif á þennan leik.
Fyrir leik
Spennan er að magnast hér, leikmenn týnast inn í klefann.
Fyrir leik
Við vitum svosem stöðu liðanna í deildinni en helsti munurinn virðist á varnarleiknum.

KR hafa skorað 21 og fengið á sig 11 á meðan að Fjölnir hafa skorað 19 en fengið á sig 18.

Það ætti að segja okkur að til að Fjölnir fái eitthvað úr leiknum þurfi vörnin að skila betra verki en áður. Þetta eru svokölluð "Geimvísindi" í mínu boði!
Fyrir leik
KR spila fimm á fimm í upphitun.

Fjölnir er í sparka á milli. Týnist í stúkuna, en það eru ennþá laus sæti sko!!!
Fyrir leik
Músíkin er íslenskir slagarar.

Nú hljómar Skímó...enda Grafarvogurinn hálfpartinn Selfoss Reykjavíkur...sannkölluð hnakkabygggð!
Fyrir leik
Allt á fullu í upphituninni. Boltarnir enn fjarri byrjunarliðum, hinar sívinsælu boltalausu upphitunaræfingar í fullum gangi.

Nema hjá markmönnunum, þeir fá alltaf að vera með bolta.

Auðvitað!
Fyrir leik
Fjarvera Þóris hjá heimamönnum mun kalla á taktískar tilfærslur.

Gárungarnir í bláu Hummelpeysunum telja það vera líklegast að Gunnar Már muni verða fremsti maður Fjölnis. Sjáum til.

Aron Sigurðarson vermir enn bekkinn hjá gulum, líkt og Gary Martin hjá röndóttum.
Fyrir leik
Dómaratríóið er auk Erlends skipað þeim Birki Sigurðssyni og Halldóri Breiðfjörð Jóhannssyni.

Vopnfirðingurinn Jón Sigurjónsson mun fylgjast grannt með störfum þeirra í kvöld.
Fyrir leik
KR-ingar stilla upp sama byrjunarliði og vann ÍBV 4-1 í undanúrslitum bikarsins rétt fyrir Verslunarmannahelgina, Stefán Logi er enn meiddur og ekki í hóp.
Fyrir leik
Fjölnismenn gera tvær breytingar frá síðasta leik sínum. Þórir Guðjóns er utan hóps vegna meiðsla og Arnór Eyvar fer á bekkinn. Í þeirra stað í byrjunarliðið koma Illugi og Atli Már.
Fyrir leik
Velkomin í beina lýsingu frá leik Fjölnis og KR í Pepsideildinni í Grafarvogsblíðunni í byrjun ágúst.
Fyrir leik

Arnar Daði Arnarsson
Fyrir leik
Þegar liðin mættust á KR-vellinum í fyrri umferðinni vann KR sannfærandi 2-0 sigur. Gary Martin og fyrirliðinn Pálmi Rafn Pálmason skoruðu mörkin. Fjölnir hefur einu sinni náð að vinna KR á Íslandsmóti en sá leikur kom 2008.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Klukkutíma fyrir leik verða byrjunarliðin opinberuð. Spennandi verður að sjá hvort markvörðurinn Stefán Logi Magnússon sé kominn aftur eftir meiðsli og einnig verður spennandi að sjá hvernig sóknarlína KR verður skipuð.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Þetta er leikur í 14. umferð Pepsi-deildarinnar. KR er með 27 stig við hlið FH á toppi deildarinnar en Hafnarfjarðarliðið er að fara að mæta Val á sama tíma. Fjölnir er í fimmta sæti með 20 stig og sjálfstraustið er væntanlega í hæstu hæðum eftir 4-0 útisigur gegn Fylki í síðustu umferð.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Góða kvöldið! Verslunarmannahelgarfrí að baki og framundan er leikur Fjölnis og KR á KR-vellinum. Málarameistarinn Erlendur Eiríksson dæmir leikinn í kvöld en aðstoðardómarar verða Birkir Sigurðarson og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
13. Sindri Snær Jensson (m)
Pálmi Rafn Pálmason ('72)
3. Rasmus Christiansen
4. Gonzalo Balbi Lorenzo ('45)
6. Gunnar Þór Gunnarsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
9. Hólmbert Aron Friðjónsson
11. Almarr Ormarsson ('57)
16. Kristinn Jóhannes Magnússon
20. Jacob Toppel Schoop
22. Óskar Örn Hauksson (f)

Varamenn:
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
7. Gary Martin ('72)
8. Þorsteinn Már Ragnarsson ('57)
8. Jónas Guðni Sævarsson
12. Hörður Fannar Björgvinsson
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Sören Frederiksen ('45)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Skúli Jón Friðgeirsson ('51)

Rauð spjöld: