Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Þór/KA
2
0
KR
Sandra María Jessen '22 1-0
Sigrún Birta Kristinsdóttir '67
Sandra María Jessen '80 2-0
Klara Lindberg '85 , misnotað víti 2-0
11.08.2015  -  18:00
Þórsvöllur
Pepsi-deild kvenna 2015
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
1. Roxanne Kimberly Barker (m)
Silvía Rán Sigurðardóttir ('45)
Ágústa Kristinsdóttir
2. Gígja Valgerður Harðardóttir
4. Karen Nóadóttir
6. Kayla June Grimsley
8. Lára Einarsdóttir
9. Klara Lindberg ('89)
10. Sandra María Jessen (f)
17. Sarah M. Miller ('45)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
3. Sara Skaptadóttir
10. Anna Rakel Pétursdóttir ('45)
16. Oddný Karólína Hafsteinsdóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir

Liðsstjórn:
Ragnhildur I. Aðalbjargardóttir

Gul spjöld:
Sandra María Jessen ('77)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sanngjarn sigur staðreynd. Hefði hæglega getað verið stærri!
93. mín
Ragnhildur Inga ekki langt frá því að skora þriðja markið, setti boltann í hliðarnetið úr þröngu færi.
89. mín
Inn:Ragnhildur I. Aðalbjargardóttir (Þór/KA) Út:Klara Lindberg (Þór/KA)
88. mín
Mikið klafs inni í teig heimakvenna en þær ná að hreinsa að lokum.
86. mín
Sandra María hefði getað fullkomnað þrennuna ef hún hefði fengið að taka vítaspyrnuna. Greinilegt að Klara er vítaskytta númer 1 þó hún hafi ekki beint sýnt það með þessari spyrnu.
85. mín Misnotað víti!
Klara Lindberg (Þór/KA)
Agnes ver ömurlega spyrnu Klöru. Þvílíkt kæruleysi.
84. mín Gult spjald: Agnes Þóra Árnadóttir (KR)
Víti!! Agnes fellir Klöru Lindberg og fær gult spjald.
80. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Kayla June Grimsley
Frábært mark! Kayla geystist upp með boltann, gaf fullkomna stungusendingu inn á Söndru sem átti ekki í neinum vandræðum með að fara framhá Agnesi og setja boltann í autt markið.
77. mín Gult spjald: Sandra María Jessen (Þór/KA)
Fyrir strauja Agnesi markmann eftir að hún sparkaði fram.
76. mín
Klara Lindberg með skalla í stöngina eftir fyrirgjöf Kaylu Grimsley! Hvernig er staðan ennþá bara 1-0?
73. mín
Klara stekkur hæst í teignum eftir hornið og skallar boltann rétt framhjá markinu.
73. mín
Hörkuskot frá Klöru Lindberg sem Agnes rétt nær að blaka yfir þverslánna.
71. mín
Inn:Kelsey Loupee (KR) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (KR)
71. mín
Sandra enn og aftur í dauðafæri eftir sendingu frá Kaylu. Nú setur hún boltann framhjá.
69. mín
Bojana með auakspyrnu við miðlínu, langur bolti inn á markteig þar sem Chelsea Leiva er, hún nær að pota í boltann en Roxanne með stórkostlega markvörslu!
67. mín Rautt spjald: Sigrún Birta Kristinsdóttir (KR)
Sigrún Birta fær beint rautt fyrir að segja eitthvað við Sigurð sem honum líkaði ekki!
62. mín
Inn:Bojana Besic (KR) Út:Sara Lissy Chontosh (KR)
61. mín
Inn:Chelsea A. Leiva (KR) Út:Jóhanna K Sigurþórsdóttir (KR)
58. mín Gult spjald: Sara Lissy Chontosh (KR)
Braut á Kaylu sem var alls ekki sátt.
56. mín
Sigurður Hjörtur dæmir hér brot á Sigrúnu Birtu sem lét hann heldur betur heyra það, sýndist þetta vera réttur dómur samt sem áður.
53. mín
Margrét María með hörkuskot rétt framhjá marki heimakvenna! KR-liðið er mun betur stillt núna en í fyrri hálfleik.
50. mín
Sandra María slapp inn fyrir og var í fínu færi með boltann boppandi fyrir framan sig, en sett boltann framhjá.
48. mín
Arna Dís með flott hlaup og gott skot sem fer í stöngina og aftur fyrir!
45. mín
Inn:Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) Út:Sarah M. Miller (Þór/KA)
45. mín
Inn:Anna Rakel Pétursdóttir (Þór/KA) Út:Silvía Rán Sigurðardóttir (Þór/KA)
45. mín
Seinni hálfleikur er hafinn á ný. Sýnist Þór/KA vera að gera tvær breytingar.
45. mín
Stórar fréttir hér fyrir norðan voru að berast. Bjarni Jóhannsson þjálfari karlaliðs KA er hættur og aðstoðarþjálfari hans, Túfa, stýrir liðinu út tímabilið.
45. mín
Hálfleikur
Sigurður bætir engu við þennan tíðindalitla fyrri hálfleik.
42. mín
Ágætis tilraun frá Kaylu Grimsley. Skot utan teigs en hátt yfir markið.
38. mín
Enn er ekkert í gangi hér á Þórsvelli, bæði lið virðast hálf áhugalaus.
31. mín
Lítið í gangi þessa stundina.
25. mín
Sigríður María á hér fyrsta skot KR á markið. Slakt skot sem Roxanne ver.
22. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Kayla June Grimsley
Kayla setur Söndru í gegn. Hún setur boltann undir Agnesi í marki KR. Finnst ég hafa séð þessa uppskrift að sókn áður í leiknum.
22. mín
VÁ! Sandra María og Kayla Grimsley fóru í skyndisókn, spiluðu sig í gegnum alla vörn KR en Sandra endaði á að skjóta framhjá!
20. mín
Leikurinn hefur róast aðeins eftir fjörugar fyrstu mínutur. KR-stelpurnar aðeins að ná að fóta sig.
12. mín
Frábær undirbúningur Söndru sem setti boltann fyrir markið. Þar var Kayla tilbúin að setja boltann í opið markið en varnarmaður KR nær að setja boltann í horn, frábær varnarleikur! Verð að viðurkenna að ég sá ekki hver það var.
6. mín
Aftur slapp Sandra María ein í gegn!! Nú skýtur hún beint á Agnesi Þóru sem varði auðveldlega. Hún verður að nýta færin sín!
3. mín
Fyrsta dauðafæri leiksins!! Sandra María slapp ein í gegn en hamraði boltanum yfir!
Fyrir leik
Leikur hafinn
KR byrja með boltann og sækja í átt að Boganum.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn. Karen Nóadóttir og Margrét María Hólmarsdóttir fara fyrir liðum sínum.
Fyrir leik
10 mínútur til leiks. Liðin eru á leið til búningsherbergja að græja sig. Ekki margir áhorfendur mættir í stúkuna.
Fyrir leik
Búið er að smella af liðsmynd af Þór/KA liðinu svo nú geta þær hafið upphitun.
Fyrir leik
KR-liðið er komið út á völl að hita en Þórs/KA stelpurnar hvergi sjáanlegar. You'll never walk alone er í gangi á fóninum á meðan.
Fyrir leik
Byrjunarliðin ættu að birtast hér til hliðar rétt bráðum.
Fyrir leik
Dómarinn í dag er Sigurður Hjörtur Þrastarson og honum til aðstoðar eru Halldór Vilhelm Svavarsson og Marinó Steinn Þorsteinsson. Eftirlitsmaður er Tryggvi Þór Gunnarsson.
Fyrir leik
Fyrir leikinn er Þór/KA í 4. sæti deildarinnar með 21 stig en KR í því 8. með 6 stig.
Fyrir leik
Aðstæður í dag eru frábærar. Gott veður og völlurinn lítur frábærlega út.
Fyrir leik
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og KR í 13. umferð Pepsi deildar kvenna.
Byrjunarlið:
1. Agnes Þóra Árnadóttir (m)
Margrét María Hólmarsdóttir
Sigríður María S Sigurðardóttir
4. Oktavía Jóhannsdóttir
5. Sigrún Birta Kristinsdóttir
8. Sara Lissy Chontosh ('62)
11. Ásdís Karen Halldórsdóttir
14. Hulda Ósk Jónsdóttir ('71)
15. Arna Dís Arnþórsdóttir
17. Jóhanna K Sigurþórsdóttir ('61)
18. Íris Ósk Valmundsdóttir

Varamenn:
1. Hrafnhildur Agnarsdóttir (m)
3. Chelsea A. Leiva ('61)
10. Stefanía Pálsdóttir
19. Helena Sævarsdóttir
26. Kelsey Loupee ('71)

Liðsstjórn:
Bojana Besic (Þ)
Hugrún Lilja Ólafsdóttir

Gul spjöld:
Sara Lissy Chontosh ('58)
Agnes Þóra Árnadóttir ('84)

Rauð spjöld:
Sigrún Birta Kristinsdóttir ('67)