Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Þór/KA
0
4
Stjarnan
Ágústa Kristinsdóttir '8 , sjálfsmark 0-1
0-2 Harpa Þorsteinsdóttir '44
0-3 Francielle Manoel Alberto '64
0-4 Rúna Sif Stefánsdóttir '69
25.08.2015  -  18:00
Þórsvöllur
Pepsi-deild kvenna 2015
Dómari: Gunnar Helgason
Byrjunarlið:
1. Roxanne Kimberly Barker (m)
Silvía Rán Sigurðardóttir
Ágústa Kristinsdóttir ('70)
2. Gígja Valgerður Harðardóttir ('80)
4. Karen Nóadóttir
6. Kayla June Grimsley
8. Lára Einarsdóttir
9. Klara Lindberg
10. Sandra María Jessen (f)
17. Sarah M. Miller
21. Lillý Rut Hlynsdóttir ('80)

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Rut Matthíasdóttir
3. Sara Skaptadóttir ('80)
10. Anna Rakel Pétursdóttir ('70)
16. Oddný Karólína Hafsteinsdóttir

Liðsstjórn:
Ragnhildur I. Aðalbjargardóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sanngjarn sigur gestanna staðreynd!
90. mín
Kayla setur Söndru Maríu í gegn, skot hennar fer í varnarmann og boltinn berst á Klöru Lindberg. Hún setur boltann hins vegar himinhátt yfir markið.
88. mín
Þessa stundina eru Stjörnukonur líklegri til að bæta við en heimakonur að minnka muninn.
86. mín
Lára Kristín með stórkostlega sendingu inn á Cate en Roxanne með stórkostlega markvörslu. Þetta var alvöru frá báðum liðum!
80. mín
Inn:Sara Skaptadóttir (Þór/KA) Út:Gígja Valgerður Harðardóttir (Þór/KA)
80. mín
Inn:Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) Út:Lillý Rut Hlynsdóttir (Þór/KA)
Lillý haltrar af velli og sest strax niður við hliðina á varamannabekknum, þar sem sjúkraþjálfari Þórs/KA er að huga að henni.
78. mín
Inn:Björk Gunnarsdóttir (Stjarnan) Út:Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Tvöföld skipting hjá gestunum.
78. mín
Inn:Lára Kristín Pedersen (Stjarnan) Út:Francielle Manoel Alberto (Stjarnan)
72. mín
Klara Lindberg með skalla rétt framhjá eftir horn.
71. mín
Inn:Bryndís Björnsdóttir (Stjarnan) Út:Poliana Barbosa Medeiros (Stjarnan)
70. mín
Inn:Anna Rakel Pétursdóttir (Þór/KA) Út:Ágústa Kristinsdóttir (Þór/KA)
Sylvía dettur þá væntanlega niður í miðvörðinn.
69. mín MARK!
Rúna Sif Stefánsdóttir (Stjarnan)
Þær eru að klára þetta!

Rúna Sif með skot af vítateigshorninu vinstra megin sem fer í fallegum boga í slánna og niður! Marinó Steinn á línunni flaggar og dæmir mark! Ég sá það ekki alveg en er nokkuð viss um að þetta hafi verið rétt ákvörðun.
67. mín
Heimastúlkur eiga hér skyndisókn sem endar með skoti frá Kaylu, sem Sandra ver í horn.

Eins og áður í leiknum verður ekkert úr hornspyrnum Þórs/KA.
64. mín MARK!
Francielle Manoel Alberto (Stjarnan)
Fékk boltann við D-bogann, átti laust skot að marki andstæðingsins sem fór af bakinu á Sylvíu Rán og sveif yfir Roxanne. Heppnisstimpill yfir þessu marki.
63. mín
Sarah Miller á ágætis skot úr þrönguu færi en Sandra ver.
62. mín
Færið hennar Hörpu er það eina markverða sem hefur gerst í þessum seinni hálfleik. Frekar leiðinlegur kafli í gangi.
53. mín
Harpa Þorsteinsdóttir slapp ein í gegn, en Roxanne í marki Þórs/KA greip skot hennar af stuttu færi. Virkilega vel varið.
49. mín
Heimakonur byrja seinni hálfleikinn betur en hafa ekki ennþá náð að ógna marki Stjörnunnar.
45. mín
Leikurinn er hafinn á ný!
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða sanngjarnt!
44. mín MARK!
Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Guðrún Karítas Sigurðardóttir
Virkilega flott sókn! Kemur hár bolti inn á teiginn, Guðrún kassar hann fyrir Hörpu sem kemur á ferðinni og hamrar boltanum upp í nær.
40. mín
Flott sókn og fallegt spil hjá Þór/KA endar með því að Kayla er með boltann boppandi fyrir framan sig á vítateigslínu. Skot hennar hins vegar lélegt og langt framhjá markinu.
39. mín
Þór/KA voru þarna að sleppa í gegn eftir að Karen Nóa vann boltann á miðjunni, en Gunnar Helgason gefur Stjörnunni ódýra aukaspyrnu. Þarna voru þær heppnar!
30. mín
Rúna Sif fékk óvænt boltann á fjær, í fínu færi, en skot hennar yfir markið.
27. mín
Leikurinn hefur aðeins róast. Lítið í gangi þessar mínúturnar.
22. mín
Harpa Þorsteinsdóttir með hörkuskot rétt utan teigs, rétt yfir markið!
9. mín
Sandra María nálægt því að jafna strax! Með fínan sprett, kom sér í mjög góða stöðu en skot hennar framhjá.
8. mín SJÁLFSMARK!
Ágústa Kristinsdóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
Stjarnan átti horn, boltinn lagður út á Ásgerði sem setti boltann fyrir. Þar var Ágústa, sem rak tánna í boltann og inn fór hann. Vel klárað!
3. mín
Nú var það Guðrún Karítas í fínu færi en Roxanne Barker varði vel!
2. mín
Harpa Þorsteinsdóttir fær fyrsta færi leiksins! Ágústa Krsitinsdóttir kemst hins vegar fyrir og Stjörnukonur fá horn!

Ekkert verður þó úr horninu.
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur byrja með boltann og sækja í norðurátt, í átt að Hamri.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn. Karen Nóadóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fara fyrir liðum sínum.
Fyrir leik
Fari það svo að Þór/KA vinni Stjörnuna og Breiðablik vinnur Val eru þær grænklæddu úr Kópavoginum orðnar Íslandsmeistarar!
Fyrir leik
Nú er korter til leiks og allt að verða klárt!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár, þau má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Dómari í kvöld er Gunnar Helgason. Honum til aðstoðar eru Viðar Valdimarsson og Marinó Steinn Þorsteinsson. Eftirlitsmaður er Guðmundur Heiðar Jónsson.
Fyrir leik
Veðrið fyrir norðan er svipað og það hefur verið í allt sumar, norðangola og mjög þungt yfir. Völlurinn lítur hins vegar glæsilega út.
Fyrir leik
Leikurinn er því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði Stjörnuna sérstaklega, því dugir ekkert nema sigur fyrir þær, ætli sér að reyna að halda í við Breiðablik, sem er komið með sjö stiga forskot á toppnum.
Fyrir leik
Liðin sitja í öðru og þriðja sæti deildarinnar fyrir leiki kvöldsins. Stjarnan er í öðru sætinu með 33 stig og Þór/KA í því þriðja með sex stigum minna.
Fyrir leik
Komið þið blessuð og sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Stjörnunnar í Pepsi deild kvenna.
Byrjunarlið:
1. Sandra Sigurðardóttir (m)
Harpa Þorsteinsdóttir ('78)
Ana Victoria Cate
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (f)
9. Kristrún Kristjánsdóttir
11. Guðrún Karítas Sigurðardóttir
15. Rachel S. Pitman
17. Rúna Sif Stefánsdóttir
19. Anna Björk Kristjánsdóttir
21. Francielle Manoel Alberto ('78)
22. Poliana Barbosa Medeiros ('71)

Varamenn:
Theodóra Dís Agnarsdóttir
1. Berglind Hrund Jónasdóttir
4. Björk Gunnarsdóttir ('78)
6. Lára Kristín Pedersen ('78)
24. Bryndís Björnsdóttir ('71)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: