Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fjölnir
0
5
Valur
0-1 Hafsteinn Briem '25
0-2 Andri Fannar Stefánsson '57
0-3 Haukur Páll Sigurðsson '78
0-4 Guðmundur Þór Júlíusson '88
0-5 Indriði Áki Þorláksson '90
02.02.2012  -  21:00
Egilshöll
Reykjavíkurmót karla
Maður leiksins: Þorvaldur Árnason
Byrjunarlið:
3. Bergsveinn Ólafsson (f) ('46)
3. Illugi Þór Gunnarsson ('84)
9. Bjarni Gunnarsson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson

Varamenn:
10. Aron Sigurðarson ('46)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Guðmundur Karl Guðmundsson ('36)
Kolbeinn Kristinsson ('9)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og Fjölnis í Reykjavíkurmóti karla, B riðli. Fyrir leikinn er ljóst að leikurinn skiptir engu máli því Fylkir og Þróttur eru komin uppúr riðlinum eftir 1-1 jafntefli rétt áðan. Valur er í þriðja sæti með eitt stig og Fjölnir stigalaust á botninum eftir að báðir leikir liðsins til þessa, sem báðir enduðu með jafntefli, hafa verið dæmdir þeim tapaðir 0-3 fyrir að nota ólöglegan leikmann.
Fyrir leik
Valur keypti Kristinn Frey Sigurðsson frá Fjölni í vikunni og hann er á meðal varamanna hjá Val geng sínum gömlu félögum í kvöld.
1. mín
Leikurinn er hafinn.
2. mín
Valsmenn fengu aukaspyrnu á vítateigslínunni strax í upphafi leiksins. Rúnar Már S. Sigurjónsson tók spyrnuna en vippaði yfir markið.
9. mín Gult spjald: Kolbeinn Kristinsson (Fjölnir)
Kolbeinn fær áminningu fyrir að brjóta á Þóri Guðjónssyni út við hliðarlínu, nokkuð nærri miðlínu.
11. mín
Illlugi Gunnarsson með fast skot í stöng. Þarna skall hurð nærri hælum hjá Valsmönnum.
13. mín
Enn eru Fjölnismenn líklegri. Nú skaut Otto Marino Ingason í varnarmann Vals í teignum úr góðu færi. Boltinn fór í hönd Valsmannsins en aldrei hægt að dæma víti enda hafði hann höndina alveg upp við líkamann og stóð innan við metra frá Ottó þegar hann skaut.
25. mín MARK!
Hafsteinn Briem (Valur)
Hafsteinn Briem kemur Valsmönnum yfir með skoti úr teignum.
33. mín
Inn:Nesta Matarr Jobe (Valur) Út:Brynjar Kristmundsson (Valur)
Undarleg tíðindi. Brynjar Kristmundsson leikmaður Vals er borinn af velli vegna höfuðmeiðsla. Í hans stað kemur Matarr Jobe, kallaður Nesta. Þar kemur að þessum undarlega punkti í sögunni því Nesta gekk til liðs við Grindavík í vikunni og félagið sendi fjölmiðlum mynd af honum eftir undirskriftina. Nánar að því síðar!
36. mín Gult spjald: Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
Guðmundur Karl fær áminningu fyrir brot úti á miðjum velli.
45. mín
Kolbeinn Kárason skaut framhjá úr fínu færi.
45. mín
Þorvaldur Árnason dómari hefur flautað til hálfleiks. Leikurinn fór nokkrar mínútur framyfir venjulegan leiktíma vegna meiðsla Brynjars Kristmundsonar sem rotaðist í fyrri hálfleik en hefur nú rankað við sér með stórt glóðarauga.
45. mín
Þorvaldur Árnason dómari fer með gamanmál hér í hálfleik. Valsmenn voru í upphitun sem þeir eru farnir að gera í hálfleik og hann fór til Friðriks Ellerts sjúkraþjálfara og spurði hvort það væri í lagi að byrja leikinn eða hvort hann vildi halda áfram.
46. mín
Inn:Ásgeir Þór Magnússon (m) (Valur) Út:Sindri Snær Jensson (Valur)
46. mín
Inn:Aron Sigurðarson (Fjölnir) Út:Egill Gautur Steingrímsson (Fjölnir)
46. mín
Inn:Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur) Út:Rúnar Már Sigurjónsson (Valur)
Kristinn Freyr Sigiurðsson kemur inná í fyrsta leik í búningi Vals eftir að hafa leikið með Fjölni undanfarin ár. Í gríni var kallað Júdas inn á völlinn þegar hann gekk inná en hann hló bara að því.
46. mín
Inn:Viðar Ari Jónsson (Fjölnir) Út:Bergsveinn Ólafsson (Fjölnir)
50. mín Gult spjald: Halldór Kristinn Halldórsson (Valur)
Halldór Kristinn braut á Bjarna Gunnarssyni út við hliðarlínu.
57. mín MARK!
Andri Fannar Stefánsson (Valur)
Andri Fannar bætir öðru marki við fyrir Valsmenn. Hann fékk boltann í teiginn tók vel á móti honum og lagði í markið.
60. mín
Inn:Arnar Sveinn Geirsson (Valur) Út:Kolbeinn Kárason (Valur)
66. mín
Inn:Hjörleifur Þórðarson (Fjölnir) Út:Ottó Marinó Ingason (Fjölnir)
70. mín
Inn:Úlfar Hrafn Pálsson (Valur) Út:Andri Fannar Stefánsson (Valur)
Valsmenn hafa of marga leikmenn á skýrslu og því var nafn Úlfars Hrafns ekki í upptalningunni hjá okkur, kerfið leyfir bara 18. En hann er kominn inná fyrir Andra Fannar Stefánsson.
75. mín
Inn:Hallgrímur Andri Jóhannsson (Fjölnir) Út:Kolbeinn Kristinsson (Fjölnir)
77. mín
Inn:Matthías Guðmundsson (Valur) Út:Ásgeir Þór Ingólfsson (Valur)
78. mín MARK!
Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
Haukur Páll kemur Val í 3-0. Markið skoraði hann með skalla eftir hornspyrnu Kristins Freys sem nú er búinn að leggja upp mark gegn sínum gömlu félögum.
79. mín
Inn:Guðfinnur Magnússon (Fjölnir) Út:Júlíus Orri Óskarsson (Fjölnir)
Júlíus Orri fer nú af velli. Hann tekur innköst eins og Rory Delap og stóð sig vel í dag. Það var þó hann sem varð þess valdur að Fjölnir endar Reykjavíkurmótið stigalaust því hann var skráður í Björninn í fyrstu tveimur leikjunum og því voru þeir dæmdir liðinu 0-3 tapaðir.
84. mín
Inn:Ágúst Þór Ágústsson (Fjölnir) Út:Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
84. mín
Inn:Indriði Áki Þorláksson (Valur) Út:Hafsteinn Briem (Valur)
88. mín MARK!
Guðmundur Þór Júlíusson (Valur)
Þórir lék upp allan völlinn og fór framhjá öllum Fjölnismönnum, líka Marteini í markinu og lagði boltann svo í tómt markið.
90. mín MARK!
Indriði Áki Þorláksson (Valur)
Indriði Áki, sonur Þorláks Árnasonar þjálfara U17 ára landsliðs kvenna og Íslandsmeistara Stjörnunnar í kvennaflokki skorar hér fimmta mark Vals.
90. mín
Leiknum er lokið með 5-0 sigri Vals sem endar mótið því með fjögur stig í þriðja sæti en Fjölnir í fjórða og neðsta sæti án stiga. Fylkir vann riðilinn og Þróttur endaði í 2. sæti en þau tvö fara í undanúrslit.
Byrjunarlið:
7. Haukur Páll Sigurðsson
23. Andri Fannar Stefánsson ('70)

Varamenn:
10. Kristinn Freyr Sigurðsson ('46)

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson

Gul spjöld:
Halldór Kristinn Halldórsson ('50)

Rauð spjöld: