Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fylkir
3
1
Leiknir R.
Ragnar Bragi Sveinsson '21 1-0
Jóhannes Karl Guðjónsson '27 2-0
Ragnar Bragi Sveinsson '29 , víti 3-0
3-1 Sindri Björnsson '90
20.09.2015  -  16:00
Fylkisvöllur
Pepsi-deild karla 2015
Aðstæður: Svokallað skítaveður, rigning og rok.
Dómari: Valdimar Pálsson
Áhorfendur: 798
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
Kristján Hauksson
2. Ásgeir Eyþórsson
4. Andri Þór Jónsson ('84)
7. Ingimundur Níels Óskarsson ('75)
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f) ('87)
8. Jóhannes Karl Guðjónsson
10. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
10. Andrés Már Jóhannesson
14. Albert Brynjar Ingason (f)
16. Tómas Þorsteinsson

Varamenn:
9. Hákon Ingi Jónsson
11. Kjartan Ágúst Breiðdal
23. Ari Leifsson ('84)
29. Axel Andri Antonsson ('87)
49. Ásgeir Örn Arnþórsson

Liðsstjórn:
Bjarni Þórður Halldórsson
Daði Ólafsson

Gul spjöld:
Ragnar Bragi Sveinsson ('35)
Ingimundur Níels Óskarsson ('53)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Appelsínugulur sigur í Lautinni.
92. mín
Ólafur Íshólm með aðra góða vörslu, blakar skoti frá Hilmari Árna yfir.
90. mín MARK!
Sindri Björnsson (Leiknir R.)
Skorar af stuttu færi og minnkar muninn fyrir Leiknismenn.
89. mín
Ólafur Íshólm með frábæra markvörslu, skot af stuttu færi frá Ólafi Hrannari.
87. mín
Inn:Axel Andri Antonsson (Fylkir) Út:Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Frábær leikur hjá Ragnari, stórkostlegur.
84. mín
Inn:Ari Leifsson (Fylkir) Út:Andri Þór Jónsson (Fylkir)
83. mín
Á einhvern ótrúlegan hátt tekst Leiknismönnum ekki að skora úr dauðafæri sem Sindri Björnsson skapaði, virkilega vel gert hjá honum en slúttið frá Óla Hrannari ekki spes
81. mín
Fylkismenn skora!!! En flögguð rangstaða á Daða.
75. mín
Inn:Daði Ólafsson (Fylkir) Út:Ingimundur Níels Óskarsson (Fylkir)
72. mín
Inn:Daði Bergsson (Leiknir R.) Út:Óttar Bjarni Guðmundsson (Leiknir R.)
Óttar Bjarni er borinn útaf í sjúkrabörum, þetta lítur alls ekki vel út.
71. mín
Óttar Bjarni liggur hér eftir hornspyrnu sem Leiknir áttu, virtist hafa fengið slæmt högg á höfuðið. Skulum vona að þetta sé ekki alvarlegt.
69. mín
3-1 FYRIR VÖLSURUM syngja hress Leiknisljón.
66. mín
Inn:Sindri Björnsson (Leiknir R.) Út:Brynjar Hlöðversson (Leiknir R.)
Brynjar með eina slökustu frammistöðu sumarsins.
66. mín
Jóhannes Karl með frábært skot úr aukaspyrnu en Eyjólfur ver vel.
65. mín
Valur Gunnarsson markmannsþjálfari Leiknis rekinn upp í stúku, mikill hasar í leiknum þessa stundina
64. mín Gult spjald: Brynjar Hlöðversson (Leiknir R.)
63. mín Gult spjald: Eiríkur Ingi Magnússon (Leiknir R.)
Virkilega svæsin tækling hjá Eiríki, varamannabekkur Fylkis gjörsamlega tjúllast.
62. mín
Ragnar Bragi kemst hér einn í gegn en slúttið alls ekki gott og Eyjólfur ver!!
58. mín
Aukaspyrnan víðsfjarri frá Hilmari Árna.
57. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað sem Leiknismenn eiga, Valdimari var svo mikið í mun að dæma á þetta að hann rann næstum því, getur sjálfum sér um kennt, hann er í gervigras skóm í bleytunni.
53. mín Gult spjald: Ingimundur Níels Óskarsson (Fylkir)
Fyrir að skjóta boltanum burt eftir flaut frá Valdimari.
52. mín
Brynjar Hlöðversson er að eiga vægast sagt skelfilegan leik, hittir hér ekki á mann sem er staddur 3 metrum frá honum og sendir boltann útaf vellinum.
49. mín
Hornspyrna sem Fylkir á.

Tekin stutt og ekkert verður úr henni. Leiknir á innkast neðarlega á vellinum.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn.
45. mín
Inn:Elvar Páll Sigurðsson (Leiknir R.) Út:Kolbeinn Kárason (Leiknir R.)
Skipting hjá Leikni í hálfleik, þessi leikur ekki beint sérstakur hjá Kolbeini.
45. mín
Hálfleikur
Fylkismenn leika á alls oddi.
45. mín
Fylkismenn skora!! En flögguð rangstaða á Ingimund.

42. mín
Kolbeinn Kárason með skæri og leggur boltann vel fyrir sig í skot.... sem fer í innkast. Úff.
38. mín
Eyjólfur Tómasson er gjörsamlega í ruglinu hérna í Lautinni, fær hér laflaust skot á sig frá Ásgeiri Berki, heldur ekki boltanum og við það skapast mikill darraðadans í teignum, boltinn berst út í teiginn á Ragnar Braga sem tekur annað laflaust skot og enn og aftur heldur Eyólfur ekki boltanum og Albert Brynjar hársbreidd frá því að ná frákastinu. Svona á ekki að sjást í efstu deild.
35. mín
Fyrsta almennilega færi Leiknismanna í leiknum, Kolbeinn skýtur boltanum rétt framhjá úr teignum.
35. mín Gult spjald: Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Hefnibrot svokallað, nema á vitlausan mann bara. Tekur Hilmar Árn niður.
34. mín
Eiríkur Ingi virðist hér hreinlega sparka í Ragnar Braga, sá þetta ekki nægilega vel en Ragnar langt frá því að vera sáttur.
32. mín
Birkir Sigurðsson aðstoðardómari fer hér af vellinum til að ná sér í nýtt flagg, svo virðist sem Leiknismenn hafi rifið fyrra flaggið hans í aðdraganda vítisins en Birkir dæmdi það einn og óstuddur.
29. mín Mark úr víti!
Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Fiskaði vítið sjálfur og fer á punktinn og hamrar boltann í vinkilinn.
28. mín Gult spjald: Eyjólfur Tómasson (Leiknir R.)
Fær gult fyrir kjaft í aðdraganda marksins.
28. mín
VÍTASPYRNA SEM FYLKIR Á!!!
28. mín
Það er eitt lið á vellinum, þeir klæðast appelsínugulum treyjum.
27. mín MARK!
Jóhannes Karl Guðjónsson (Fylkir)
ÞAAAAÐ HELD ÉG NÚ, SKOT AF 35 METRA FÆR SEM SYNGUR Í NETINUI!!

En hvað í fjandanum Eyjólfur var að gera í markinu veit sennilega enginn.
24. mín
Það verður fróðlegt að sjá hvernig Leiknismenn svara þessu, þeir einfaldlega VERÐA að vinna þennan leik.
21. mín MARK!
Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
FRÁÁÁÁBÆRLEGA GERT HJÁ RAGNARI.

Þarna verð ég hins vegar að setja spurningamerki við vörn Leiknismanna, það var ekki einn maður sem sýndi minnsta áhuga á því að fara í Ragnar Braga sem tók 3-4 töts í vítateig Leiknis áður en hann kláraði í nærhornið af stuttu færi. Virkilega vel gert hjá Ragnari.
19. mín
Stórhættulegur skalli frá Óla Hrannari sem fór rétt framhjá. Fyrirgjöfin frá Eiríki Inga ekki síðri!
18. mín
Eyjólfur með stórkostlega markvörslu! Ver skot niðrí í fjærhorninu frá Ásgeiri Eyþórssyni sem tók sprett upp allan völlinn.
11. mín
Kolbeinn Kárason með skot sem fer af Kristjáni Hauks og afturfyrir, hornspyrna.
8. mín
Fyrsta skot á mark eiga Leiknismenn. Kristján Páll lætur vaða af 30 metra færi beint í krumlurnar á Óla Íshólm.
4. mín
Ragnar Bragi kominn upp að endamörkum og á bara eftir að senda boltann inní á Albert Brynjar sem var aleinn og óvaldaður inní teig en í stað þess sendir hann beint í Halldór Kristinn sem kemur í veg fyrir að þarna verði mark skorað.
1. mín
Leiknismenn í sínum röndóttu heima treyjum fá vindinn í bakið í fyrri hálfleik, Fylkismenn í sínum appelsínugulu treyjum sækja í átt að íþróttahúsinu.
1. mín
Byrjum þetta partý!
Fyrir leik
Rúmar 10 mínútur í leik, tempóið í lögunum á vellinum farið að aukast, leikmenn farnir inn í klefa aftur og menn eru að veðrast upp.
Fyrir leik
Varamenn Leiknis hita upp í reitabolta, sem væri kannski ekki frásögu færandi nema það að félagarnir Sindri Björnsson og Daði Bergsson eru búnir að vera inní í ca korter.
Fyrir leik
Valdimar Pálsson mun sjá um að flauta þessa veislu í dag, Birkir Sigurðsson og Steinar Berg Sævarsson verða honum til halds og trausts með flögg í hendinni.

Fyrir leik
Fyrsti maður út á völl í rokið og rigninguna, Kjartan Sturluson markmannsþjálfari Fylkis.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár og vægast sagt miklar breytingar á báðum liðum. Hvort það muni borga sig er svo aftur á móti önnur saga.
Fyrir leik
Hvet ykkur eindregið til að taka þátt í umræðum um leikinn á Twitter með því að nota #Fotboltinet.

Fyrir leik
Fylkir hafa ekki unnið leik síðan 5.ágúst þegar þeir unnu ÍBV í Vestmannaeyjum. En það var fyrsti leikur Ásmundar Arnarssonar fyrrverandi þjálfara Fylkis með ÍBV liðið.

Leiknir hafa einmitt ekki heldur unnið fótboltaleik síðan 5.ágúst, en þá unnu þeir Stjörnuna á Leiknisvelli 1-0 með marki frá Halldóri Kristni Halldórssyni.
Fyrir leik
Fyrri leik þessara liða lauk með 1-1 jafntefli á Leiknisvelli þar sem Ólafur Hrannar Kristjánsson fyrirliði Leiknis jafnaði á síðustu andartökum leiksins. Síðustu misseri hefur staðan verið örlítið öðruvísi fyrir Leiknismenn en þeir hafa verið ansi duglegir einmitt að fá á sig mörk á síðustu andartökum leikja undanfarið.
Fyrir leik
Komiði sæl og velkomin í Lautina.

Hér mun fara fram bein textalýsing frá leik Fylkis og Leiknis. Ljóst er að bæði lið eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni, útiliðið þó meira en heimamenn.

Takist Fylki að sigra hér í dag halda þeir sæti sínu í deildinni, sigri Leiknir aftur á móti í dag og ÍBV tapa í Eyjum þá fara þeir upp úr fallsæti, mikið í húfi fyrir bæði lið.
Byrjunarlið:
Óttar Bjarni Guðmundsson ('72)
Eyjólfur Tómasson
Halldór Kristinn Halldórsson
3. Eiríkur Ingi Magnússon
9. Kolbeinn Kárason ('45)
10. Ólafur Hrannar Kristjánsson
10. Fannar Þór Arnarsson
11. Brynjar Hlöðversson ('66)
15. Kristján Páll Jónsson (f)
21. Hilmar Árni Halldórsson
23. Gestur Ingi Harðarson

Varamenn:
1. Arnar Freyr Ólafsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson
19. Danny Schreurs
26. Daði Bergsson ('72)
30. Charley Roussel Fomen
88. Sindri Björnsson ('66)

Liðsstjórn:
Elvar Páll Sigurðsson

Gul spjöld:
Eyjólfur Tómasson ('28)
Eiríkur Ingi Magnússon ('63)
Brynjar Hlöðversson ('64)

Rauð spjöld: