Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Víkingur R.
4
2
Haukar
Viktor Jónsson '11 1-0
Davíð Örn Atlason '27 2-0
Gary Martin '30 3-0
Viktor Jónsson '53 4-0
4-1 Sigurgeir Jónasson '74
4-2 Aron Jóhannsson '75
21.02.2016  -  18:15
Egilshöll
Lengjubikar karla - A deild Riðill 3
Dómari: Valgeir Valgeirsson
Byrjunarlið:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
Stefán Þór Pálsson ('68)
3. Ívar Örn Jónsson
8. Viktor Bjarki Arnarsson
9. Viktor Jónsson ('61)
10. Gary Martin
14. Jökull Þorri Sverrisson
21. Arnþór Ingi Kristinsson ('45)
22. Alan Lowing
24. Davíð Örn Atlason ('53)
26. Valdimar Ingi Jónsson ('84)

Varamenn:
7. Erlingur Agnarsson ('68)
12. Kristófer Karl Jensson
15. Andri Rúnar Bjarnason ('61)
15. Steinar Ísaksson ('45)
19. Stefán Bjarni Hjaltested ('53)

Liðsstjórn:
Georg Bjarnason

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sanngjarn og góður sigur Víkinga í skemmtilegum leik.
87. mín
Hornspyrna endar í löppunum hjá Erlingi Agnarsyni sem er í frábæru færi en skotið hans fer yfir markið.
86. mín
Viktor Bjarki á þvílíkt skot af löngu færi sem hafnar í stönginni. Þetta hefði verið rosalegt mark.
85. mín
Gylfi Steinn á mjög fína fyrirgjöf á kollinn á Gunnar Jökul en skalli hans hittir ekki markið. Það hefði verið eitthvað að fá Haukamark þarna.
84. mín
Inn:Georg Bjarnason (Víkingur R.) Út:Valdimar Ingi Jónsson (Víkingur R.)
81. mín
Inn:Jóakim Jóhannsson (Haukar) Út:Alexander Helgason (Haukar)
78. mín
Full lítið, full seint fyrir Hauka virðist vera.
75. mín MARK!
Aron Jóhannsson (Haukar)
MAAAAAARK!!

Hvað er í gangi! Aron klárar frábærlega innanfótar utan teigs. Eiga Haukar séns?
74. mín MARK!
Sigurgeir Jónasson (Haukar)
Ég tek það sem ég sagði í síðustu færslu algjörlega til baka.

Sigurgeir gerir vel, fer framhjá tveim og skorar af öryggi.
73. mín
Ansi lítið að gerast akkurat núna. Víkingarnir byrjaðir að slaka á og Haukar búnir að gefast upp.
69. mín
Mikil barátta einkennir leikinn akkurat núna. Lítið um færi og gæði.
68. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Stefán Þór Pálsson (Víkingur R.)
63. mín
Inn:Sigurgeir Jónasson (Haukar) Út:Björgvin Stefánsson (Haukar)
61. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (Víkingur R.) Út:Viktor Jónsson (Víkingur R.)
59. mín
Inn:Lárus Geir Árelíusson (Haukar) Út:Arnar Þór Tómasson (Haukar)
53. mín
Inn:Stefán Bjarni Hjaltested (Víkingur R.) Út:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
53. mín MARK!
Viktor Jónsson (Víkingur R.)
MAAAAAAAAAARK!

Gary Martin kemst í fínt færi en hann sendir boltann á Viktor sem gat ekki annað en skorað. Þeir eru búnir að spila virkilega vel saman í kvöld.
52. mín
Viktor Jónsson kemst einn í gegn, Magnús nær að verja frá honum og Stefán Pálsson klúðrar færinu í kjölfarið á ótrúlegan hátt.
51. mín
Alexander Helgason á skot utan teigs sem fer hátt yfir. Ekki mikil hætta þarna.
50. mín
Mikil barátta í upphafi seinni hálfleiks en engin færi ennþá.
45. mín
Leikurinn er kominn af stað aftur
45. mín
Inn:Steinar Ísaksson (Víkingur R.) Út:Arnþór Ingi Kristinsson (Víkingur R.)
45. mín
Hálfleikur
Víkingarnir mikið betri og forysta þeirra algjörlega verðskulduð.
45. mín
Nú liggja Viktor Bjarki og Alexander Helgason meiddir en þeir virðast báðir ætla að halda áfram.
42. mín
Viktor er sem betur fer staðinn upp og virðist vera í lagi.
41. mín
Viktor Jónsson var tæklaður og hann hefur fundið fyrir þessu og hann liggur eftir. Valgeir dæmdi samt sem áður ekki neitt.
33. mín
Víkingarnir hafa verið mikið mun betri og er þriggja marka forysta algjörlega verðskulduð. Mjög vel spilaður leikur hjá þeim hingað til.
31. mín
Björgvin Stefánsson kemst í fínt færi hinum megin, hann reynir að lyfta boltanum yfir Róbert en hittir ekki markið.
30. mín MARK!
Gary Martin (Víkingur R.)
MAAAAAAAAAAARK!!

Gary er kominn með markið sitt, hornspyrna frá Ívari fer beint á kollinn á honum og inn. Einfalt.
27. mín MARK!
Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
MAAAAAAAAAAAARK!!

Víkingarnir hafa verið mikið betri og eru komnir í verðskuldaða 2-0 forystu. Gary Martin náði fyrirgjöf á Davíð sem gat ekki annað en skorað.
25. mín
Inn:Gylfi Steinn Guðmundsson (Haukar) Út:Birgir Magnús Birgisson (Haukar)
Önnur skipting Hauka vegna meiðsla eftir 25 mín. Ansi vont.
24. mín Gult spjald: Aron Jóhannsson (Haukar)
23. mín
Björgvin Stefánsson vinnur aukaspyrnu rétt utan teigs sem Alexander Helgason tekur en hún fer beint á Róbert Örn.
22. mín
Viktor Bjarki á fínustu fyrirgjöf fyrir markið en Magnús nær til boltans áður en sóknarmenn Víkings geta gert eitthvað.
19. mín
Inn:Daði Snær Ingason (Haukar) Út:Ísak Örn Einarsson (Haukar)
Ísak er meiddur, virðist hafa tognað í læri.
17. mín
Enn og aftur gott færi hjá Viktori, fær góða sendingu frá hægri en Magnús gerir frábærlega í að verja skallann hans í horn.

Bara tímaspursmál hvenær Víkingar skora annað mark.
16. mín
Algjör einstefna hingað til. Viktor Jónsson kemst aftur í fínt færi en nú sér Magnús við honum.
13. mín
Gary Martin er kominn einn gegn Magnúsi sem gerir mjög vel, fer í úthlaup og nær boltanum.
11. mín MARK!
Viktor Jónsson (Víkingur R.)
MAAAAAAAAAAARK!!

Virkilega vel klárað hjá Viktori. Gary Martin á skot í varnarmann, þaðan berst boltinn á Viktor sem slúttar eins og alvöru framherji.
9. mín
Stefán Pálsson í DAUÐAFÆRI, fær mjög góða fyrirgjöf frá hægri en Magnús gerir rosalega vel og nær að verja. Þetta á hann hins vegar klárlega að nýta. Aleinn á markteig.
9. mín
Ívar Örn Jónsson á fyrsta skot leiksins, það er af löngu færi og langt utan af kanti og beint á Magnús í markinu.
8. mín
Viktor Jónsson og Gary Martin hafa heldur betur burði til þess að vera erfiðir fyrir varnir landsins. Við höfum ekki séð mikið frá þeim.
5. mín
Temmilega róleg byrjun á leiknum.
Fyrir leik
Jæja, þá fer þessi leikur að fara af stað. Hvað gerir Gary Martin í sínum fyrsta leik með Víkingum?
Fyrir leik
Já heilir og sælir lesendur góðir. Verið velkomnir í seinni leik dagsins í Lengjubikar karla.
Byrjunarlið:
1. Magnús Kristófer Anderson (m)
3. Ísak Örn Einarsson ('19)
3. Stefnir Stefánsson
12. Gunnar Jökull Johns
13. Aran Nganpanya
16. Birgir Magnús Birgisson ('25)
17. Daníel Snorri Guðlaugsson
21. Alexander Helgason ('81)
22. Björgvin Stefánsson ('63)
22. Aron Jóhannsson (f)
24. Arnar Þór Tómasson ('59)

Varamenn:
10. Daði Snær Ingason ('19)
13. Jóakim Jóhannsson ('81)
13. Viktor Ingi Jónsson
16. Lárus Geir Árelíusson ('59)
17. Gylfi Steinn Guðmundsson ('25)
19. Sigurgeir Jónasson ('63)
22. Alexander Freyr Sindrason

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Aron Jóhannsson ('24)

Rauð spjöld: