Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
FH
2
1
ÍA
Bjarni Þór Viðarsson '41 1-0
Steven Lennon '57
1-1 Jón Vilhelm Ákason '83
Atli Viðar Björnsson '87 2-1
08.05.2016  -  19:15
Kaplakrikavöllur
Pepsi-deild karla 2016
Dómari: Valdimar Pálsson
Áhorfendur: 1789
Byrjunarlið:
1. Gunnar Nielsen (m)
Davíð Þór Viðarsson
Bjarni Þór Viðarsson ('72)
5. Bergsveinn Ólafsson
7. Steven Lennon
8. Emil Pálsson
11. Atli Guðnason
20. Kassim Doumbia
22. Jeremy Serwy ('72)
23. Þórarinn Ingi Valdimarsson ('85)
26. Jonathan Hendrickx

Varamenn:
12. Kristján Finnbogi Finnbogason (m)
16. Hörður Ingi Gunnarsson
17. Atli Viðar Björnsson ('85)
18. Kristján Flóki Finnbogason ('72)
21. Böðvar Böðvarsson ('72)
21. Grétar Snær Gunnarsson
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Atli Guðnason ('22)
Emil Pálsson ('66)
Kristján Flóki Finnbogason ('83)

Rauð spjöld:
Steven Lennon ('57)
Leik lokið!
Leiknum er lokið með sanngjörnum sigri FH. Skýrsla og viðtöl á leiðinni.

91. mín
Það eru 4 mínútum bætt við venjulegan leiktíma.
90. mín Gult spjald: Albert Hafsteinsson (ÍA)
87. mín MARK!
Atli Viðar Björnsson (FH)
MAAAARRRKKKKK!!!! Hver annar en ATLI VIÐAR BJÖRNSSON skorar markið! Boltinn barst til hans inn í teig ÍA og Atli þrumaði honum í átt að marki og boltinn fór af varnamanni í og í netið. Ótrúlegur þessi drengur.
86. mín
Jöfnunarmark ÍA var furðulegt. Gunnar Nielsen virðist missa af boltanum eftir árekstur við samherja og skoraði Jón Vilhelm í autt markið.
85. mín
Inn:Atli Viðar Björnsson (FH) Út:Þórarinn Ingi Valdimarsson (FH)
Marka-Atli kemur hér inn á.
83. mín Gult spjald: Kristján Flóki Finnbogason (FH)
83. mín MARK!
Jón Vilhelm Ákason (ÍA)
MAAAARRRKKKK!!!! Jón Vilhelm Ákason sem kom inn á fyrir nokkrum mínútum hefur heldur betur látið til sín taka. Fengið gult spjald sem og skorað mark. Algjörlega gegn gangi leiksins en það er ekki spurt að því.
82. mín
Hér fyrir ofan í textalýsingunni er hægt að sjá myndir frá Hafliða Breiðfjörð sem sýna tæklinguna sem Steven Lennon fór í og varð þess valdandi að hann fékk rauða spjaldið.
80. mín Gult spjald: Jón Vilhelm Ákason (ÍA)
75. mín
Skagamenn eru búnir að færa sig framar á völlinn og ætla að freista þess að ná jöfnunarmarkinu.
73. mín
Inn:Ásgeir Marteinsson (ÍA) Út:Martin Hummervoll (ÍA)
Martin Hummervoll hefur ekki sýnt mikið hér í dag.
73. mín
Tvöfaldar skiptingar hjá báðum liðum hér með stuttu millibili.
72. mín
Inn:Böðvar Böðvarsson (FH) Út:Jeremy Serwy (FH)
72. mín
Inn:Kristján Flóki Finnbogason (FH) Út:Bjarni Þór Viðarsson (FH)
69. mín
Inn:Ólafur Valur Valdimarsson (ÍA) Út:Eggert Kári Karlsson (ÍA)
69. mín
Inn:Jón Vilhelm Ákason (ÍA) Út:Steinar Þorsteinsson (ÍA)
69. mín
Darren Lough með fyrsta skot ÍA á mark FH í dag! Það gerist þegar 21 mínútur eru eftir af leiknum. Ágætisskot sem Gunnar varði vel.
66. mín Gult spjald: Emil Pálsson (FH)
64. mín
Skagamenn eru eins og fram hefur komið manni fleirri á vellinum en það er ekki að sjá. Sendingar þeirra eru slakara manna á milli og ekki neitt einasta bit í sóknarleiknum þeirra.

59. mín
Steinar er kominn aftur inn á og Skagamenn eru orðnir manni fleiri á vellinum. Munu þeir nýta sér það?
57. mín Rautt spjald: Steven Lennon (FH)
Steven Lennon fær rautt spjald fyrir rosalega ljótt brot á Steinari Þorsteinssyni sem þarf að fara af velli til aðhlynningar. Brotið var ljótt og rauða spjaldið vel skiljanlegt.
56. mín
Þetta var rosalega ljótt brot. Steven Lennon fór með fótinn út í Steinar Þorsteinsson sem liggur sárþjáður eftir.
52. mín
Heimamenn byrja seinni hálfleikinn af sama krafti og þeir enduðu þann fyrri. Skagamenn eru enn meira og minna á sínum vallarhelming. Er ekki að sjá að þeir skori mark eða mörk í dag.
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný

45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur kominn. Við fáum okkur kaffi og kók og jafnvel pizzu.
44. mín
Það er það sem ég er búinn að segja allan leikinn að FH eru búnir að vera sterkari og liggja á ÍA sem eru mjög aftarlega á vellinum. Það fór því sem fór að FH skoraði. Eru þeir búnir að brjóta varnarmúrinn eða munu Skagamenn eflast við þetta og breyta leikstílnum.
41. mín MARK!
Bjarni Þór Viðarsson (FH)
Stoðsending: Atli Guðnason
MAAAARRRRKKKKK!!!! Bjarni Þór skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá AG. Vel gert FH
39. mín
Steven Lennon var kominn inn í teig ÍA og varði Árni vel frá honum en Lennon fékk boltann aftur og það varð mikill hamagangur í teig ÍA sem endaði með því að boltinn fór út af.
38. mín
Þótt að FH séu búnir að vera sterkari og eiga fleiri sóknir að þá finnst mér ekki eins og þeir séu að fara að skora. Varnarmúr Skagamanna er mjög þéttur og eru þeir allir sem einn að berjast fyrir liðið.
33. mín
FH með sjöundu hornspyrnu sína í leiknum.
32. mín
FH er búið að vera sterkara liðið og líklegra en Skagamenn eru afskaplega þéttir fyrir og gefa fá færi á sér.
24. mín
Þriðja hornspyrna FH í leiknum.
22. mín Gult spjald: Atli Guðnason (FH)
21. mín
Emil Pálsson með skot að marki ÍA sem Árni Snær kýlir yfir. FH að þyngja sóknir sínar.
17. mín
Gæðin eru meiri FH megin, það sýnist mér vera nokkuð augljóst. En þrátt fyrir það eru þeir ekkert að nýta sér það. Ekkert mikið að gerast hérna í Krikanum eins og er.
14. mín
Lélegur endir á fyrstu sókn Skagamanna sem heitið getur. ÞÞÞ var með boltann fyrir utan teig FH og átti kost á senda fyrirgjöf inn í teiginn en í stað hans fór skotið eða sendingin yfir mark FH.
10. mín
Skagamenn eru þéttir fyrir og liggja aftarlega og ætla að beita skyndisóknum. Það getur verið hætturlegur leikur á móti jafn sterku liði og FH
7. mín
FH-ingar fengu hornspyrnu, þá fyrstu í leiknum en það varð ekkert úr henni.
4. mín
Þarna voru FH heppnir. Gunnar Nielsen kom út í skógarhlaup og ætlaði að skalla boltann en boltinn fór yfir hann. Hann var kominn langt út úr teignum en það var þeim til happs að það var enginn Skagamaður klár í að nýta sér þessi mistök
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn og spila skagamenn í átt að Garðabæ á meðan FH spilar í átt að miðbæ Hafnarfjarðar. Skagamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Atli Guðnason fær afhentan blómvönd frá félaginu í tilefni þess að leikur hans á móti Þrótti var sá tvöhundraðasti fyrir félagið.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á iðagrænan völlinn. Þetta er að bresta á!
Fyrir leik
10 mínútur í leik og stúkan er orðin vel setin sem er gott. Alltaf gaman þegar áhorfendur mæta tímalega til að styðja sín lið.

Fyrir leik
Friðrik Dór sem er vallarþulur og sérlegur tónlistarstjóri í krikanum er búinn að vera duglegur við að blasta heitustu og nýjustu tónlistinni. Nú ómar Aron Can í græjunum.
Fyrir leik
Það er bjartur og fagur dagur í Hafnarfirði. Sólin skín og völlurinn er iðagrænn og ekki er um gerfigras að ræða. Þetta fer að bresta á. Valdimar Pálsson heldur um flautuna og honum til aðstoðar eru Gunnar Sverrir Gunnarsson og Smári Stefánsson
Fyrir leik
Var að fá það staðfest að Sam Hewson er meiddur. Það hlýtur að vera áfall fyrir Íslandsmeistarana.
Vil hvetja alla Twitter óða áhangendur liðanna til að vera virkir á Twitter á meðan leik stendur og merkja færsluna með hashtagginu fotboltinet. Valdar færslur verða svo birtar á meðan leik stendur.
Fyrir leik
Byrjunarlið liðanna eru dottin inn hér til hliðar.

Jeremy Serwy er í byrjunarliði FH í dag í stað Sam Hewson sem er ekki í hóp. Spurning hvort að hann sé meiddur.

Skagamenn gera tvær breytingar frá leiknum á móti ÍBV. Steinar Þorsteinsson og Eggert Kári Karlsson koma inn en Ólafur Valur Valdimarsson og Jón Vilhem Ákason detta úr liðinu.

Fyrir leik
Skagamönnum er spáð botnbaráttu og jafnvel falli. Fyrsti leikur þeirra í Pepsí deild þetta árið var í samræmi við þá spá en þeir töpuðu illa fyrir ÍBV út í Vestmannaeyjum. Ná Skagamenn að spyrna við fótum í dag eða munu þeir brotna? Í það minnsta er verkefni þeirra hér í dag langt frá því að vera auðvelt.
Fyrir leik
FH er liðið sem flest allir knattspyrnuspekingar þjóðarinnar spá því að verji titilinn. En þeir eru eins og allir vita ríkjandi Íslandsmeistarar. Þeir unnu góðan sigur á Þrótti í fyrstu umferð og koma því væntanlega vel peppaðir inn í þennan leik.
Fyrir leik
Góðan daginn! Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og ÍA sem fram fer á Kaplakrikavelli. Leikurinn hefst kl. 19:15 og eru allar aðstæður upp á 100 til að við fáum fínan fótboltaleik.
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Arnar Már Guðjónsson
Ármann Smári Björnsson
Arnór Snær Guðmundsson
2. Þórður Þorsteinn Þórðarson
7. Martin Hummervoll ('73)
10. Steinar Þorsteinsson ('69)
18. Albert Hafsteinsson
19. Eggert Kári Karlsson ('69)
27. Darren Lough
32. Garðar Gunnlaugsson

Varamenn:
3. Aron Ingi Kristinsson
10. Jón Vilhelm Ákason ('69)
14. Ólafur Valur Valdimarsson ('69)
20. Gylfi Veigar Gylfason
21. Arnór Sigurðsson
23. Ásgeir Marteinsson ('73)

Liðsstjórn:
Páll Gísli Jónsson

Gul spjöld:
Jón Vilhelm Ákason ('80)
Albert Hafsteinsson ('90)

Rauð spjöld: