Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Grindavík
0
2
Fylkir
0-1 Víðir Þorvarðarson '5
0-2 Sito '32
08.06.2016  -  19:15
Grindavíkurvöllur
Borgunarbikar karla 2016
Aðstæður: Smávegis vindur, þungt yfir og blautt.
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Áhorfendur: 186
Byrjunarlið:
13. Hlynur Örn Hlöðversson (m)
Óli Baldur Bjarnason ('59)
Jósef Kristinn Jósefsson
2. Hákon Ívar Ólafsson ('59)
3. Marko Valdimar Stefánsson
3. Edu Cruz
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Gunnar Þorsteinsson (f)
9. Matthías Örn Friðriksson
80. Alexander Veigar Þórarinsson
99. Andri Rúnar Bjarnason

Varamenn:
7. Will Daniels
11. Juanma Ortiz ('59)
24. Björn Berg Bryde
25. Aron Freyr Róbertsson ('59)
29. Anton Helgi Jóhannsson
30. Josiel Alves De Oliveira

Liðsstjórn:
Marinó Axel Helgason

Gul spjöld:
Marko Valdimar Stefánsson ('40)
Matthías Örn Friðriksson ('76)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið!

Fylkismenn eru komnir áfram í bikarnum.

Viðtöl og skýrslan seinna í kvöld.
90. mín
Uppbótartími. Þetta er að klárast hérna.

Fylkir er að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum bikarsins.
87. mín
Ortiz með skalla að marki en máttlaust og Ólafur með allt á hreinu.
85. mín
Inn:Andri Þór Jónsson (Fylkir) Út:Víðir Þorvarðarson (Fylkir)
Báðir markaskorarar Fylkir farnir af velli.
85. mín
Gunnar Þorsteinsson með skot við vítateigslínuna yfir markið.
83. mín
Þetta virðist vera að renna úr greipum Grindavíkur. Þeir þurfa meiri gæði fram á við til að ná að minnka muninn.
81. mín
Marko er staðin upp og er kominn aftur inná.
80. mín
Marko Valdimar liggur eftir og þarf aðhlynningu.
77. mín
Inn:Ingimundur Níels Óskarsson (Fylkir) Út:Sito (Fylkir)
76. mín Gult spjald: Matthías Örn Friðriksson (Grindavík)
73. mín
Inn:Oddur Ingi Guðmundsson (Fylkir) Út:Garðar Jóhannsson (Fylkir)
Fyrsta skipting Fylkis í leiknum.
72. mín
Andri Rúnar með fína spyrnu en Ólafur með allt á hreinu í markinu og blakar boltanum aftur fyrir og í horn.
70. mín
Alexander Veigar með skot utan teigs en beint í fjærstöngina!!!

Grindvíkingar halda pressunni áfram og Alexander fær aukaspyrnu meter fyrir utan teig!
68. mín
Matthías Örn með skot utan teigs en beint á Ólaf Íshólm í markinu. Auðvelt.
66. mín
Varamaðurinn, Juan Ortiz Jimenez með skot utan teigs en vel framhjá.
65. mín
Það er skarð fyrir skyldi hjá Grindvíkingum að Magnús Björgvinsson er ekki með þeim í kvöld.
59. mín
Inn:Aron Freyr Róbertsson (Grindavík) Út:Óli Baldur Bjarnason (Grindavík)
59. mín
Inn:Juanma Ortiz (Grindavík) Út:Hákon Ívar Ólafsson (Grindavík)
57. mín
Ragnar Bragi í ágætisfæri en skot hans framhjá markinu. Hefði getað gert betur þarna.
57. mín
Grindvíkingar undirbúa tvöfalda skiptingu.
54. mín
Úff!

Víðir með hörkuskot utan teigs sem fer rétt framhjá fjærstönginni. Þetta var fínasta tilraun frá Eyjapeyjanum!
53. mín
Vert að minnast á það að Ragnar Bragi ber fyrirliðabandið hjá Fylki í kvöld, í fjarveru Ásgeirs Barkar.
52. mín
Hornspyrnan frá Sito slök og fremsti varnarmaður Grindavíkur skallar boltann frá.
51. mín
Fylkir fær fyrstu hornspyrnu seinni hálfleiksins.
50. mín
Þetta byrjar rólega hér, seinni hálfleikurinn. Bæði lið að reyna hvað þau geta en gengur lítið.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er byrjaður.

45. mín
Hálfleikur
Gunnar Jarl flautar til hálfleiks.

Gestirnir leiða með tveimur mörkum 2-0 þegar gengið er til búningsherbergja.

Grindvíkingar hljóta að vera hundsvekktir með stöðuna í leiknum. Fylkismenn hafa hinsvegar nýtt sínar sóknir vel.
44. mín Gult spjald: Emil Ásmundsson (Fylkir)
Fer aftan í Andra Rúnar.
41. mín
Sito með aukaspyrnu sem Hlynur Örn ver í horn. Hann fór öruggu leiðina og sló hann í horn í stað þess að halda boltanum.
40. mín Gult spjald: Marko Valdimar Stefánsson (Grindavík)
Fyrsta spjald leiksins. Brot á miðjum vallarhelmingi Grindavíkur.
38. mín
Það hefur rignt rækilega á meðan leik stendur og það farið að hvessa meira ef eitthvað er.
32. mín MARK!
Sito (Fylkir)
FYLKIR TVÖFALDAR FORYSTU SÍNA!

Sito skorar með skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri. Marko rétt missti af boltanum og því fór sem fór.

Þetta er ótrúleg staða miðað við gang mála í leiknum. En það er ekki spurt að því!
31. mín
Eftir hornspyrnu á Emil Ásmunds. fína tilraun að marki Grindavíkur en skotið hárfínt framhjá fjærstönginni.
27. mín
STANGARSKOT!

Alexander Veigar með hornspyrnu. Eftir mikið klafs innan teigs nær Jósef Kristinn skoti framhjá líklega svona fjórum Fylkismönnum og í fjærstöngina fór boltinn.

Grindvíkingar hafa sótt talsvert meira en Fylkir síðustu mínútur!
26. mín
Grindvíkingar fá hornspyrnu.

Hákon Ívar reynir fyrirgjöf sem Ásgeir Eyþórs skutlar sér í og afturfyrir fer boltinn.
22. mín
GRINDVÍKINGAR Í GÓÐU FÆRI!

Alexander Veigar fær háan bolta inn í teig, á í mikilli baráttu við varnarmann Fylkis, snýr sér við og reynir skot á markið. Boltinn endar hinsvegar á Hákoni Ívari innan markteigs en hann er dæmdur rangstæður.

Grindvíkingar vildu fá víti. Þeir vildu meina að brotið hafi verið á Alexander innan teigs þegar hann var í barningnum við varnarmann Fylkis.
19. mín
Jósef Kristinn tekur hornspyrnu fyrir heimamenn, boltinn dettur fyrir fætur Marko en skot hans er varið af varnarmanni Fylkis.

Grindvíkingar halda pressunni áfram og uppskera aðra hornspyrnu.
19. mín
Ásgeir Börkur er skráður sem aðstoðarþjálfari Fylkis í kvöld. Mér sýnist hann standa út á boðvangnum og tekur virkan þátt í leiknum utan vallar.
17. mín
Andri Rúnar reynir að leika á varnarmann Fylkis fyrir utan teig en fellur við. Ekkert dæmt. Hárrétt hjá Gunnari Jarli dómara, það var ekkert á þetta.
12. mín
HVERNIG VAR ÞESSI EKKI INNI?

Víðir með fyrirgjöf frá hægri og Sito kemur á fleygiferð og teygir sig í boltann. Boltinn fer hinsvegar í þverslánna og yfir. Sito var ekki mikið meira en svona 69 cm frá markinu þegar hann náði snertingunni. Þetta var ótrúlegt!
11. mín
Matthías Örn með fyrsta skot Grindavíkur á markið en beint á Ólaf Íshólm.

Eftir aukaspyrnu frá Jósef Kristni þá datt boltinn fyrir fætur Matthíasar en skotið laust.
10. mín
Ragnar Bragi komin í fína stöðu til að skjóta á markið innan vítateigs Grindavíkur en rennur síðan og dettur. Óheppinn.
8. mín
Þetta var fyrsta færi leiksins og heldur betur skellur fyrir heimamenn að byrja þetta svona.
5. mín MARK!
Víðir Þorvarðarson (Fylkir)
Stoðsending: Ragnar Bragi Sveinsson
MAAAARK!

Gestirnir eru ekki lengi að þessu!

Ragnar Bragi á skot innan teigs sem virðist vera rúlla framhjá. Víðir nýtir sér það og kemur á fleygiferð og stýrir boltanum yfir marklínuna af stuttu færi. Þetta var ekki flókið!
3. mín
Fylkir:
Ólafur Íshólm í markinu.
Ásgeir Örn - Tonci - Ásgeir Eyþórs. - Tómas Joð
Víðir - Emil Ásmunds. - Elís Rafn - Ragnar Bragi
Garðar Jó. - Sito
2. mín
Grindavík er að spila 4-4-2:
Hlynur Örn í markinu.
Jósef Kristinn - Cruz - Marko - Matthías Örn
Hákon Ívar - Gunnar Þorsteins. - Rodrigo Gomes - Óli Baldur
Alexander Veigar - Andri Rúnar
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er byrjaður.

Fylkir leikur í hvítum búningum.
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl. Það er ansi fámennt í stúkunni, það verður bara að segjast.
Fyrir leik
Það verður að viðurkennast að veðrið hér í Grindavík er ekki alveg jafn sexy og veðrið á höfuðborgasvæðinu síðustu daga.

Það hvessir vel og síðan er ansi þungt yfir, smávegis regn.
Fyrir leik
Fyrirliði Grindavíkur, Ásgeir Þór Ingólfsson er enn fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Fyrir leik
Það verður að teljast athyglisvert að það er enginn Albert Brynjar í leikmannahóp Fylkis í kvöld. Hann hefur skorað 75% marka Fylkir í Pepsi-deildinni í ár.
Fyrir leik
Dómari leiksins er af dýrari gerðinni og að margra mati besti dómari landsins, Gunnar Jarl Jónsson.
Minni á að það er hægt að taka þátt í umræðunni um leikinn á Twitter undir kassamerkinu fotboltinet.

#Fotboltinet
Fyrir leik
Þetta gæti verið spennandi viðureign sem við fáum að fylgjast með í kvöld.

Grindavík sem spilar í næst efstu deild, Inkasso-deildinni svokallaðari hafa byrjað sumarið mjög vel. Sitja á toppi deildarinnar með 12 stig að loknum fimm umferðum.

Fylkir er hinsvegar í verri málum í Pepsi-deildinni. Þar sitja þeir á botni deildarinnar með tvö stig að loknum sjö umferðum.
Fyrir leik
Verið velkomin í beina textalýsingu frá Grindavík.

Hér í kvöld eigast við Grindavík og Fylkir í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
4. Tonci Radovnikovic
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
8. Sito ('77)
11. Víðir Þorvarðarson ('85)
15. Garðar Jóhannsson ('73)
16. Emil Ásmundsson
16. Tómas Þorsteinsson
24. Elís Rafn Björnsson
49. Ásgeir Örn Arnþórsson

Varamenn:
12. Lewis Ward (m)
4. Andri Þór Jónsson ('85)
7. Ingimundur Níels Óskarsson ('77)
10. Andrés Már Jóhannesson
18. Styrmir Erlendsson
20. Ragnar Már Lárusson

Liðsstjórn:
Oddur Ingi Guðmundsson

Gul spjöld:
Emil Ásmundsson ('44)

Rauð spjöld: