Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Þór/KA
3
0
Selfoss
Sandra Mayor '2 1-0
Sandra Mayor '23 2-0
Natalia Gomez '85 3-0
08.07.2016  -  18:00
Þórsvöllur
Pepsi-deild kvenna 2016
Dómari: Sveinn Þórður Þórðarson
Byrjunarlið:
1. Aurora Cecilia Santiago Cisneros (m)
Natalia Gomez
4. Karen Nóadóttir
5. Írunn Þorbjörg Aradóttir ('89)
8. Lára Einarsdóttir ('71)
9. Sandra Mayor
10. Sandra María Jessen (f)
10. Anna Rakel Pétursdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('89)
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Rut Matthíasdóttir
3. Sara Skaptadóttir
14. Margrét Árnadóttir

Liðsstjórn:
Saga Líf Sigurðardóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
3-0 sigur Þór/KA staðreynd. Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
89. mín
Inn:Saga Líf Sigurðardóttir (Þór/KA) Út:Írunn Þorbjörg Aradóttir (Þór/KA)
89. mín
Inn:Katla Ósk Rakelardóttir (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
85. mín MARK!
Natalia Gomez (Þór/KA)
Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir
Þór/KA að ganga frá þessu hérna. Flott sókn heimakvenna endar með því að Hulda Ósk kemur boltanum á Nataliu á markteignum sem kemur boltanum í netið
80. mín
Dómarinn stoppar hér leikinn vegna þess að það er hola í vellinum. Sendir starfsmann með mold til að fylla upp í. Mjög spes atvik
78. mín
Inn:Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir (Selfoss) Út:Hrafnhildur Hauksdóttir (Selfoss)
Hér kemur skiptingin
77. mín
Sandra María nálægt því að skora þriðja mark Þór/KA. Flott sending fyrir frá Huldu. Sandra kemur á ferðinni og á skot sem Sandiford ver vel í markinu
76. mín Gult spjald: Karen Inga Bergsdóttir (Selfoss)
75. mín
Hrafnhildur Hauksdóttir er útaf vellinum að fá aðhlynningu. Sjúkraþjálfarinn gefur merki um skiptingu. Lýtur ekkert sértaklega vel út
71. mín
Inn:Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) Út:Lára Einarsdóttir (Þór/KA)
Fyrsta skipting Þór/KA í leiknum. Anna Rakel fer í bakvörðinn og Andrea á miðjuna
70. mín
Lítið að gerast eins og er. Boltinn mikið í loftinu
64. mín
Hvernig er ekki orðið 3-0??? Sandra María kemst inn í teig og á skot sem Sandiford ver. Sandra Mayor nær boltanum og á skot sem fer í varnarmann. Þaðan berst boltinn á Írunni sem skýtur hátt yfir markið af markteig
62. mín
Magdalena Reimus kemst í fína stöðu en skot hennar fer framhjá markinu
59. mín
Lára Einarsdóttir með fyrirgjöf á Söndru Mayor sem rétt nær að koma tánni í boltann. Það er þó ekki nóg til að stýra honum á markið
57. mín
Stórhætta við mark Þór/KA. Hornspyrna sem er hreinsuð uppí loftið. Aurora ver vel í markinu
55. mín
Heimakonur fá hornspyrnu og Heiða Ragney setur boltann framhjá úr ágætu færi
52. mín
Lillý Rut með lélega sendingu þvert fyrir völlinn sem Lauren Hughes er nálægt því að komast inn í. Karen Nóa gerir hinsvegar vel og nær boltanum
47. mín
Natalia Gomez með aukaspyrnu á góðum stað en spyrna hennar vægast sagt vond.
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný!
45. mín
Inn:Erna Guðjónsdóttir (Selfoss) Út:Brynja Valgeirsdóttir (Selfoss)
Tvöföld skipting hjá Selfossi í hálfleik
45. mín
Inn:Karen Inga Bergsdóttir (Selfoss) Út:Guðmunda Brynja Óladóttir (Selfoss)
Fyrirliðinn útaf
45. mín
Hálfleikur
Dómarinn flautar hér til hálfleiks. Sanngjörn 2-0 forysta heimakvenna
45. mín
Anna Rakel með geggjaða sendingu á teiginn. Akkúrat á milli varnarlínu og markmans. Sandra Mayor og Natalia Gomez ná þó ekki til boltans
42. mín
Sandra Mayor með góða fyrirgjöf inní teig en leikmenn Þór/KA ná ekki að nýta sér það
41. mín
Karítas með harða tæklingu á Gomez sem haltrar aðeins eftir þetta
40. mín
Guðmunda með skot sem fer beint á Aurora í markinu
33. mín
Gestirnir í mjög góðu færi. Anna María með flotta sendingu fyrir á Lauren sem er ódekkuð í teignum. Hún á viðstöðulaust skot sem Aurora ver vel í markinu. Ekkert verður síðan upp úr hornspyrnunni
29. mín
Sandra Mayor sleppur í gegn en rangstaða dæmd
23. mín MARK!
Sandra Mayor (Þór/KA)
Stoðsending: Sandra María Jessen
Virkirlega einfalt mark. Sandra María með sendingu innfyrir á Söndru Mayor sem leggur hann snyrtilega í markið. Alltof langt á milli miðvarðanna hjá Selfossi þarna. Barnalegur varnarleikur
21. mín
Mikil rignig hérna þessa stundina. Anna María með skot sem Aurora grípur af öryggi
19. mín
Anna Rakel með flotta sendingu inn fyrir á Söndru sem á skot sem Sandiford ver í markinu
15. mín
DAUÐAFÆRI!! Hulda Ósk með góða sendingu innfyrir, þvert fyrir vörn selfyssinga. Þar nær Sandra María boltanum, kemur sér í frábært færi og þrumar boltanum yfir markið. Þarna á Sandra María einfaldlega að skora
10. mín
Það er byrjað að rigna hér á Þórsvelli. Smá úði
6. mín
Selfoss nálægt því að jafna! Guðmunda Brynja með sprett upp völlinn og á skot sem fer í varnarmann og rétt framhjá. Markmaðurinn var farinn í vitlaust horn. Ekkert verður síðan úr hornspyrnunni
2. mín MARK!
Sandra Mayor (Þór/KA)
Löng sending innfyrir á Söndru Mayor sem vippar honum skemmtilega í fjærhornið. Þær eru ekki lengi að þessu
1. mín
Heimakonur fá hér strax tvær hornspyrnur. Endar með því að Gomez á skot yfir markið
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur byrja með boltann og eru strax komnar í sókn
Fyrir leik
Liðin ganga hér inná völlinn
Fyrir leik
Heimaliðið gerir enga breytingu á liðinu sem sigraði Fylki í Borgunnarbikarnum á mánudag. Gestirnir gera eina breytingu frá 5-0 tapi gegn ÍBV á mánudaginn. Fyrirliðinn Guðmunda Brynja Óladóttir kemur inn fyrir Evu Lind Elíasdóttur
Fyrir leik
Dómari leiksins í dag er Sveinn Þórður Þórðarson og honum til aðstoðar eru Steinar Gauti Þórarinsson og Marinó Steinn Þorsteinsson
Fyrir leik
Fyrir leikinn er Þór/KA í 5.sæti með 8 stig en gestirnir frá Selfossi eru í 4.sæti með 9 stig
Fyrir leik
Komiði sælir áhorfendur góðir og verið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þór/KA og Selfoss
Byrjunarlið:
12. Chante Sherese Sandiford (m)
Anna María Friðgeirsdóttir
1. Lauren Elizabeth Hughes
2. Hrafnhildur Hauksdóttir ('78)
5. Brynja Valgeirsdóttir ('45)
6. Bergrós Ásgeirsdóttir
10. Guðmunda Brynja Óladóttir ('45)
11. Heiðdís Sigurjónsdóttir
14. Karitas Tómasdóttir
18. Magdalena Anna Reimus
23. Kristrún Rut Antonsdóttir

Varamenn:
13. Friðný Fjóla Jónsdóttir (m)
11. Karen Inga Bergsdóttir ('45)
16. Alyssa Telang
17. Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir ('78)
20. Írena Björk Gestsdóttir
26. Dagný Rún Gísladóttir

Liðsstjórn:
Erna Guðjónsdóttir

Gul spjöld:
Karen Inga Bergsdóttir ('76)

Rauð spjöld: