Samsung völlurinn
Pepsi-deild karla 2016
Aðstæður: Frábærar.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 1080
Maður leiksins: Hilmar Árni Halldórsson
Stjarnan með öruggan 3-0 sigur þegar upp er staðið, þrátt fyrir að stórar ákvarðanir Ívars Orra dómara í fyrri hálfleik hefðu getað breytt gengi leiksins!
Viðtöl & skýrslan seinna í kvöld.
Stoðsending: Hilmar Árni Halldórsson
Þarna gerðu Stjörnumenn endanlega útum þennan leik!
Ívar Örn með gull af fyrirgjöf yfir á fjær þar sem Túfa á fastan skalla yfir Kerr og endar í þverslánni!
Víkingar óheppnir!
Stjörnumenn ná að hreinsa frá eftir seinni hornspyrnuna. Ekki nægilega þó, því Tufegdzic fær boltann á fjærstöngina og á skot af stuttu færi sem Kerr ver í horn.
Kristófer Karl réttir Arnþóri Inga boltann sem ætlar síðan að gefa stutta sendingu til baka á Kristófer. Hann var hinsvegar byrjaður að bakka aftur í markið og það var Guðjón Baldvinsson sem var fyrstur í boltann, fór framhjá Kristófer en sendir boltann síðan í hliðarnetið!
Fucek með fyrirgjöf frá vinstri sem Kerr nær ekki til og boltinn dettur fyrir fæturs Tufegdzic sem hittir boltann illa og framhjá fer boltinn af stuttu færi!
Eyjólfur staðið vaktina vel á miðjunni.
það er klukkutími búinn af leiknum var að taka eftir því að Gary Martin er inná #fotboltinet #pepsi365
— Jóhann Örn Kjartanss (@johannorn) August 4, 2016
Fékk högg eftir tæklingu frá Fucek.
Baldur stendur upp eftir aðhlynningu frá Friðriki Ellerti sjúkraþjálfara og leikurinn getur haldið áfram.
Skotið af löngu færi og engin hætta.
Kerr með allt á hreinu og leyfir boltanum að sigla yfir markið.
Ívar Örn færist í vinstri bakvörðinn og Josip á miðjuna.
Stoðsending: Hörður Árnason
Þetta var alvöru sókn! Glæsileg Stjörnusókn sem endar með því að Hörður kemur með fyrirgjöf meðfram jörðinni alveg yfir á fjærstöngina þar sem Guðjón Baldvinsson er einn og óvaldaður og rennir boltanum í tómt markið.
Þessi sókn hófst í öftustu línu og fór í gegnum fjölda leikmanna Stjörnunnar. Eyjólfur Héðinsson gerði vel og hélt boltanum inná vellinum á eigin vallarhelmingi, þaðan fór boltinn á Hilmar Árna og í kjölfarið á Heiðar sem renndi boltanum yfir til vinstri á Hörð!
Ívar Orri þarf að stöðva leikinn enda um höfuðmeiðsli að ræða.
Perkovic var með olnbogann hátt uppi, en sá ekki hvort hann hafi farið með olnbogann í Gaua eða bara hvort um samstuð hafi verið að ræða.
Hann hafði nægan tíma fyrir utan teiginn en hittir ekki á markið.
1) Víkingur skoraði löglegt mark sem hvorki Ívar Orri dómari leiksins né Andri Vigfússon aðstoðardómari 2 sáu!
2) Jóhann Laxdal braut á Gary Martin innan teigs. Ívar Orri sá hinsvegar enga ástæðu til að flauta víti. Ótrúlegt segja sumir!
3) Alan Lowing var tekinn illa af Guðjóni Baldvinssyni í byrjun leiks og braut í kjölfarið á Gaua með því að sparka hann niður. Ívar Orri sá að sjálfsögðu enga ástæðu til að dæma á Lowing.
Stjarnan einu marki yfir í hálfleik, eftir mark frá Hilmari Árna eftir 18 mínútna leik.
Hörkutækling sem Baldur Sigurðsson verður fyrir og liggur eftir á vellinum. Stendur upp stuttu síðar.
Flott samleikur!
Fær sendingu frá Herði inn í teig, tekur boltann á lofti og snýr sér við. Undirbúningurinn fær fimm stjörnur.
Skotið hinsvegar ekkert spes og fær í kringum eina og hálfa stjörnu. Boltinn framhjá fjærstönginni.
@kristjanoli Nú er kominn tími til að taka þessa fursta í gegn. Óhæfir og gjörsamlega úti á þekju. Kjarklausir.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) August 4, 2016
Augljóst mark og augljóst víti tekið af Vikes. Þreytt að tuða yfir dómurunum en djöfull eru þetta slakir gæjar sem eru að dæma í Pepsi.
— Bjarni Helgason (@BjarniHelgason) August 4, 2016
Réttast væri að skipta dómaratríóinu út í hálfleik. Þvílíkur skandall. 2 mörk tekin af Vikes. Ekki boðlegt.Eina.
— Kristján Sigurðsson (@kristjanoli) August 4, 2016
Það er líf það er líf!
Það er smá hiti hérna í mannskapnum.
Þetta var mark #HawkEyeHaflidason
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) August 4, 2016
Þetta hefði verið mark í Premier Leauge. Skita hjá AD2.
— Kristján Sigurðsson (@kristjanoli) August 4, 2016
Vladimir Tufegdzic á skalla að marki eftir hornspyrnu frá Ívari Erni.
Túfa var lygilega frír einn fyrir framan markið en Stjörnumenn bjarga á línu eða var boltinn inni?
Laglegur undirbúninguf frá Dofra.
Hilmar Árni með viðstöðulaust skot við vítateigslínuna í nærhornið. Óverjandi fyrir Kristófer Karl í markinu!
Hörður átti fyrirgjöf sem Alan Lowing reyndi að hreinsa í burtu. Sú hreinsun fór hinsvegar beint í fæturs Hilmars Árna sem þrumaði að markinu!
Laglegt mark og Stjörnumenn eru komnir yfir!
Loksins kom einhver hætta af hornspyrnum Stjörnunnar. Spyrnan frá Hilmari á fjærstöngina, þar er Jóhann Laxdal mættur en skallar yfir nánast eins og ég sagði áðan, af marklínunni!
Ekkert hefur komið úr þeim hingað til...
Gary Martin gerði vel og lagði boltann út á Dofra en hann hittir ekki á markið.
Halldór gerir vel og brýtur strax á Óttari áður en hann nær sér á flug. Sleppur við spjald.
Stjörnumenn allt annað en kátir með það.
Ívar með aukaspyrnuna sem er skölluð í burtu, annar bolti inn í teiginn sem Kerr grípur auðveldlega.
Kristófer Karl
Dofri - Marko - Lowing - Halldór Smári
Óttar Magnús - Ívar Örn - Arnþór Ingi - Davíð Örn
Gary - Tufegdzic
Kerr
Hörður - Grétar - Daníel - Jói Laxdal
Heiðar
Eyjólfur - Baldur - Hilmar Árni - Halldór Orri
Guðjón Baldvins.
Það þýðir bara eitt, leikurinn fer að byrja.
Veðrið er gott á vellinum sjálfum. Skuggi í stúkunni að vanda.
Igor Taskovic fyrirliði Víkings er hvergi sjáanlegur á skýrslu Víkings og þá er markvörðurinn, Róbert Örn á bekknum. Inn koma Kristófer Jarl og Davíð Örn Atlason.
Hólmbert Aron Friðjónsson sem gekk í raðir Stjörnunnar fyrir helgi á láni frá KR byrjar á bekknum.
Stöndum saman á laugardaginn, knattspyrna án fordóma! #InnMedBoltann #fotboltinet pic.twitter.com/C6zSgpCXyE
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) August 4, 2016
Síðast þegar #Vikes unnu Star í efstu deild í Garðabæ skoraði Helgi Sig eitt og Rúnar Páll eitt. Long time. #pepsi365
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) August 4, 2016
Stjarnan vann fyrri leik liðanna í Víkinni 2-1 eftir að hafa lent marki undir.