Fylkir
1
3
Valur
Sæunn Rós Ríkharðsdóttir '1 1-0
1-1 Margrét Lára Viðarsdóttir '45
1-2 Elín Metta Jensen '47
1-3 Elín Metta Jensen '68
1-3 Elín Metta Jensen '87 , misnotað víti
23.02.2017  -  20:30
Egilshöll
Reykjavíkurmót kvenna - Úrslit
Dómari: Elías Ingi Árnason
Byrjunarlið:
26. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (m)
Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir
Sæunn Rós Ríkharðsdóttir
Tinna Björk Birgisdóttir
6. Sunna Baldvinsdóttir ('51)
8. Hulda Hrund Arnarsdóttir
10. Ragnheiður Erla Garðarsdóttir ('70)
16. Kristín Þóra Birgisdóttir
22. Sigrún Salka Hermannsdóttir
24. Lilja Vigdís Davíðsdóttir
27. Stella Þóra Jóhannesdóttir ('46)

Varamenn:
12. Þórdís Edda Hjartardóttir (m)
28. Brigita Morkute (m)
5. Ída Marín Hermannsdóttir
7. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('46)
11. Tinna Björk Helgadóttir
15. Lovísa Sólveig Erlingsdóttir
17. Birna Kristín Eiríksdóttir ('51)
20. Sunneva Helgadóttir
27. Íris Dögg Frostadóttir ('70)

Liðsstjórn:
Jón Aðalsteinn Kristjánsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Kristbjörg Helga Ingadóttir
Ragnheiður Ágústa Jónsdóttir
Vésteinn Kári Árnason

Gul spjöld:
Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir ('86)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 1-3 sigri Vals. Valur er því Reykjavíkurmeistari árið 2017 eftir sigur á Fylki. Þær fá nú afhentan bikarinn.
87. mín Misnotað víti!
Elín Metta Jensen (Valur)
Elínu Mettu mistókst að taka þrennuna þarna því Ásta Vigdís gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna frá henni. Mjög vel varið.
86. mín Gult spjald: Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir (Fylkir)
Valur fær víti. Tinna braut á Elínu Mettu sem var að komast framhjá henni.
85. mín
Inn:Eva María Jónsdóttir (Valur) Út:Hlín Eiríksdóttir (Valur)
83. mín
Hlín Eiríksdóttir skaut rétt framhjá marki Fylkis.
83. mín
Málfríður Anna með skot hátt yfir mark Fylkis.
82. mín
Inn:Hlíf Hauksdóttir (Valur) Út:Dóra María Lárusdóttir (Valur)
72. mín
Ásta bjargaði í horn eftir gott skot Vesnu.
70. mín
Inn:Íris Dögg Frostadóttir (Fylkir) Út:Ragnheiður Erla Garðarsdóttir (Fylkir)
68. mín
Inn:Nína Kolbrún Gylfadóttir (Valur) Út:Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur)
68. mín MARK!
Elín Metta Jensen (Valur)
Valur er að komast í mjög góða stöðu. Elín Metta með sitt annað mark, núna með skoti í teignum eftir gott samspil.
65. mín
Ragnheiður Erla í fínu færi í teignum eftir hratt upphlaup Fylkis en kiksaði á boltann.
58. mín
Vesna með skot yfir mark Fylkis. Síðari hálfleikurinn hefur farið ágætlega af stað og bæði lið skapað sér hálffæri án þess að ná góðum skotum á mark.
51. mín
Inn:Birna Kristín Eiríksdóttir (Fylkir) Út:Sunna Baldvinsdóttir (Fylkir)
47. mín MARK!
Elín Metta Jensen (Valur)
Frábært framtak hjá Elínu Mettu sem var langt úti á velli og lét boltann vaða á markið og upp í samskeytin. Valur komið í 1-2.
46. mín
Inn:Thelma Lóa Hermannsdóttir (Fylkir) Út:Stella Þóra Jóhannesdóttir (Fylkir)
46. mín
Inn:Málfríður Erna Sigurðardóttir (Valur) Út:Laufey Björnsdóttir (Valur)
46. mín
Inn:Thelma Björk Einarsdóttir (Valur) Út:Hrafnhildur Hauksdóttir (Valur)
46. mín
Leikur hafinn
Síðari hálfleikur er hafinn. Valur gerði tvær breytingar í hálfleik, Málfríður Erna Sigurðardóttir og Thelma Björk Einarsdóttir komu inn. Skiptingarnar koma hér að neðan innan skamms.
45. mín
Hálfleikur
Jöfnunarmark Vals var lokaspyrnan í leiknum því í kjölfarið flautaði Elías Ingi til loka fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik 1-1.
45. mín MARK!
Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur)
Stoðsending: Arna Sif Ásgrímsdóttir
Ásta varði vel frá Örnu Sif en boltinn barst á Margréti Láru sem afgreiddi boltann vel í netið. 1-1.
43. mín
Tinna Björk Birgisdóttir bjargaði á marklínu eftir pressu frá Örnu Sif. Arna hefur verið hættuleg fram á við fyrir Val í kvöld þó hún spili sem miðvörður.
39. mín
Hulda Hrund með skot utan af velli en framhjá marki Vals.
37. mín
Margrét Lára í fínu færi eftir að Hlín vann boltann en skaut hátt yfir mark Fylkis.
33. mín
Elín Metta með skot hátt yfir mark Fylkis.
30. mín
DAUÐAFÆRI! Hlín Eiríkssdóttir var ein gegn tómu marki að setja boltann í markið þegar Sigrún Salka Hermannssdóttir henti sér fyrir boltann og varði í horn.
20. mín
Arna Sif með hættulegt skot í kjölfar hornspyrnu en Ásta náði að verja frá henni.
14. mín
Margrét Lára með fast skot að marki sem Ásta Vigdís varði.
10. mín
Valur hefur verið hætturlegra liðið eftir að markið kom og áttu einn skalla rétt framhjá.
1. mín MARK!
Sæunn Rós Ríkharðsdóttir (Fylkir)
Þetta byrjar með látum, aðeins 33 sekúndur komnar á klukkuna þegar Fylkir nær forystunni hérna. Hratt samspil skilaði sendingu út í teiginn á hina 17 ára gömlu Sæunni sem skoraði með góðu skoti í bláhornið.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn. Fylkir byrjaði með boltann.
Fyrir leik
Fyrir leik heilsa þær Ragna Lóa Stefánsdóttir og Rakel Logadóttir leikmönnum liðanna ásamt Steini Halldórssyni frá Knattspyrnuráði Reykjavíkur sem heldur mótið.
Fyrir leik
,,Góða skemmtun, fótbolti er skemmtilegur," sagði Elías Ingi Árnason dómari við liðin áður en þau gengu út á völl. Liðin eru komin út á völl og klár í að hefja leik. Valur leikur í alhvítum búingum að þessu sinni en Fylkir í hefðbundnum búningum sínum,appelsínugulri peysu og svörtum buxum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár hér sitthvorum megin við textann. Liðin mættust í úrslitaleiknum í fyrra líka en þá vann Valur 1-0, Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eina markið úr víti.
Fyrir leik
Elías Ingi Árnason sem var valinn dómari ársins í Pepsi-deild kvenna í fyrra er dómari leiksins í dag. Honum til aðstoðar á línunum eru þeir Sigursteinn Brynjólfsson og Ottó Sverrisson. Þá er Gunnþór Steinar Jónsson skiltadómari.
Fyrir leik
Í undanúrslitunum vann Valur 1-3 sigur á KR. Fylkir mætti Fjölni í hinum undanúrslitaleiknum og var markalaust eftir venjulegan leiktíma og þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar reyndust Fylkiskonur sterkari og sigruðu 3-1.
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna.

Að þessu sinni mætast Fylkir og Valur í þessum úrslitaleik sem hefst 20:30 í Egilshöll.
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
5. Hrafnhildur Hauksdóttir ('46)
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Laufey Björnsdóttir ('46)
9. Margrét Lára Viðarsdóttir (f) ('68)
10. Elín Metta Jensen
14. Hlín Eiríksdóttir ('85)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir (f)
22. Dóra María Lárusdóttir ('82)
31. Vesna Elísa Smiljkovic

Varamenn:
2. Hlíf Hauksdóttir ('82)
2. Lilja Dögg Valþórsdóttir
15. Eva María Jónsdóttir ('85)
17. Thelma Björk Einarsdóttir ('46)
25. Nína Kolbrún Gylfadóttir ('68)
27. Hanna Kallmaier
44. Málfríður Erna Sigurðardóttir ('46)

Liðsstjórn:
Úlfur Blandon (Þ)
Ásta Árnadóttir
Kristín Ýr Bjarnadóttir
Rajko Stanisic
Thelma Guðrún Jónsdóttir
Elfa Scheving Sigurðardóttir
Jón Stefán Jónsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: