Egilshöll
laugardagur 25. febrúar 2017  kl. 15:15
Lengjubikar karla - A deild Riðill 1
Aðstæður: Hefðbundnar
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Víkingur R. 1 - 2 FH
0-1 Emil Pálsson ('21)
0-2 Kristján Flóki Finnbogason ('38)
1-2 Arnþór Ingi Kristinsson ('62)
Emil Pálsson, FH ('77)
Byrjunarlið:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
4. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
6. Halldór Smári Sigurðsson ('74)
7. Alex Freyr Hilmarsson
8. Viktor Bjarki Arnarsson ('46)
14. Jökull Þorri Sverrisson
19. Valdimar Ingi Jónsson ('46)
21. Arnþór Ingi Kristinsson
24. Davíð Örn Atlason
25. Vladimir Tufegdzic

Varamenn:
10. Muhammed Mert ('46)
12. Kristófer Karl Jensson
13. Viktor Örlygur Andrason ('46)
15. Steinar Ísaksson
22. Jökull Jörvar Þórhallsson
23. Gunnlaugur Sigurðarson

Liðstjórn:
Milos Milojevic (Þ)
Einar Ásgeirsson
Þórir Ingvarsson
Ísak Jónsson Guðmann
Hajrudin Cardaklija
Logi Tómasson
Dragan Kazic

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

@elvargeir Elvar Geir Magnússon


90. mín Leik lokið!
FH með fullt hús eftir tvær umferðir.
Eyða Breyta
87. mín
Davíð Þór með ágætis skottilraun. Róló ver af öryggi.
Eyða Breyta
85. mín
Jón Jónsson með skottilraun. Talsvert framhjá.
Eyða Breyta
80. mín Guðmundur Karl Guðmundsson (FH) Steven Lennon (FH)
Breyting í kjölfar rauða spjaldsins.
Eyða Breyta
77. mín Rautt spjald: Emil Pálsson (FH)
Emil fær sitt annað gula spjald og þar með rautt. Sparkaði Víking niður í átökum í teig Víkinga. Fróðlegt að sjá framhaldið!
Eyða Breyta
74. mín Logi Tómasson (Víkingur R.) Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.)
Annar strákur sem er fæddur 2000 að mæta hér inn. Vantar ekki efniviðinn í Fossvoginn.
Eyða Breyta
67. mín Gult spjald: Emil Pálsson (FH)

Eyða Breyta
65. mín Jón Ragnar Jónsson (FH) Grétar Snær Gunnarsson (FH)
Heimir gerir tvöfalda skiptingu enda Víkingar sprækari þessa stundina.
Eyða Breyta
65. mín Kassim Doumbia (FH) Halldór Orri Björnsson (FH)

Eyða Breyta
64. mín
Arnþór Ingi Kristinsson með góða skottilraun fyrir utan teig en framhjá. Víkingar halda áfram að ógna.
Eyða Breyta
62. mín MARK! Arnþór Ingi Kristinsson (Víkingur R.), Stoðsending: Ívar Örn Jónsson
Við höfum leik! Aukaspyrnu-Ívar með góða hornspyrnu. Arnþór Ingi er við nærstönginni og sneiðir knöttinn í netið. Stemning og stuð!
Eyða Breyta
61. mín
Mert er að koma ansi sprækur inn! Á gott skot af löngu færi en Vignir ver glæsilega.
Eyða Breyta
58. mín
Kristján Flóki kemst í dauðafæri en er flaggaður rangstæður.
Eyða Breyta
57. mín
Mert með góðan sprett, sendi boltann á Ívar Örn sem átti skot naumlega yfir markið. Víkingar verið sprækari það sem af er seinni hálfleiks en þurfa á marki að halda til að gera þetta að leik.
Eyða Breyta
51. mín Gult spjald: Kristján Flóki Finnbogason (FH)
Fyrstur í svörtu bókina hjá Helga dómara.
Eyða Breyta
49. mín
Alex með skalla að marki en hitti boltann illa, engin hætta.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn - Spennandi að sjá hvaða áhrif þessi tvöfalda skipting frá Milos mun hafa.
Eyða Breyta
46. mín Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Valdimar Ingi Jónsson (Víkingur R.)
Þrælefnilegur leikmaður sem skoraði sigurmarkið í síðasta leik.
Eyða Breyta
46. mín Muhammed Mert (Víkingur R.) Viktor Bjarki Arnarsson (Víkingur R.)
Nýr leikmaður Víkinga að mæta inn.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Afskaplega verðskulduð forysta. FH-ingar mun betri.
Eyða Breyta
43. mín
Kristján Flóki í hörkufæri en Róló ver! Þarna hefði FH hæglega getað skorað þriðja markið.
Eyða Breyta
38. mín MARK! Kristján Flóki Finnbogason (FH)
Þetta leit ekki vel út hjá Víkingum! Varnarmistök eftir fyrirgjöf og Kristján Flóki bætir við marki. Ætlaði að skalla boltann í fyrstu en hitti hann ekki, þá féll hann fyrir fæturna á honum og hann skoraði í annarri tilraun.
Eyða Breyta
37. mín
Atli Guðnason með frábær tilþrif, leikur á varnarmann rétt fyrir utan teig og á skot sem hans gamli samherji Róló ver vel í horn.
Eyða Breyta
34. mín
Meðan þetta er í gangi var FH-ingur að leggja upp mark í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi Sigurðsson orðinn stoðsendingahæstur í deildinni eftir að hafa lagt upp á Llorente sem jafnaði í 1-1 gegn Chelsea. Hálfleikur þar.
Eyða Breyta
32. mín
Túfa með sendingu inn í teiginn á Davíð Atla sem nær ekki að taka á móti boltanum. Víkingar farnir að ógna aðeins meira.
Eyða Breyta
29. mín
Ívar Örn með skot/sendingatilraun. Framhjá. Tölfræðideildin skráir þetta allavega sem marktilraun.
Eyða Breyta
28. mín


Eyða Breyta
27. mín
Víkingar í baráttunni í teig FH-inga en Davíð Þór sýnir öfluga vörn og stöðvar þetta.
Eyða Breyta
21. mín MARK! Emil Pálsson (FH), Stoðsending: Böðvar Böðvarsson
Loksins kom færi... og þá kom mark! Böddi löpp með ansi góða sendingu inn í teiginn. Emil Pálsson var þar öflugastur og skallaði snyrtilega í markið. FH hefur tekið forystuna!
Eyða Breyta
19. mín
Afskaplega tíðindalítið. Ekkert teljandi færi komið.
Eyða Breyta
11. mín
Atli Guðnason með skot sem hrekkur fyrir fætur Kristjáns Flóka í teignum, fastur bolti sem Flóki nær ekki að taka á móti.
Eyða Breyta
9. mín
Milos mjög líflegur á hliðarlínunni hingað til. Talsvert rólegra yfir kollega hans hinumegin.
Eyða Breyta
6. mín
FH einokað boltann fyrstu mínúturnar. Ekkert óvænt í því.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Víkingar byrjuðu með boltann.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Muhammed Mert, nýr leikmaður Víkings, er á bekknum. Mert er belgískur framliggjandi miðjumaður af tyrkneskum uppruna. Hann á að baki 6 leiki fyrir U15 og U16 ára landslið Tyrklands og 9 leiki fyrir U16, U17 og U18 ára landslið Belgíu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Gunnar Nielsen og Davíð Þór Viðarsson eru á meiðslalista FH-inga og eru ekki með í dag. Kassim byrjar á bekknum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þetta er leikur í 2. umferð í riðli 1 en Víkingur vann KA 1-0 á Akureyri í fyrstu umferð. Hinn efnilegi Viktor Örlygur Andrason, fæddur 2000, skoraði markið en hann byrjar á bekknum í dag. FH vann 1-0 sigur gegn grönnum sínum í Haukum. Kristján Flóki Finnbogason skoraði eina markið þar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hér verður bein textalýsing frá leik Víkings R. og Íslandsmeistara FH í Lengjubikarnum. Leikurinn hefst klukkan 15:15.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
12. Vignir Jóhannesson (m)
5. Bergsveinn Ólafsson
7. Steven Lennon ('80)
8. Emil Pálsson
10. Davíð Þór Viðarsson (f)
11. Atli Guðnason
14. Grétar Snær Gunnarsson ('65)
18. Kristján Flóki Finnbogason
21. Böðvar Böðvarsson
22. Halldór Orri Björnsson ('65)
26. Jonathan Hendrickx

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
6. Baldur Búi Heimisson
16. Jón Ragnar Jónsson ('65)
17. Atli Viðar Björnsson
20. Kassim Doumbia ('65)
23. Veigar Páll Gunnarsson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson ('80)

Liðstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Eiríkur K Þorvarðsson
Ólafur H Guðmundsson
Róbert Magnússon
Axel Guðmundsson
Árni Freyr Guðnason

Gul spjöld:
Kristján Flóki Finnbogason ('51)
Emil Pálsson ('67)

Rauð spjöld:
Emil Pálsson ('77)