Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Maccabi Tel Aviv
3
1
KR
0-1 Pálmi Rafn Pálmason '58
Aaron Schoenfeld '65 1-1
Viðar Örn Kjartansson '78 2-1
Omer Atzily '82 3-1
13.07.2017  -  15:00
Netanya Municipal
Evrópudeildin
Aðstæður: 30 gráðu hiti og sól. Völlurinn í toppstandi
Dómari: Anastasios Papapetrou - Grikkland
Byrjunarlið:
95. Predrag Rajkovic (m)
2. Eli Dasa
7. Omer Atzily ('88)
9. Viðar Örn Kjartansson
13. Sheran Yeini
16. Shlomy Azulay ('61)
18. Eytan Tibi
22. Avraham Rikan ('61)
23. Eyal Golasa
26. Tal Ben Haim
27. Ofir Davidzada

Varamenn:
19. Daniel Tenenbaum (m)
3. Yuval Shpungin
10. Barat Itzhaki ('61)
14. Eliel Peretz ('88)
24. Yonathan Cohen
25. Aaron Schoenfeld ('61)
42. Dor Peretz

Liðsstjórn:
Jordi Cruyff (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið. Svekkjandi úrslit fyrir KR en Vesturbæingar vörðust mjög vel lengst af og komust yfir í leiknum.
Magnús Már Einarsson
90. mín
Fjórar mínútur í viðbótartíma.
Magnús Már Einarsson
88. mín
Inn:Ástbjörn Þórðarson (KR) Út:Kennie Chopart (KR)
Magnús Már Einarsson
88. mín
Inn:Eliel Peretz (Maccabi Tel Aviv) Út:Omer Atzily (Maccabi Tel Aviv)
Magnús Már Einarsson
85. mín
Inn:Guðmundur Andri Tryggvason (KR) Út:Tobias Thomsen (KR)
Magnús Már Einarsson
82. mín MARK!
Omer Atzily (Maccabi Tel Aviv)
Skrautlegt mark en afgreiðslan var góð. Omer á skot fyrir utan vítateig sem fer í samherja hans. Boltinn fer upp í loftið og Omer skorar með viðstöðulausu skoti. Brekka hjá KR núna.
Magnús Már Einarsson
78. mín MARK!
Viðar Örn Kjartansson (Maccabi Tel Aviv)
Frábærlega gert hjá Viðari! Fær boltinn í vítateigsboganum, leikur á Aron Bjarka með góðri fótavinnu og skorar með skoti út við stöng!

Viðar hefur lítið gert í þessum leik en þarna sýndi hann hvað í honum býr.
Magnús Már Einarsson
77. mín
Robert Sandnes að sleppa í gegn en er flaggaður rangstæður.
Magnús Már Einarsson
75. mín
Vatnspása! Önnur vatnspásan í þessum leik. Minni á að hitinn er 30 gráður. Ekkert grín að spila í þessum aðstæðum.
Magnús Már Einarsson
72. mín
Skúli Jón með hörkuskalla eftir aukaspyrnu Morten Beck en boltinn fer beint á Rajkovic.
Magnús Már Einarsson
69. mín
Inn:Robert Sandnes (KR) Út:Pálmi Rafn Pálmason (KR)
Markaskorari KR af velli. Sandnes kemur líklega á kantinn og Kennie færir sig inn á miðjuna.
Magnús Már Einarsson

Magnús Már Einarsson
65. mín MARK!
Aaron Schoenfeld (Maccabi Tel Aviv)
Bandaríkjamaðurinn Aaron Schoenfeld jafnar, nýkominn inn á sem varamaður. Stefán Logi nær ekki að halda fyrirgjöf frá vinstri og Aaron þakkar fyrir sig með því að skora.
Magnús Már Einarsson
65. mín
Óskar Örn reynir að vippa yfir Predrag í markinu af 45 metra færi. Boltinn rétt yfir!
Magnús Már Einarsson
61. mín
Inn:Barat Itzhaki (Maccabi Tel Aviv) Út:Avraham Rikan (Maccabi Tel Aviv)
Jordi Cruyff, þjálfari Maccabi, er ekki sáttur. Hendir í tvöfalda skiptingu.
Magnús Már Einarsson
61. mín
Inn:Aaron Schoenfeld (Maccabi Tel Aviv) Út:Shlomy Azulay (Maccabi Tel Aviv)
Magnús Már Einarsson

Magnús Már Einarsson

Magnús Már Einarsson
58. mín MARK!
Pálmi Rafn Pálmason (KR)
Stoðsending: Kennie Chopart
KR-ingar eru komnir yfir í Ísrael!!!

Frábært spil hjá KR endar með skallamarki frá Pálma. Kennie Chopart fékk boltann við vítateigslínu vinstra megin í teignum. Hann átti létta vippu áfram inn á teiginn þar sem Pálmi skoraði með skalla á nærstöngina!

Pálmi kann vel við sig í Evrópudeildinni en hann skoraði líka gegn SJK fyrir viku.
Magnús Már Einarsson
54. mín
Eyal Golasa með skot fyrir utan teig en boltinn yfir.
Magnús Már Einarsson
52. mín
Skúli Jón fær höfuðhögg eftir baráttu við Viðar og liggur eftir. Maccabi Tel Aviv stoppar ekki og leikurinn heldur áfram! Ísraelarnir fá hornspyrnu á endanum.

KR-ingar eru brjálaðir yfir því að leikurinn hafi ekki verið stöðvaður. Willum Þór lætur í sér heyra á hliðarlínunni.
Magnús Már Einarsson
49. mín
Shlomy Azulay með skemmtileg tilþrif en KR-ingar stöðva för hans inni á vítateig.
Magnús Már Einarsson
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn.
Magnús Már Einarsson

Magnús Már Einarsson
45. mín
Hálfleikur
Fín staða í hálfleik. Saga fyrri hálfleiksins var þannig að heimamenn voru með boltann og sóttu á meðan KR-ingar vörðust vel. Vonandi nær múr KR-inga að halda áfram.
Magnús Már Einarsson
45. mín
Maccabi sækir áfram. Ein mínúta í viðbótartíma í fyrri hálfleik.
Magnús Már Einarsson
40. mín
Maccabi sækir stíft núna en varnarmúr KR-inga er þéttur.
Magnús Már Einarsson
38. mín
KR-ingar hafa varist vel og eru í fínum málum. Þeir yrðu sáttir með þessar lokatölur í dag.
Magnús Már Einarsson
35. mín
Stefán Logi ver örugglega frá Rikan.
Magnús Már Einarsson
27. mín
Vatnspása!

30 stiga hiti er á vellinum og leikmenn eru fegnir að fá að kasta mæðinni og fá vatn.
Magnús Már Einarsson
26. mín
Þung pressa hjá Maccabi! Heimamenn eru búnir að fá sjö hornspyrnur.

Viðar á skot eftir eina þeirra en boltinn fer í Gunnar Þór og aftur fyrir endamörk.
Magnús Már Einarsson
24. mín
Eli Dasa með hættulega fyrirgjöf sem Aron Bjarki skallar aftur fyrir endamörk.
Magnús Már Einarsson
21. mín
KR fær aukaspyrnu á vinstri kantinum. Óskar Örn tekur spyrnuna en hún er of nálægt markinu og Predrag grípur boltann auðveldlega.
Magnús Már Einarsson
16. mín
Fín sókn hjá KR. Morten Beck með fyrirgjöf og Yeini, fyrirliði heimamanna, hitir boltann illa. Predrag Rajkovic nær hins vegar að grípa boltann.
Magnús Már Einarsson
15. mín Gult spjald: Gunnar Þór Gunnarsson (KR)
Brýtur á Viðari Erni.
Magnús Már Einarsson
12. mín
Maccabi fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Azulay tekur spyrnuna en hún fer í varnarvegginn og framhjá.
Magnús Már Einarsson
8. mín
Rólegt núna. KR-ingar byrja þetta ágætlega.
Magnús Már Einarsson
1. mín
KR fær hættulega skyndisókn! Tobias Thomsen kemur boltanum á Kennie Chopart sem var að sleppa í gegn. Hann féll þar og vildi fá vítaspyrnu en ekkert dæmt.
Magnús Már Einarsson
1. mín
Maccabi Tel Aviv fær hornspyrnu strax í byrjun. Viðar Örn með fyrirgjöf sem fer af Gunnari Þór og aftur fyrir endamörk.
Magnús Már Einarsson
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn!
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Liðin eru að labba út á völl. Allt að verða klárt.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Yossi Benayoun, fyrrum leikmaður Arsenal, Chelsea og Liverpool, var hjá Maccabi Tel Aviv í fyrra en hann gekk í sumar til liðs við Beitar Jerusalem.
Magnús Már Einarsson

Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, hefur tilkynnt byrjunarliðið. Willum teflir fram nákvæmlega sama byrjunarliði og í 2-0 sigrinum á SJK í Finnlandi fyrir viku síðan.

Viðar Örn Kjartansson er í byrjunarliði Maccabi Tel Aviv sem og Tal Ben Haim, fyrrum varnarmaður Chelsea.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Leikurinn í dag verður í beinni í KR-útvarpinu.

Tilkynning frá KR-útvarpinu
503 útsending KR-útvarpsins hefst klukkan 14:00 en leikurinn við Maccabi Tel Aviv frá Ísrael í Evrópudeildinni hefst klukkan 15:00. Hallgrímur Indriðason verður í KR-heimilinu og Jónas Kristinsson lýsir leiknum frá Netanya Stadium. Denni verður á tökkunum. Útvarp KR sendir út á fm 98,3, á netheimur.is og iPhone, iPad, iPod og Android snjallsímum í boði Netheims. Minnum á KR-appið þar sem hægt er að tengjast okkur og hlusta. Koma svo...áfram KR
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Viðar Örn Kjartansson
Ég vildi auðvitað mæta þeim þegar ég heyrði að við gætum mætt þeim ef við myndum vinna okkar leik. Þeir unnu þeirra leik sem er gott. Ég hlakka til að mæta þeim, ég hef oft spilað gegn þeim og þetta verður gaman.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
KR sló SJK frá Finnlandi út í síðustu umferð á meðan Maccabi Tel Aviv lagði Tirana frá Albaníu.

Willum Þór Þórsson, þjálfari KR
Ég er búinn að skoða þessi tvo leiki gegn Tirana. Þeir hljóta að teljast sigurstranglegra liðið í þessu en ef við náum jákvæðum úrslitum og höldum markinu hreinu þár er allt hægt í þessu. Við freistum þess að verjast vel og eiga möguleika í heimaleiknum.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Viðar Örn Kjartansson er aðalframherji Maccabi Tel Aviv en hann varð markahæstur í ísraelsku deildinni á síðasta tímabili.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Leikurinn hefst klukkan 18:00 í Ísrael eða 15:00 að íslenskum tíma. Hitinn verður í kringum 30 gráður á meðan á leik stendur og því verður líklega gerð ein drykkjarpása í hvorum hálfleik.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Góðan daginn.
Hér verður fylgst með leik Maccabi Tel Aviv og KR í 2. umferð Evrópudeildarinnar. Um er að ræða fyrri leik liðanna.
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið:
1. Stefán Logi Magnússon (m)
Pálmi Rafn Pálmason ('69)
2. Morten Beck
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Gunnar Þór Gunnarsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
8. Finnur Orri Margeirsson
11. Kennie Chopart (f) ('88)
11. Tobias Thomsen ('85)
18. Aron Bjarki Jósepsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)

Varamenn:
1. Beitir Ólafsson (m)
3. Ástbjörn Þórðarson ('88)
9. Garðar Jóhannsson
20. Robert Sandnes ('69)
23. Atli Sigurjónsson
23. Guðmundur Andri Tryggvason ('85)
29. Óliver Dagur Thorlacius

Liðsstjórn:
Willum Þór Þórsson (Þ)

Gul spjöld:
Gunnar Þór Gunnarsson ('15)

Rauð spjöld: