Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
19:15 0
0
Valur
KR
0
0
KA
17.09.2017  -  16:00
Alvogenvöllurinn
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Hliðarvindur frá stúku, 11 stiga hiti. Völlurinn litur virkilega vel út. Fínar haustaðstæður.
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 519
Maður leiksins: Pálmi Rafn Pálmason
Byrjunarlið:
1. Beitir Ólafsson (m)
Pálmi Rafn Pálmason
2. Morten Beck
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson ('85)
8. Finnur Orri Margeirsson
11. Kennie Chopart (f) ('88)
15. André Bjerregaard ('16)
18. Aron Bjarki Jósepsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Guðmundur Andri Tryggvason

Varamenn:
1. Stefán Logi Magnússon (m)
13. Sindri Snær Jensson (m)
3. Ástbjörn Þórðarson
9. Garðar Jóhannsson ('88)
11. Tobias Thomsen ('16)
20. Robert Sandnes ('85)
24. Valtýr Már Michaelsson
29. Óliver Dagur Thorlacius

Liðsstjórn:
Willum Þór Þórsson (Þ)
Arnar Gunnlaugsson
Magnús Máni Kjærnested
Valgeir Viðarsson
Jón Hafsteinn Hannesson
Henrik Bödker
Óðinn Svansson

Gul spjöld:
Guðmundur Andri Tryggvason ('45)
Kennie Chopart ('69)
Tobias Thomsen ('72)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
93. mín
Svakalegt atriði.

Thomsen skorar og mikil fagnaðarlæti brjótast út. Þegar KA er komið með boltann á miðju verður reikistefna og menn dæma rangstöðu, talið að Garðar hafi verið í sjónlínu markmannsins. Markið dæmt af!
90. mín
Uppbótartíminn verður 6 mínútur...

88. mín
Inn:Garðar Jóhannsson (KR) Út:Kennie Chopart (KR)
87. mín
Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA) Út:Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
86. mín
Trninic í fínu skallafæri úr horni en þessi fer beint á Beiti.
85. mín
Inn:Robert Sandnes (KR) Út:Skúli Jón Friðgeirsson (KR)
Skúli fékk höfuðhögg og þarf að kveðja leik.

Arnór fer í hafsentinn og Sandnes í bakvörð.
82. mín
KA fengu hérna tvö horn á stuttum tíma og töluverður darraðadans í gangi í þeim báðum. Hins vegar ná KR að hreinsa að lokum.
76. mín
Inn:Almarr Ormarsson (KA) Út:Archie Nkumu (KA)
Mættur á sinn gamla heimavöll...
74. mín
Emil Lyng með fínt upphlaup og skot úr teignum sem fer naumlega framhjá á fjær.
72. mín Gult spjald: Emil Lyng (KA)
72. mín Gult spjald: Tobias Thomsen (KR)
Stoppaði þegar KA ætlaði að taka aukaspyrnu hratt.
69. mín Gult spjald: Kennie Chopart (KR)
Ýtti við Elfari í kjölfarið.
69. mín Gult spjald: Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Braut á Chopart
68. mín Gult spjald: Archie Nkumu (KA)
Stoppar skyndisókn.
66. mín
GEGGJUÐ varsla.

Thomsen neglir aukaspyrnunni á fjærhorn en Rajko varði þennan í horn sem ekkert varð úr.
65. mín
Aukaspyrna fyrir KR á STÓRHÆTTULEGUM stað.
64. mín Gult spjald: Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Sýndist þetta allavega vera Hallgrímur, það er þá fyrir tuð.
62. mín
Inn:Guðmann Þórisson (KA) Út:Darko Bulatovic (KA)
Williams fer í bakvörðinn.
62. mín
Thomsen kom sér í skotfæri utan við teiginn en skotið er laust of fer framhjá.
55. mín
Finnur Orri með skot rétt framhjá úr teignum.

KR að herða tökin.
53. mín Gult spjald: Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
52. mín
Fyrirgjöf Óskars frá vinstri er nálægt því að sigla í markið en Rajko blakar í horn.
50. mín
Snörp skyndisókn KA endar með skalla frá Elfari úr teignum sem fer rétt framhjá.
49. mín
KR byrja sterkt hér í upphafi síðari.
46. mín
Leikur hafinn
Þá rúllum við í gang.
45. mín
Hálfleikur
Býsna steindautt hingað til!!!
45. mín Gult spjald: Guðmundur Andri Tryggvason (KR)
45. mín
Pálmi með skot úr teignum en Rajko fer létt með þennan.
43. mín
Loksins alvöru færi og það er KA manna.

Hallgrímur stingur inn í teinginn á Ásgeir sem kemst inn á markteig og neglir að marki en boltinn vel framhjá á fjær. Átti að gera betur.
41. mín
Hið klassíska KR-horn. Óskar tekur stutt frá hægri, fær boltann aftur, tékkar inn og skýtur.

Beint á Rajko.
39. mín
Bulatovic féll hér í jörðina og heldur um höfuðið. Pétur lét leikinn halda áfram við litla gleði KA sem ná þó að koma boltanum í horn og láta þá Pétur hlýða á norðlensku.
36. mín
Þá sést Beitir í fyrsta skipti, fer og hirðir fyrirgjöf frá vinstri.
32. mín
Snöggt upphlaup KR enda fyrir fótum Óskars sem á skot af vítateigslínunni.

Það er laust og rúllar framhjá.
28. mín
KR er aðeins að halda boltanum betur en í byrjun og eru aðeins farnir að þrýsta á gestina.

Enn mjög bitlaust á síðasta þriðjungnum.
25. mín
Enn verið að dæma rangstöðu.

Höfum fengið ca. 8 slíkar frá upphafi leiks.
21. mín
Loksins sókn frá KR og þá var hún býsna þung.

Óskar með flotta takta vinstra megin sem leggur á Thomsen en skotið hans ónákvæmt og fer af varnarmanni út í teiginn þar sem KA menn að lokum koma boltanum í burtu.
18. mín
Þessi leikur er varla byrjaður eiginlega.

Bæði lið eru töluvert meira en varkár...
16. mín
Inn:Tobias Thomsen (KR) Út:André Bjerregaard (KR)
Bjerregaard gat ekki haldið áfram, Thomsen fer upp á toppinn hef ég trú á.
14. mín
KA eru að spila sama kerfi.

Rajkovic

Hrannar - Turkalj - Williams - Bulatovic

Trninic - Nkumu

Ásgeir - Lyng - Hallgrímur

Elfar
12. mín
Bjerregaard lagðist aftur niður og fær aðhlynningu, held að hann sé að ljúka leik.
10. mín
KR spila 4-1-4-1

Beitir

Beck - Aron - Skúli - Arnór

Finnur - Pálmi

Bjerregaard - Chopart - Óskar

Guðmundur.

Þessir fjórir fremstu rótera mikið.



9. mín Gult spjald: Aleksandar Trninic (KA)
Þetta var appelsínugult!

Trninic kemur í svakalega tæklingu á Bjerregaard...
3. mín
Fyrsta færið er KA manna. Flott sending frá Hallgrími af vinstri kantinum og Elfar skallar framhjá af markteignum.

Hann átti að hitta markið þarna.
2. mín
Ásgeir leggst hér í völlinn og heldur um lærið. Heldur áfram um stund a.m.k.
1. mín
Leikur hafinn
Þá hefur verið lagt af stað!
Fyrir leik
Guðmundur Andri með flotta sendingu í gegn á Bjerregaard en sá er dæmdur rangstæður. Naumt.
Fyrir leik
Liðin eru mætt á völlinn og hafa smellt saman höndum.

Þetta er rétt að detta í gang.
Fyrir leik
Almarr Ormarsson myndi nú væntanlega vilja vera að byrja hér inná á sínum gamla heimavelli...en hann þarf eitthvað aðeins að bíða eftir því a.m.k.

Pálmi Rafn fyrirliði KR er einn fjölmargra uppaldra Húsvíkinga á vellinum, hann lék með KA milli 2003 og 2005.

Fyrir leik
Dómarateymið er þannig skipað að hann Pétur Guðmundsson er á flautunni í dag, honum til aðstoðar og með flögg eru Gunnar Helgason og Vlateslav Titov.

Fjórði dómarinn er Jóhann Ingi Jónsson og í eftirliti er Eyjólfur Ólafsson. Fagmenn á svæðinu!
Fyrir leik
Leikmannahópar beggja liða eru skipaðir sömu einstaklingum og að undanförnu, enginn leikmaður er í banni hjá liðunum og engin ný meiðsli.
Fyrir leik
KR koma til leiks eftir að hafa unnið Breiðablik 1-3 á Kópavogsvellinum en KA gerðu á meðan jafntefli við meistaraefni Valsmanna á heimavelli.
Fyrir leik
Fyrri leik liðanna á Akureyrarvelli lauk með 2-3 sigri Vesturbæinga.

Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði bæði mörk KA en Óskar Örn Hauksson, Kennie Chopart og Tobias Thomsen fyrir KR.
Fyrir leik
KR-ingar eygja enn séns á Evrópusæti og þurfa þess vegna nauðsynlega sigur í dag, á meðan það er eilítið sérkennilegt að segja þá þurfa KA að næla sér í stig svo þeir séu algerlega vissir um að falla ekki niður um deild.

Auðvitað þarf fáránlega mikið að gerast til að svo fari...en þetta er óvenjulegt mót!
Fyrir leik
Leikurinn er liður í 20.umferð PEPSI deildar, einn fimm leikja sem fara fram í dag. Leik Víkings Ó. og Víkings R. var frestað vegna veðurs.

Fyrir leikinn sitja liðin hlið við hlið í deildinni, KR er í 4.sæti með 29 stig en KA eru í sætinu fyrir neðan með 25 stig.
Fyrir leik
Jú góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá KR-vellinum við Frostaskjól.

Framundan er leikur tveggja Knattspyrnufélaga...eitt úr Reykjavík og annað frá Akureyri.
Byrjunarlið:
Srdjan Rajkovic
Aleksandar Trninic
3. Callum Williams
4. Vedran Turkalj
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f) ('87)
19. Darko Bulatovic ('62)
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Archie Nkumu ('76)
28. Emil Lyng

Varamenn:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
4. Ólafur Aron Pétursson
5. Guðmann Þórisson ('62)
7. Almarr Ormarsson ('76)
23. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('87)
30. Bjarki Þór Viðarsson

Liðsstjórn:
Srdjan Tufegdzic (Þ)
Davíð Rúnar Bjarnason
Eggert Högni Sigmundsson
Óskar Bragason
Petar Ivancic
Anna Birna Sæmundsdóttir
Helgi Steinar Andrésson

Gul spjöld:
Aleksandar Trninic ('9)
Ásgeir Sigurgeirsson ('53)
Hallgrímur Mar Steingrímsson ('64)
Archie Nkumu ('68)
Elfar Árni Aðalsteinsson ('69)
Emil Lyng ('72)

Rauð spjöld: