Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
KA
0
1
Grindavík
0-1 Gunnar Þorsteinsson '57
29.03.2018  -  14:00
Boginn
Undanúrslit Lengjubikarsins
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Byrjunarlið:
Hallgrímur Jónasson
Hallgrímur Mar Steingrímsson
Aleksandar Trninic
Cristian Martínez ('13)
3. Callum Williams
5. Guðmann Þórisson (f)
7. Daníel Hafsteinsson ('82)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
17. Ýmir Már Geirsson ('66)
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Archie Nkumu ('66)

Varamenn:
18. Aron Elí Gíslason (m) ('13)
4. Ólafur Aron Pétursson ('82)
7. Hjörvar Sigurgeirsson
7. Patrekur Hafliði Búason
28. Sæþór Olgeirsson ('66)
29. Bjarki Freyr Árnason
35. Frosti Brynjólfsson ('66)

Liðsstjórn:
Srdjan Tufegdzic (Þ)
Srdjan Rajkovic
Óskar Bragason
Petar Ivancic
Anna Birna Sæmundsdóttir
Helgi Steinar Andrésson

Gul spjöld:
Archie Nkumu ('29)
Ýmir Már Geirsson ('55)
Daníel Hafsteinsson ('74)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Grindvíkingar virkar hrikalega vel samstilltir fyrir sumarið. Allir vita sitt hlutverk 100%.

Gunnar Þorsteinsson með eina markið í dag og Grindavík mætir Íslandsmeisturum Vals í úrslitaleik Lengjubikarsins þann 5. apríl!

Þökkum samfylgdina í dag.
Elvar Geir Magnússon
95. mín
Hallgrímur Mar tekur aukaspyrnuna. Skotið í varnarmann og framhjá. Hornspyrna. Síðasti séns!

Jajalo með hörkumarkvörslu og er að tryggja Grindavík sigurinn!
Elvar Geir Magnússon
95. mín
KA fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Brotið á Guðmanni... fáum við flautumark frá KA?
Elvar Geir Magnússon
91. mín
Uppbótartími í gangi. Fimm mínútum var bætt við.
Elvar Geir Magnússon
89. mín
BJARGAÐ Á LÍNU!!! JÓHANN HELGI HANNESSON BJARGAR Á LÍNU! Elfar Árni með skalla eftir hornspyrnu en Jóhann bjargar á línu. Boltinn dettur svo út á Guðmann sem þrumar boltanum yfir! KA hársbreidd frá því að jafna!
Elvar Geir Magnússon
87. mín
Jóhann Helgi í hörkufæri! Náði ekki almennilegu valdi á boltanum og skotið framhjá.
Elvar Geir Magnússon
84. mín
Það er að duga eða drepast fyrir KA. Áhugaverðar lokamínútur framundan.
Elvar Geir Magnússon
82. mín
Inn:Ólafur Aron Pétursson (KA) Út:Daníel Hafsteinsson (KA)
Elvar Geir Magnússon
81. mín
Inn:Edu Cruz (Grindavík) Út:Brynjar Ásgeir Guðmundsson (Grindavík)
Elvar Geir Magnússon
80. mín
FRÁBÆR MARKVARSLA! Aron Elí með Cech hjálminn tekur vörslu upp á 9/10 eftir hornspyrnu. Björn Berg skallaði á markið. Grindvíkingar eru að pressa þessar mínútur og hóta öðru marki.
Elvar Geir Magnússon
74. mín Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (KA)
Reif niður Grindvíking sem var að reyna að brjóta sér leið í gegn. Skólabókardæmi um gult spjald.
Elvar Geir Magnússon
73. mín
Hallgrímur Mar henti í þreföld skæri og vann horn. Ekkert kom út úr horninu.
Elvar Geir Magnússon
71. mín Gult spjald: Brynjar Ásgeir Guðmundsson (Grindavík)
Of seinn í tæklingu og fer í svörtu bókina hjá Hjaltalín.
Elvar Geir Magnússon
69. mín
Inn:Simon Smidt (Grindavík) Út:Marinó Axel Helgason (Grindavík)
Elvar Geir Magnússon
68. mín
Hallgrímur með fín tilþrif, fór illa með Björn Berg Bryde sem hefur átt flottan leik hingað til. Grindavík náði að koma hættunni frá á endanum.
Elvar Geir Magnússon
66. mín
Inn:Frosti Brynjólfsson (KA) Út:Ýmir Már Geirsson (KA)
Elvar Geir Magnússon
66. mín
Inn:Sæþór Olgeirsson (KA) Út:Archie Nkumu (KA)
Elvar Geir Magnússon
64. mín
Ýmir Már Geirsson með skot úr fínni stöðu, skotið í varnarmann.
Elvar Geir Magnússon
57. mín MARK!
Gunnar Þorsteinsson (Grindavík)
Stoðsending: Rodrigo Gomes Mateo
AFSKAPLEGA HUGGULEGT MARK FRÁ FYRIRLIÐANUM!!!

Gunnar gabbar Guðmann Þórisson í teignum og klárar hrikalega snyrtilega. Ísinn er brotinn og það er sveitastjórasonurinn sem sér um það.
Elvar Geir Magnússon
55. mín Gult spjald: Ýmir Már Geirsson (KA)
Elvar Geir Magnússon
54. mín
Inn:Will Daniels (Grindavík) Út:Alexander Veigar Þórarinsson (Grindavík)
Elvar Geir Magnússon
53. mín
GRINDAVÍK Í HÖRKUFÆRI! Boltinn dettur á Alexander Veigar í teignum og hann á fínasta skot sem sleikir fjærstöngina. Grindvíkingar hafa ekki komist nær því að skora í þessum leik.
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur. Leikurinn ekki alveg staðið undir væntingum. KA komist nær að því að skora.
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
34. mín
Hornspyrna hjá Grindavík. Aron Elí í miklu basli í markinu en sleppur með skrekkinn.
Elvar Geir Magnússon
32. mín
Gunnar Þorsteinsson með hrikalega vonda fyrirgjöf. Flýgur afturfyrir. Köllum eftir aðeins meiri gæðum í þennan leik.
Elvar Geir Magnússon
29. mín Gult spjald: Archie Nkumu (KA)
Fyrir brot.
Elvar Geir Magnússon
26. mín
Ákaflega tíðindalitlar mínútur í gangi núna...
Elvar Geir Magnússon
19. mín
Inn:Jóhann Helgi Hannesson (Grindavík) Út:Juanma Ortiz (Grindavík)
Juanma Ortiz sárþjáður eftir samstuð. Þetta lítur ekki vel út. Hann getur ekki haldið leik áfram. Vonandi ekki alvarlegt.

Jóhann Helgi Hannesson kemur inn. Þekkir Bogann vel enda kom hann til Grindavíkur frá Þór í vetur. "Jóhann skorar alltaf mörk" segir í laginu.
Elvar Geir Magnússon
16. mín
KA-menn talsvert líklegri, sækja meira. Elfar Árni með marktilraun en boltinn fór yfir markið.
Elvar Geir Magnússon
13. mín
Inn:Aron Elí Gíslason (KA) Út:Cristian Martínez (KA)
Cristian Martínez, markvörðurinn sem KA fékk frá Víkingi Ólafsvík í vetur, er eitthvað meiddur og yfirgefur völlinn. Töltir af velli og inn kemur Aron Elí varamarkvörður.
Elvar Geir Magnússon
12. mín
Hallgrímur Mar með skot af löngu færi en nær ekki miklum krafti í skotið, hann skoppar í teignum og endar í fanginu á Jajalo.
Elvar Geir Magnússon
10. mín
Elfar Árni með skalla á fjærstönginni eftir horn. Kristijan Jajalo, einn besti markvörður Pepsi-deildarinnar í fyrra, nær að verja.
Elvar Geir Magnússon
8. mín
Fyrsta marktilraunin hjá KA. Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindavíkur og sveitastjórasonur, missti boltann klaufalega. Sóknin endaði með skoti frá Archie Nkumu en þokkalega langt frá markinu.
Elvar Geir Magnússon
4. mín
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson, strákur sem er fæddur 2000, stóð ekki undir nafni þarna. Hitti ekki boltann í fínu færi... reyndar búið að flagga rangstöðu.
Elvar Geir Magnússon
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað. Bláklæddir Grindvíkingar hófu leikinn. Hann er sýndur á Stöð 2 Sport þar sem Tómas Þór Þórðarson lýsir. Fólk verður ekki svikið af því.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.

Hallgrímur Jónasson og Guðmann Þórisson eru í hjarta varnar KA. Klárlega eitt besta, og líklega besta, miðvarðapar Pepsi-deildarinnar. Hallgrímur kom heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið og var eftirsóttur. 32 ára miðvörður sem á sextán landsleiki.

Grindvíkingar hafa gríðarlega vel samstillt lið. Óli Stefán Flóventsson hefur verið að gera magnaða hluti og leikmenn þekkja hvorn annan út og inn.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Grindvíkingar hafa meðal annars lagt FH og Fylki í Lengjubikarnum þetta tímabilið. Einu töpuðu stig þeirra voru gegn Þór, þar sem liðin léku í Akraneshöllinni í febrúar og endaði sá leikur 0-0.

Það hefur verið góður bragur á KA en liðið vann fjóra af fimm leikjum sínum í riðlakeppni Lengjubikarsins. Í "ótímabæru spánni" í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag var KA spáð öðru sæti Pepsi-deildarinnar en Grindavík því sjötta.

Þóroddur Hjaltalín dæmir leikinn í dag. Aðstoðardómarar eru Ásgeir Þór Ásgeirsson og Eðvarð Eðvarðsson.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
KA og Grindavík mætast í undanúrslitum Lengjubikars karla í Boganum á Akureyri klukkan 14. Bæði lið hafa litið afar vel út á undirbúningstímabilinu.

Sigurvegari leiksins mætir Val í úrslitaleiknum 5. apríl en Valsmenn unnu sannfærandi sigur á Stjörnunni í hinum undanúrslitaleiknum í síðustu viku.

Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og er textalýsingin unnin úr þeirri útsendingu.
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
12. Kristijan Jajalo (m)
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Nemanja Latinovic
8. Gunnar Þorsteinsson (f)
9. Matthías Örn Friðriksson
11. Juanma Ortiz ('19)
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
21. Marinó Axel Helgason ('69)
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson ('81)
24. Björn Berg Bryde
80. Alexander Veigar Þórarinsson ('54)

Varamenn:
3. Edu Cruz ('81)
7. Will Daniels ('54)
13. Jóhann Helgi Hannesson ('19)
19. Simon Smidt ('69)
26. Sigurjón Rúnarsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson

Liðsstjórn:
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Maciej Majewski
Milan Stefán Jankovic
Arnar Már Ólafsson
Sigurvin Ingi Árnason
Jóhann Ingi Ármannsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Brynjar Ásgeir Guðmundsson ('71)

Rauð spjöld: