Stjarnan
5
0
Þróttur R.
Baldur Sigurðsson '36 1-0
Guðmundur Steinn Hafsteinsson '43 2-0
Guðmundur Steinn Hafsteinsson '62 3-0
Guðmundur Steinn Hafsteinsson '80 4-0
Hilmar Árni Halldórsson '89 5-0
30.05.2018  -  19:15
Samsung völlurinn
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Aðstæður: Létt gola og sólskin. Gervigrasið lítur alltaf vel út.
Dómari: Bjarni Hrannar Héðinsson
Maður leiksins: Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan)
Byrjunarlið:
Haraldur Björnsson
2. Heiðar Ægisson
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
7. Guðjón Baldvinsson ('57)
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
16. Ævar Ingi Jóhannesson
20. Eyjólfur Héðinsson ('7)
22. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
29. Alex Þór Hauksson (f)

Varamenn:
13. Terrance William F. Dieterich (m)
5. Óttar Bjarni Guðmundsson ('66)
6. Þorri Geir Rúnarsson
8. Baldur Sigurðsson ('7) ('66)
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
14. Hörður Árnason
18. Sölvi Snær ('57)

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Veigar Páll Gunnarsson
Fjalar Þorgeirsson
Davíð Sævarsson
Friðrik Ellert Jónsson
Jón Þór Hauksson
Andri Freyr Hafsteinsson

Gul spjöld:
Guðmundur Steinn Hafsteinsson ('71)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Bjarni hefur blásið í flautuna sína og Stjörnumenn fara með fremur auðveldan 5-0 sigur af hólmi.

Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
90. mín Gult spjald: Guðmundur Friðriksson (Þróttur R.)
89. mín MARK!
Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
Stoðsending: Ævar Ingi Jóhannesson
Stjarnan er kominn í 5-0 endurtek 5-0. Fremur auðvelt mark sem að endar á því að Ævar vippar boltanum á kollinn á Hilmari Árna sem að setur boltann í netið.


87. mín
Arnar Darri með geggjaða vörslu eftir gott skot frá Alexi. Stjarnan fær hornspyrnu
85. mín
Stórhætta við mark Þróttar! Sölvi Snær er en og aftur með geggjaðan sprett upp hægri vænginn og leggur boltann fyrir markið á Óttar Bjarna en frábær tækling frá varnarmanni Þróttar rétt áður en Óttar nær skotinu.
83. mín
Það er smá rígur í stúkunni Silfurskeiðin biður Hauk Köttara nr 1. að vinka. Haukur stendur upp klæðir sig úr jakkanum og flexar bakinu á þróttarar treyjunni og bendir á "Köttari 1". Elska þetta
80. mín MARK!
Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan)
ÞRENNA! Þetta er lauflétt Dirk Kuyt þrenna hjá Guðmundi í kvöld. Hirðir boltann upp í teignum eftir að hann skoppar af varnarmanni til hans. Sá er að troða sokk í marga hérna í dag!
79. mín
Sölvi SNær hefur heillað mig gífurlega í dag og komið virkilega sprækur inn. Það eru tíu mínútur eftir af þessum leik.
76. mín
Vilhjálmur Kaldal strax búin að gera meira en Jasper en hann kemur hér með geggjaða fyrirsendingu en það er bara enginn mættur frá Þrótti til að stanga hann í netið.
75. mín
Það hefur aðeins róast yfir þessu skiljanlega. Sýnist að Stjarnan sé að fara sigla þessu þæginlega heim en Köttararnir syngja og syngja það er til fyrirmyndar.
75. mín
Inn:Rafn Andri Haraldsson (Þróttur R.) Út:Aron Þórður Albertsson (Þróttur R.)
73. mín
Inn:Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Jasper Van Der Heyden (Þróttur R.)
Var Jasper með í þessum leik?
71. mín Gult spjald: Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan)
Karl Brynjar liggur hér eftir návígi við Guðmund Stein
69. mín
Það er mikil gleði Stjörnumegin í stúkunni og Silfurskeiðin er dugleg að taka hress lög. Ekki alveg jafn mikil stemming hjá gestunum í stúkunni en þeir taka samt eitt stykki" Þróttur Þróttur Þróttur" núna.
67. mín Gult spjald: Haraldur Árni Hróðmarsson (Þróttur R.)
Set spjaldið á Halla en dómarinn spjaldaði bekkinn en ég sé ekki hver það er.
67. mín Gult spjald: Víðir Þorvarðarson (Þróttur R.)
66. mín
Inn:Óttar Bjarni Guðmundsson (Stjarnan) Út:Baldur Sigurðsson (Stjarnan)
Baldur fékk 60 mínútur í þessum leik kom inn á í kringum 5 mínútu skilar sínu og fer af velli í 3-0.
63. mín Gult spjald: Henry Rollinson (Þróttur R.)
Rollarinn pirraður og sparkar boltanum í burtu.
62. mín MARK!
Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan)
Stoðsending: Hilmar Árni Halldórsson
Guðmundur með sitt annað mark í dag!! Frábær undirbúningur frá Sölva Snæ sem að setur góðan bolta eftir jörðinni inn á teiginn þar kemur Hilmar Árni og tekur boltann með hælnum aftur fyrir sig á Gumma Hárfagra sem að skorar framhjá Arnari Darra.
60. mín
Stórhætta í teig gestanna eftir hornspyrnu frá Hilmari Árna. Baldur Sig tekur skot sem fer í varnarmann og skoppar fyrir framan Arnar Darra en hann handsamar knöttinn rétt áður en Stjörnumenn komast í hann.
59. mín
Silfurskeiðin er að kasta í gamla slagara hérna og syngja til heiðurs Veigari Pál
59. mín
Víðir nær laflausum skalla á markið sem að Haraldur grípur fremur auðveldlega.
57. mín
Inn:Sölvi Snær (Stjarnan) Út:Guðjón Baldvinsson (Stjarnan)
Hilmar Árni á hér skalla framhjá og um leið gera Stjörnumenn skiptingu.

Guðjón Baldvinsson víkur fyrir ungstirninu Sölva Snæ en hann er fæddur árið 2001 risa tækifæri fyrir hann.
54. mín
Hreinn Ingi brýtur hér á Guðjóni rétt fyrir utan vítateig heppinn að sleppa við gult spjald.

Hilmar Árni er mættur til að taka spyrnuna. Spyrnan er góð en fer framhjá markinu ég er ekki viss hvort Arnar varði spyrnuna eða hvort að boltinn fór í varnarmann en Stjarnan fær tvö horn í röð.
53. mín
Fyrir áhugasama er fjölmiðla kóngurinn Elvar Geir mættur í frystikistuna ef þið viljið fá selfies eða áritun.
49. mín
Guðjón Baldvins með flottan sprett upp að endanlínu setur boltann fyrir markið en varnarmenn Þróttar koma boltanum út fyrir teiginn. Þar kemur Tóti og tekur skotið með hægri en það er ekki í sama gæðaflokk og steikurnar hans Kjarra Vídó.
47. mín
Stjarnan fær hornsprynu sem að Hilmar tekur beint á kollinn á Brynjari Gauta en skalli hans fer framhjá markinu.
46. mín
Þróttur fær horn á upphafs mínútu síðari hálfleiks.

Köttarar henda í gamla góða Premiership lagið "Dududududud" Veit þið byrjuðu að raula með.

Spyrnan frá Víðir er föst en varnarmenn Stjörnunar koma boltanum frá.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur á Samsung velli.
Fyrstu 30 mínúturnar í þessum hálfleik voru vægast sagt slakar en það hefur aðeins lifnað yfir þessu síðustu mínúturnar. Stjarnan leiðir 2-0 en Þróttur og þá sérstaklega Daði hafa ógnað á köflum.

Hvað gerist í seinni hálfleik?
43. mín MARK!
Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan)
Stoðsending: Heiðar Ægisson
Hinn hárfagri Guðmundur Steinn hefur komið Stjörnunni í 2-0!!
Stjarnan koma hratt upp völlinn þar sem Guðmundur Steinn setur boltann út á hægri kantinn og keyrir inn í teig. Heiðar Ægis tekur léttan klobba út á vængnum áður en hann sendir hann fyrir þar sem Guðmundur mætir og tekur eitt touch áður en hann klárar færið auðveldlega.
40. mín
Þróttur í færi! Daði Bergsson með geggjaðan bolta fyrir markið þar sem Heiðar Ægis tekur eina fáranlegustu ballet tilraun sem ég hef séð í boltann og missir af honum. Þar mætir Viktor Jóns og nær ágætis skoti með vinstri en Halli í markinu er góður keeper og ver þetta þæginlega.
38. mín
Flottur sprettur hjá Ævari fær boltann rétt fyrir utan teiginn og tekur létta fittu framhjá varnamanninum og tekur svo skotið með vinstri en Arnar Darri ver það örruglega í markinu.
36. mín MARK!
Baldur Sigurðsson (Stjarnan)
Stoðsending: Hilmar Árni Halldórsson
SVARIÐ ER JÁ!!! Stjarnan er búinn að skora eftir frábæra aukaspyrnu virðist Baldur vera einn í heiminum inná markteig gestanna og á í engu erfiðleikum með að klára þetta færi með kollinum!
35. mín
Það er brotið á Guðjóni á hættulegum stað hægra megin við teiginn. Hilmar Árni gerir sig klárann í að taka spyrnuna fáum við mark núna?

34. mín
"Díses Kræst maður" heyrist í stúkunni núna. Ef að fólk er ekki búið að átta sig á því þá er þessi fótboltaleikur mjög dapur. "Sólin er meira að segja hætt að skína" heyrist í fjölmiðlaboxinu
32. mín
Menn eru bara að missa sig þessa stundina í skotæði. Núna á Baldur skot fyrir utan teig eftir að Guðmundur leggur boltann vel á hann en Arnar Darri er búin að hafa það hugguleg hingað til og handsamar knöttinn sem fór beint á hann.
29. mín
Messi taktar hjá Hilmari Árna! Keyrir á Hrein Inga sem að lendir bara í semí ökklabrjót eftir frábæra hreyfingu frá Hilmari. Hann fer svo í skotið en Arnar Darri er alltaf með þetta í markinu.
26. mín
Þetta kemst ekki í "Highlights pakkan" segir kolleggi minn frá Vísir. Aron Þórður á eitt slappasta skot sem ég hef séð utan af velli langt yfir markið.


"Jæja Stjörnumenn" Heyristúr stúkunni áhorfendur Stjörnunar ekki sáttir með liðið sitt.
25. mín
ÞAÐ ER KOMIÐ SKOT!!

Daði Bergsson er greinilega með smá lífsmarki hérna þegar hann tekur á rás enn á ný upp hægri vænginn keyrir inn í teiginn og á fast skot í hliðarnetið!
24. mín
Nei nei þá allt í einu kemur mikill sprettur frá Daða upp hægri kantinn og kemur með hættulegan kross sem að Heiðar hreinsar. Ef Heiðar hefði ekki náð þessum þá var Viktor hangandi eins og gammur fyrir aftan hann tilbúinn að klára færið.
23. mín
Danni gefur á Baldur þaðan fer boltinn til Hilmars sema að leggur hann á Þorstein en sendinginn hans fer beint á Hrein sem að hreinsar í innkast. Þorsteinn tekur innkastið á Baldur sem gefur á Danna sem að gefur á Hilmar og það er brotið á Hilmari. Stjarnan fær Aukaspyrnu.

Svona er leikurinn búin að vera fyrstu 23 mínúturnar.
21. mín
Áfram Þróttur heyrist kallað í stúkunni og á meðan Silfurskeiðin sötrar létta mjólk með pizzu frá Pizzunni og negla á trommuna.
18. mín
Stjarnan er að henda í skemmtilega Tiki Taka bolta hérna með einnar snertinga fótbolta áður en hann endar hjá Heiðari út á hægri vængnum en fyrirgjöf hans fer af varnarmanni og í Horn.
16. mín
Þetta var tæpt! Daði Bergsson er kominn einn í gegn en missir boltann aðeins of langt frá sér og Daníel "Speddy Gonzales" Laxdal eftir þennan sprett hleypur hann uppi og vann boltann áður en Daði komst á skrið.
13. mín
Stjarnan fær hornspyrnu eftir darraðardans inn í teig Þróttar. Alex Þór á góða sendingu á kollinn á Guðmundi sem að skallar boltann upp í lofti áður en varnarmenn Þróttar skalla boltann í horn.

Það skapast smá hætta eftir hornspyrnuna hjá Hilmari en boltinn endar svo fyrir aftan markið og sóknin rennur út í sandinn.
10. mín
Baldur Sig fær aukaspyrnu út á vinstri vængnum sem að Hilmar Árni tekur.

Spyrnan er góð hjá Hilmari en skalla kóngurinn Karl Brynjar kemur boltanum frá.
Hættan er þó ekki liðin hjá því að Stjörnumenn ná frákastinu það kemur flottur boltur fyrir markið þar sem að Ævar nær skallanum en hann er laflaus og Arnar Darri grípur hann auðveldlega.
8. mín
Leikurinn fer heldur rólega af stað. Stjarnan er meira með boltann á meðan Þróttur liggur aðeins til baka.
7. mín
Inn:Baldur Sigurðsson (Stjarnan) Út:Eyjólfur Héðinsson (Stjarnan)
Staðfest hér með.
5. mín
Biddu hvað er að grerast hérna, Eyjólfur Héðinsson virðist bara vera tognaður eftir 5 mínútna leik. Hann er að fara útaf og mér sýnist Baldur Sig koma á sprettinum að varamannabekk Stjörnunar og gerir sig kláran að koma inn á.
3. mín
Það er ekki bara stemming innan vallar heldur líka utan vallar. Tvær af betri stuðningsmannasveitum Íslands Silfurskeiðin og Köttarar eru mætt í stúkuna með mikil læti.
2. mín
#Celebvaktinn er á sínum stað. Grétar Sigfinnur er að sjálfsögðu mættur í stúkuna og ef fólk var að velta því fyrir sér.... já hann lúkkar eins og búnt af tíu þúsund köllum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið af stað og það eru Stjörnumenn sem að byrja með boltann og sækja í átt að Hafnarfirði.

Þróttur Þróttur heyrist í stúkunni Köttarar mættir
Fyrir leik
Liðin ganga hér út á völlinn við dynjandi lófaklapp. Það styttist í Mjólkurbikar veislu.

Þess má geta að Flottó vallarþulurinn óheiðarlegi skellir Scooter og allt tryllist í stúkunni.
Fyrir leik
Burgerinn mættur í fjölmiðlastúkuna en það er ekki það sama að segja um mætinguna í stúkuna. Það eru tíu mínútur í leik og vægast sagt fámennt í stúkunni.
Fyrir leik
Það er fámennt en góðmennt í fjölmiðlabásnum þegar að hálftími er í leik. Sigrún sem er vanalega vallarþulur er í verðskuldaðri utanlandsferð og ekki er varamaðurinn af verri endanum! Ottó Valur Leifsson eða eins og hann er kallaður Flottó tekur mækinn í kvöld.


Fyrir leik
Veðrið í kvöld er upp á 10,5 eins og menn segja. Létt gola með fínasta hitastigi og völlurinn lítur alltaf vel út hjá Stjörnumönnum.
Fyrir leik
Stjarnan vann Fylkir í síðustu umferð í hörkuleik á teppinu í Garðabænum 2-1 á meðan Þróttur fór suður með sjó og sló út Njarðvík 2-4
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið hjartanlega velkominn í beina textalýsingu frá leik Stjörnunar og Þróttar í Mjólkurbikar karla. Mjólk er góð og býst ég við því að leikurinn verði einnig góður
Byrjunarlið:
Arnar Darri Pétursson
3. Árni Þór Jakobsson
4. Hreinn Ingi Örnólfsson (f)
7. Daði Bergsson (f)
8. Aron Þórður Albertsson ('75)
9. Viktor Jónsson
11. Jasper Van Der Heyden ('73)
15. Víðir Þorvarðarson
19. Karl Brynjar Björnsson (f)
23. Guðmundur Friðriksson
24. Henry Rollinson

Varamenn:
12. Sindri Geirsson (m)
2. Finnur Tómas Pálmason
6. Birkir Þór Guðmundsson
10. Rafn Andri Haraldsson ('75)
10. Ólafur Hrannar Kristjánsson
11. Emil Atlason
14. Hlynur Hauksson
18. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('73)

Liðsstjórn:
Gunnlaugur Jónsson (Þ)
Haraldur Árni Hróðmarsson
Jóhann Gunnar Baldvinsson
Baldvin Már Baldvinsson
Valgeir Einarsson Mantyla
Jamie Paul Brassington

Gul spjöld:
Henry Rollinson ('63)
Haraldur Árni Hróðmarsson ('67)
Víðir Þorvarðarson ('67)
Guðmundur Friðriksson ('90)

Rauð spjöld: