Grindavíkurvöllur
miðvikudagur 08. ágúst 2012
kl. 19:15
Pepsideildin
Aðstæður: Skúrir en lítill vindur
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr.
Áhorfendur: 435
Maður leiksins: Kristinn Ingi Halldórsson
Grindavík 2 - 2 Fram
0-1 Kristinn Ingi Halldórsson ('27)
1-1 Iain James Williamson ('59)
1-2 Kristinn Ingi Halldórsson ('73)
2-2 Pape Mamadou Faye ('87)
Byrjunarlið:
1. Óskar Pétursson (m)
3. Ray Anthony Jónsson
8. Iain James Williamson
9. Matthías Örn Friðriksson ('86)
10. Scott Ramsay ('62)
11. Tomi Ameobi
17. Magnús Björgvinsson ('75)
18. Ólafur Örn Bjarnason
21. Mikael Eklund
22. Marko Valdimar Stefánsson
25. Alexander Magnússon

Varamenn:
12. Benóný Þórhallsson (m)
2. Loic Ondo
3. Daníel Leó Grétarsson
6. Pape Mamadou Faye ('62)
7. Alex Freyr Hilmarsson ('75)
11. Hafþór Ægir Vilhjálmsson ('86)
16. Björn Berg Bryde

Gul spjöld:
Alexander Magnússon ('55)
Mikael Eklund ('32)

Rauð spjöld:

Björn Steinar Brynjólfsson
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu af Grindavíkurvelli. Þar koma Framarar í heimsókn í gríðarlega mikilvægum fallbaráttuslag. Liðin eru tilbúin hér sitthvorum megin við textann.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Guðjón Þórðarson þjálfari Grindavíkur gerir eina breytingu á liði sínu frá 1-0 tapinu gegn KR í undanúrslitum Borgunarbikarsins í síðasta leik. Scott Ramsay kemur inn fyrir Hafþór Ægi Vilhjálmsson.

Framarar gera tvær breytingar á liðinu sínu frá 1-0 tapinu gegn FH. Kristinn Ingi Halldórsson og Hlynur Atli Magnússon koma inn fyrir Kristján Hauksson og Steven Lennon sem spilar ekki meira í sumar eftir að hafa ristarbrotnað gegn FH.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikmenn eru að labba hér inná völlinn og þetta fer að byrja.
Eyða Breyta
1. mín
Framara byrja með knöttinn og sækja í átt að sjónum gegn vindinum sem er ekki mikill.
Eyða Breyta
4. mín
Samuel Hewson átti skot í stöng rétt fyrir utan teig en heimamenn náðu að hreinsa. Völlurinn er blautur og menn eru farnir að missa lappirnar undan sér.
Eyða Breyta
12. mín
Liðin skiptast á að vera með boltann en eru ekki að ná að skapa sér almennileg færi.
Eyða Breyta
14. mín
Kristinn Ingi Halldórsson með skalla en boltinn fór vel framhjá. Hinum megin á vellinum fékk Scott Ramsay boltann og átti gott skot rétt fyrir utan teig en Ögmundur Kristinsson greip boltann.
Eyða Breyta
15. mín
Alexander Magnússon fékk stungu sendingu inn fyrir vörn Framara og átti viðstöðulaust skot en boltinn fór yfir markið.
Eyða Breyta
20. mín
Sam Hewson með skot langt utan af velli en boltinn framhjá.
Eyða Breyta
27. mín MARK! Kristinn Ingi Halldórsson (Fram)
Sveinbjörn Jónasson átti fyrirgjöf frá vinstri kanti boltinn fór á fjærstöngina, Jón Gunnar Eysteinsson hoppaði þar manna hæðst og sendi boltann á Kristinn Inga Halldórssonar sem var einn og óvaldaður og setti boltann í markið.
Eyða Breyta
32. mín Gult spjald: Mikael Eklund (Grindavík)

Eyða Breyta
40. mín
Þið verðið að afsaka netið síðan datt eitthvað niður þess vegna er þetta að koma svona seint inn. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson átti hörkuskot sem leit út fyrir að vera fara í markið en Óskar Pétursson varði meistaralega í markinu.
Eyða Breyta
45. mín
Heimamenn áttu tvö fín færi sem að Ögmundur Kristinsson varði í tvígang. Það er kominn hálfleikur hér. Það þarf eitthvað að mikið að gerast ef að Grindvíkingar ætla að reyna að halda sér í deildinni. Því ekki er þetta fótboltinn sem að heldur þeim uppi.
Eyða Breyta
46. mín
Leikurinn er hafin að nýju og eru það heimamenn sem að byrja.
Eyða Breyta
48. mín
Sam Hewson í góðu færi þar sem hann lék á Mikael Eklund og skaut á markið en Óskar Pétursson varði í horn sem ekkert varð úr.
Eyða Breyta
51. mín
Kristinn Ingi Halldórsson með skot inní teig hægra megin en boltinn fór í hliðar netið.
Eyða Breyta
55. mín Gult spjald: Alexander Magnússon (Grindavík)

Eyða Breyta
59. mín MARK! Iain James Williamson (Grindavík)

Eyða Breyta
62. mín Pape Mamadou Faye (Grindavík) Scott Ramsay (Grindavík)

Eyða Breyta
64. mín
Tomi Ameobe fékk fyrirgjöf inní teig og skallaði boltann til Iain Williamson sem átti ekki erfitt verkefni eftir og lagði boltann framhjá Ögmundi í markinu.
Eyða Breyta
72. mín Gult spjald: Hlynur Atli Magnússon (Fram)

Eyða Breyta
73. mín MARK! Kristinn Ingi Halldórsson (Fram)
Eftir hornspyrnu þá kom klafs inní teig en Kristinn Ingi var snöggur að átta sig og skoraði.
Eyða Breyta
75. mín Alex Freyr Hilmarsson (Grindavík) Magnús Björgvinsson (Grindavík)

Eyða Breyta
80. mín
Iain James Williamson með fínt skot sem munaði litli að Tomi Ameobe náði næstum til en boltinn fór framhjá.
Eyða Breyta
86. mín Hafþór Ægir Vilhjálmsson (Grindavík) Matthías Örn Friðriksson (Grindavík)

Eyða Breyta
87. mín MARK! Pape Mamadou Faye (Grindavík)

Eyða Breyta
87. mín
Iain Williamson með flotta fyrirgjöf inní teig frá hægri kanti þar var Pape Faye sem skallaði boltann en Ögmundur Kristinsson varði glæsilega en naði ekki að handsama knöttinn og hann lak inn fyrir línuna.
Eyða Breyta
89. mín Orri Gunnarsson (Fram) Sveinbjörn Jónasson (Fram)

Eyða Breyta
90. mín Leik lokið!
Leik lokið hér í Grindavík þar sem botnliðin skipta með sér stigum. Ég þakka lesninguna og viðtöl og umfjöllun koma síðar í kvöld.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Alan Lowing
5. Kristinn Ingi Halldórsson
6. Halldór Hermann Jónsson
8. Jón Gunnar Eysteinsson
11. Almarr Ormarsson
15. Samuel Hewson

Varamenn:
30. Denis Cardaklija (m)
7. Daði Guðmundsson
16. Andri Freyr Sveinsson
17. Hólmbert Aron Friðjónsson
19. Orri Gunnarsson ('89)

Gul spjöld:
Hlynur Atli Magnússon ('72)

Rauð spjöld: