Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Ísland
2
0
Færeyjar
Kolbeinn Sigþórsson '30 1-0
Kolbeinn Sigþórsson '90 2-0
15.08.2012  -  19:45
Laugardalsvöllur
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Skýjað, 13 stiga hiti
Dómari: Laurent Kopriwa (Lúx)
Áhorfendur: 7.256
Maður leiksins: Kolbeinn Sigþórsson
Byrjunarlið:
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson ('69)
6. Ragnar Sigurðsson ('46)
7. Jóhann Berg Guðmundsson ('69)
8. Birkir Bjarnason
9. Kolbeinn Sigþórsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
13. Bjarni Ólafur Eiríksson ('69)
14. Kári Árnason (f)
17. Aron Einar Gunnarsson ('46)
19. Rúrik Gíslason ('81)

Varamenn:
6. Grétar Rafn Steinsson (f) ('69)
8. Eggert Gunnþór Jónsson ('46)
11. Alfreð Finnbogason
13. Jóhann Laxdal
21. Arnór Ingvi Traustason ('46)
22. Eiður Smári Guðjohnsen ('69)
23. Ari Freyr Skúlason ('69)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Birkir Bjarnason ('26)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Heil og sæl! Framundan er vináttulandsleikur Íslands og Færeyja! Það er glimrandi fín stemning fyrir þessum leik enda um að ræða síðasta leik Íslands fyrir undankeppni EM. Auk þess er þetta fyrsti landsleikur Íslands á Laugardalsvelli undir stjórn Lars Lagerback.

Tólfan, stuðningsmannasveit Íslands, hefur verið endurvakin og er að hita upp á Ölveri þegar þessi orð eru skrifuð.

Ef þið skrifið færslur um leikinn á Twitter er um að gera að merkja þær #fótbolti og valdar færslur verða birtar hér í textalýsingunni

Í byrjunarliði Færeyja eru fjórir leikmenn sem leikið hafa í efstu deild hér á landi. Einn þeirra er hjá Val í dag, Jónas Tór Næs. Pól Jóhannus Justinussen sem lék með Hlíðarendaliðinu í fyrra. Þá eru Fróði Benjaminsen, fyrrum leikmaður Fram, og Simun Samuelsen, fyrrum leikmaður Keflavíkur, einnig í byrjunarliðinu.

Aron Einar Gunnarsson er fyrirliði Íslands í dag og til frambúðar. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í gær. Ljóst er þó að hann mun ekki spila allan leikinn í kvöld þar sem lið hans, Cardiff, á leik á föstudagskvöld. Eiður Smári Guðjohnsen og Grétar Rafn Steinsson eru enn án félags og byrja á bekknum.

Dómaratríóið á leiknum í kvöld kemur frá Lúxemborg. Dómarinn heitir Laurent Kopriwa og er 29 ára gamall. Hann varð FIFA-dómari fyrr á þessu ári en hann starfar sem endurskoðandi.Aðstoðardómararnir eru bræður; Antonio og Claudio De Carolis. Fjórði dómarinn er hins vegar íslenskur og heitir Gunnar Jarl Jónsson.

Íslendingar hafa jafnan haft betur gegn Færeyingum en einu sinni hafa Færeyingar haft betur í 23 leikjum og einu sinni hafa leikar farið jafnir. Færeyingar hafa hinsvegar verið í mikilli sókn undanfarin ár á knattspyrnuvellinum og síðustu leikir á milli þessara þjóða hafa verið jafnir og spennandi.

Eins og flestir vita spilar íslenska landsliðið afbrigði af leikkerfinu 4-4-2 en það var ákveðið fljótlega eftir að Lagerback tók við.

Byrjunarlið Íslands verður opinberað um klukkutíma fyrir leik en hér má sjá byrjunarlið Færeyja.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarlið Íslands:
Gunnleifur
Birkir Már - Raggi - Kári - Bjarni Ól.
Rúrik - Aron - Gylfi - Jói Berg
Birkir Bjarna - Kolbeinn

Aron djúpur og Gylfi fremri að sjálfsögðu. Birkir Bjarna verður aðeins undir Kolbeini.

Eggert Gunnþór kemur inn fyrir Aron í hálfleik og Indriði inn fyrir Ragnar.

Gunnleifur er í markinu en ekki Hannes eins og fyrst var sagt. Biðjumst velvirðingar á þessum mistökum.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Því miður er ekki pláss fyrir alla varamennina í kerfinu okkar.

Varamenn Íslands: Hannes (m), Ingvar (m), Indriði, Eggert, Grétar Rafn, Helgi Valur, Alfreð, Arnór, Eiður, Ari Freyr.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Reynslumesti maður færeyska liðsins er markvörðurinn Jakub Mikkelsen sem varð 42 ára í gær! Hann hefur leikið 72 landsleiki. Hann lék á sínum tíma með Herfölge í Danmörku en hefur leikið í heimalandinu síðan 2004.

Næst reynslumestur er fyrirliðinn Fróði Benjaminsen með 68 landsleiki.

Þeir leikmenn í byrjunarliði Íslands sem leikið hafa flesta landsleiki eru Birkir Már Sævarsson og Aron Einar Gunnarsson með 28 hvor. Á bekknum er síðan Eiður Smári Guðjohnsen sem leikið hefur 67 landsleiki og skorað 24 mörk.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Búið er að spila þjóðsöngvana og leikurinn getur hafist.
Elvar Geir Magnússon
1. mín
Leikurinn er hafinn - Færeyingar sækja í átt að Laugardalslauginni en þeir byrjuðu með boltann.
Elvar Geir Magnússon
6. mín
Jóan Simun með fyrsta skot leiksins. Rann í boltann af löngu færi. Aldrei nein hætta á ferðum. Þreifingar í byrjun leiks.
Elvar Geir Magnússon
8. mín
Hættuleg fyrirgjöf frá Jóa Berg og Birkir Bjarna átti skalla sem fór framhjá. Fín stemning á vellinum.
Elvar Geir Magnússon
Sturlaugur Haraldsson:
Grétar drullastu til að finna lið! Nenni ekki að horfa á fleiri leiki með Birki Má í bakverði
Elvar Geir Magnússon
16. mín
Leikurinn frekar hægur. Birkir Bjarnason vildi fá dæmda aukaspyrnu áðan rétt fyrir utan teig en ekkert var dæmt. Þá kom skalli framhjá frá færeyska liðinu.
Elvar Geir Magnússon
20. mín
Stórhætta í teignum hjá Íslandi en dómarinn dæmdi aukaspyrnu á gestina. Veit ekki alveg á hvað hann var að dæma.

Svo fór Ísland upp og Birkir Bjarnason slapp í gegn en var dæmdur rangstæður. Rangur dómur! Dómaratríóið ekki að byrja þennan leik vel.
Elvar Geir Magnússon
24. mín
Stórhættuleg sókn Íslendinga sem endaði á því að Gylfi Þór Sigurðsson átti skot naumlega framhjá.
Elvar Geir Magnússon
26. mín Gult spjald: Fróði Benjaminsen (f) (Færeyjar)
Elvar Geir Magnússon
26. mín Gult spjald: Birkir Bjarnason (Ísland)
Birkir og Fróði voru í baráttunni um boltann og voru svo ekki sáttir hvor við annan. Gult á báða.
Elvar Geir Magnússon
Hans Bjarnason, íþróttafréttamaður RÚV:
Alvöru dómarar og staðan væri 1-1. #Luxembúrg #Ísland #Færeyjar
Elvar Geir Magnússon
30. mín MARK!
Kolbeinn Sigþórsson (Ísland)
MARK!!! Fyrirgjöf frá Jóa Berg sem fer af varnarmanni og inn á Kolbein Sigþórsson sem tók hann í fyrsta og hamraði honum inn. Vel gert hjá Kolla en illa gert hjá Pól Jóhannes sem er í miðverði færeyska liðsins. 7 mörk í 11 landsleikjum hjá Kolla.
Elvar Geir Magnússon
32. mín
Christian L. Holst með skot naumlega framhjá markinu. Hörkuskotfæri, mér sýndist fyrst að þessi bolti væri inni en sem betur fer var það rangt.
Elvar Geir Magnússon
34. mín
Rúrik Gíslason með gott skot en boltinn framhjá. Það er að lifna yfir þessum leik.
Elvar Geir Magnússon
Tómas Þór Þórðarson:
7 mörk í 11 leikjum hjá Kolla. Eiður með 24 í 67. #fotbolti
Elvar Geir Magnússon
37. mín
Rúrik með annað hörkuskot en boltinn yfir!
Elvar Geir Magnússon
42. mín
Frábær fyrirgjöf frá Rúrik á Kolbein sem skallaði framhjá.
Elvar Geir Magnússon
Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður:
Búið að eyða skrilljónum í Laugardalsvöll (mas dýrasta handrið í heimi) en erum enn með ljótustu vallarklukku sem sést hefur. #dasað
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Inn:Eggert Gunnþór Jónsson (Ísland) Út:Aron Einar Gunnarsson (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Inn:Gunnar Nielsen (Færeyjar) Út:Jákup Mikkelsen (Færeyjar)
Elvar Geir Magnússon
46. mín
Inn:Arnór Ingvi Traustason (Ísland) Út:Ragnar Sigurðsson (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
Þórður Einarsson:
Bjarni olafur jiminn! Þurfum sterkari vorn og varnarleik!
Elvar Geir Magnússon
51. mín
Stórsókn Íslands! Jói Berg með stangarskot, boltinn barst svo á Birki Má sem átti þrumuskot en Gunnar Nielsen, þriðji markvörður Man City, varði vel í horn. Gunnar kom inn sem varamaður í hálfleiknum.
Elvar Geir Magnússon
57. mín
Heimir Hallgrímsson aðstoðarþjálfari fer yfir málin með Eiði Smára og Grétari Rafni. Þeir eru greinilega báðir að fara að koma inná.
Elvar Geir Magnússon
58. mín
Jóhann Berg með fínt skot en Gunnar afskaplega vel á verði og varði í horn.
Elvar Geir Magnússon
59. mín
Birkir Bjarnason í góðu skallafæri eftir horn en framhjá. Átti að gera betur.
Elvar Geir Magnússon
63. mín
STÁLheppnir Íslendingar að gestirnir jöfnuðu ekki! Mistök hjá Birki Má í bakverðinum og Jóan Simun fékk dauðafæri. Skot í stöngina!
Elvar Geir Magnússon
65. mín
Inn:Pætur Dam Jacobsen (Færeyjar) Út:Simun Samuelsen (Færeyjar)
Elvar Geir Magnússon
65. mín
Inn:Finnur Justinussen (Færeyjar) Út:Jóan Simun Edmundsson (Færeyjar)
Elvar Geir Magnússon
68. mín
Staðreynd: Miðað við þennan leik verður varnarleikurinn áhyggjuefni í komandi undankeppni. Erum alls ekki nægilega öryggir til baka.
Elvar Geir Magnússon
69. mín
Inn:Ari Freyr Skúlason (Ísland) Út:Bjarni Ólafur Eiríksson (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
69. mín
Inn:Eiður Smári Guðjohnsen (Ísland) Út:Jóhann Berg Guðmundsson (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
69. mín
Inn:Grétar Rafn Steinsson (f) (Ísland) Út:Birkir Már Sævarsson (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
72. mín
Sæll Finnur! Dauðafæri sem Finnur Justinussen fékk en hitti ekki markið! Enn og aftur er íslenska liðið heppið.
Elvar Geir Magnússon
Andri Ólafsson, fréttamaður:
Úaði þegar Grétar kom inná. #TeamManuela
Elvar Geir Magnússon
75. mín
Eitthvað segir mér að Alfreð Finnbogason sé smá pirraður núna. Sjóðheitur í Svíþjóð en situr enn á tréverkinu... eða er reyndar að hita, rétt skal vera rétt.
Elvar Geir Magnússon
78. mín
Kári skallaði í stöngina en var dæmdur brotlegur. Virkaði óttalega saklaust.
Elvar Geir Magnússon
80. mín
Inn:Bogi Lökin (Færeyjar) Út:Daniel Udsen (Færeyjar)
Elvar Geir Magnússon
81. mín
Inn:Arnór Smárason (Ísland) Út:Rúrik Gíslason (Ísland)
Elvar Geir Magnússon
85. mín Gult spjald: Jóan Simun Edmundsson (Færeyjar)
Elvar Geir Magnússon
90. mín MARK!
Kolbeinn Sigþórsson (Ísland)
Grétar Steinn með fyrirgjöf frá hægri og Kolbeinn skorar 2-0! Réttur maður á réttum stað! Kolbeinn hiklaust búinn að vera besti maður vallarins.
Elvar Geir Magnússon
92. mín
LEIK LOKIÐ
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
1. Jákup Mikkelsen (m) ('46)
2. Jónas Þór Næs
5. Rógvi Baldvinsson
5. Pól Jóhannus Justinussen
6. Hallur Hansson
7. Fróði Benjaminsen (f)
8. Daniel Udsen ('80)
9. Simun Samuelsen ('65)
10. Christian L. Holst
11. Jóan Simun Edmundsson ('65)
15. Odmar Færö

Varamenn:
16. Gunnar Nielsen (m) ('46)
26. Kristian Joenen (m)
12. Finnur Justinussen ('65)
13. Bogi Lökin ('80)
14. Hjalgrím Elttör
15. Rene Joensen
17. Pætur Dam Jacobsen ('65)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Jóan Simun Edmundsson ('85)
Fróði Benjaminsen (f) ('26)

Rauð spjöld: