Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Man City
1
0
Swansea
Willy Caballero '61 1-0
27.10.2012  -  16:30
Etihad leikvangurinn
Enska úrvalsdeildin
Dómari: Martin Atkinson
Byrjunarlið:
1. Joe Hart (m)
13. Willy Caballero (m)
2. Micah Richards ('85)
4. Vincent Kompany
8. Samir Nasri
10. Sergio Aguero ('96)
13. Aleksandar Kolarov ('46)
15. Jesús Navas
22. Gael Clichy
30. Nicolas Otamendi
42. Yaya Toure

Varamenn:
30. Costel Pantilimon (m)
3. Bacary Sagna
6. Fernando ('96)
10. Edin Dzeko
18. Frank Lampard ('46)
20. Eliaquim Mangala ('85)
35. Stefan Jovetic

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Mikilvægur sigur hjá Manchester City
97. mín
Ki Sung-Yueng með ágætis skottilraun en hitti ekki markið.
96. mín
Inn:Fernando (Man City) Út:Sergio Aguero (Man City)
90. mín
12 mínútum bætt við!!!
85. mín
Inn:Eliaquim Mangala (Man City) Út:Micah Richards (Man City)
81. mín
Það verður töluverður uppbótartími. Micah Richards meiddur og þarf að fara af velli á börum, virðist alvarlegt.
73. mín
Swansea átti að fá víti. Boltinn í hendina á Kompany innan teigs. Ekkert dæmt.
72. mín
Inn:Danny Graham (Swansea) Út:Leon Britton (Swansea)
Aron Elís Árnason:
Er eg sa eini sem er svolitid skotinn i joe hart? #worldclass #LíturAlltafVelÚt #fotbolti
66. mín
Inn:Gerhard Tremmel (m) (Swansea) Út:Michel Vorm (m) (Swansea)
Þjóðverji mættur í markið.
65. mín
Vorm, markvöður Swansea, þarf að fara af velli. Hann virðist hafa meiðst í nára eða mjöðm þegar hann skutlaði sér í tilraun til að verja skotið hjá Tevez.
61. mín MARK!
Willy Caballero (Man City)
Tevez með frábært skot fyrir utan teig! Hnitmiðað í hornið. Allt annað að sjá til liðsins í seinni hálfleik og gott mark hjá Englandsmeisturunum.
60. mín
Michu í fínu færi! Náði skalla á markið en Hart varði. Svo fór City upp og Tevez með skot sem Vorm varði. Þetta er fótboltaleikur í seinni hálfleik.
52. mín
Balotelli sem kom inná í hálfleik ógnandi en málaði sig út í horn og færið rann út í sandinn.
47. mín
Seinni hálfleikur byrjar bara á skoti! Aguero með skot framhjá.
46. mín
Inn:Frank Lampard (Man City) Út:Aleksandar Kolarov (Man City)
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn - Hann getur ekki orðið jafn leiðinlegur og sá fyrri.
Daníel Geir Moritz, fyndnasti maður Íslands:
Á enn möguleika á því að vera með alla leiki vitlausa í spá fyrir .net #nostradama
Hrannar Björn Steingrímsson, leikmaður Völsungs:
Hálftómur Etihad og City halda áfram að skíta. Skömm að þetta lið hafi orðið meistari í vor.
45. mín
Eina jákvæða við þennan fyrri hálfleik er lýsing Harðar Magnússonar sem velti því fyrir sér hvort leikmenn væru í einhverskonar verkfalli.
Sindri Björnsson, leikmaður Leiknis:
Þessi fyrrihálfleikur í City - Swansea er það fyndnasta sem ég hef séð !! #SundayLeague? #LélegastaSemÉgHefSéð #fotbolti #AlltDrasl
45. mín
Hálfleikur - Lokamínútur hálfleiksins örlítið líflegar eftir að dauðinn á skriðbeltunum hafði verið allsráðandi. Lið Manchester City verið lélegt.
41. mín
Það er aðeins að lifna yfir þessu! Michu í hörkufæri eftir frábæra stungu frá Kóreumanninum. Michu ekki rangstæður að þessu sinni en Joe Hart var vel á verði, kom út úr markinu og náði að verja. Vel gert Hart.
39. mín
SKOT!!! Já við fengum skot á markið... en beint í fangið á Vorm. Þetta er meiri leikurinn.
37. mín
Michu nær að koma boltanum í netið á marki Manchester City, kláraði frábærlega en var réttilega dæmdur rangstæður.
35. mín
Leikurinn hefur verið hreinlega leiðinlegur. Virkar ákveðið andleysi yfir heimamönnum. Kannski enn í sárum eftir tapið gegn Ajax í Meistaradeildinni?
Einar Hjörleifsson, markvörður Víkings Ó.:
Bíð eftir einni góðri skyndisókn! #GottFyrirLeikinn
Kristinn Gylfason, íþróttaáhugamaður:
Hver auglýsti aftur gerum leikinn betri? Áhorfendur þarfnast hans! #fótbolti
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks:
Zzzzzz.....City. Á ekkert ad fara ad vakna???#steindautt
25. mín
Ekki enn komið skot í leiknum!
23. mín
"Leikurinn tíðindalítill og hægur" segir Hörður Magnússon sem lýsir á Stöð 2 Sport. Höddi hefur rétt fyrir sér í þeim efnum.
21. mín
Endilega takið þátt í umræðum um leikinn... notaðu hashtagið #fótbolti á Twitter og valdar færslur verða birtar í þessari textalýsingu.
Birgir H. Stefánsson, fréttaritari Fótbolta.net á Akureyri:
Swansea skáru kragann af búning Real Madrid #whaitWhat #fótbolti
17. mín Gult spjald: Angel Rangel (Swansea)
Fyrir leikaraskap. Reyndi að fiska aukaspyrnu. Hárréttur dómur hjá Atkinson.
11. mín
Serbneski varnarmaðurinn Matija Nastasic hjá City er 19 ára gamall. Lék með Fiorentina í fyrra. Áhugaverður leikmaður.
8. mín
Leikurinn fer rólega af stað. Swansea gengur illa að halda boltanum innan liðsins. Ekkert færi komið enn.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks:
Spái 5-0 City...Tevez med 3!#champions
1. mín
Leikurinn er farinn af stað
Fyrir leik
Byrjunarlið Man City: Hart, Richards, Kompany, Nastasic, Clichy, Y Toure, Barry, Nasri, Tevez, Kolarov, Aguero

Byrjunarlið Swansea: Vorm, Rangel, Williams, Chico Flores, Davies, Britton, Ki, De Guzman, Routledge, Dyer, Michu
Fyrir leik
City hefur unnið sex síðustu heimaleiki sína gegn Swansea. Eini deildarsigur Swansea gegn City var í 2. deildinni 1951, vann liðið þá 2-1 sigur þann 14. mars.
Fyrir leik
Manchester City er án David Silva og Pablo Zabaleta sem eru meiddir. James Milner er í leikbanni.
Fyrir leik
Hér verður bein textalýsing frá leik Manchester City og Swansea í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst 16:30.

Manchester City er í þriðja sæti með 18 stig en Swansea í tíunda sæti með ellefu.
Byrjunarlið:
1. Michel Vorm (m) ('66)
4. Chico
6. Ashley Williams
7. Leon Britton ('72)
9. Michu
11. Pablo Hernandez
15. Wayne Routledge
20. Jonathan de Guzman
22. Angel Rangel
24. Ki Sung-Yueng
33. Ben Davies

Varamenn:
10. Danny Graham ('72)
12. Nathan Dyer
16. Garry Monk
17. Itay Shechter
21. Dwight Tiendalli
25. Gerhard Tremmel (m) ('66)
26. Kemy Agustien

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Angel Rangel ('17)

Rauð spjöld: