Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
FH
1
1
ÍBV
Atli Guðnason '30 1-0
1-1 Víðir Þorvarðarson '45
Guðjón Árni Antoníusson '85
16.05.2013  -  20:00
Kaplakriki
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Glimrandi sól, völlurinn ágætur
Dómari: Kristinn Jakobsson
Áhorfendur: 1817
Maður leiksins: Guðmann Þórisson (FH)
Byrjunarlið:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
Ólafur Páll Snorrason
3. Guðjón Árni Antoníusson
4. Sam Tillen
7. Ingimundur Níels Óskarsson ('65)
8. Emil Pálsson ('72)
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
11. Atli Guðnason
21. Guðmann Þórisson
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson ('81)

Varamenn:
13. Kristján Gauti Emilsson
17. Atli Viðar Björnsson ('65)
18. Kristján Flóki Finnbogason

Liðsstjórn:
Daði Lárusson

Gul spjöld:
Viktor Örn Guðmundsson ('88)
Björn Daníel Sverrisson ('74)
Freyr Bjarnason ('38)
Ingimundur Níels Óskarsson ('33)

Rauð spjöld:
Guðjón Árni Antoníusson ('85)
Fyrir leik
Góða kvöldið, hér mun koma inn textalýsing fyrir stórleik FH og ÍBV í Pepsi-deild karla.
Fyrir leik
Bæði lið eru með fullt hús eftir fyrstu tvo leikina. FH vann Keflavík 2-1 í fyrsta leik og svo Þór 3-0 fyrir norðan. Þetta er hins vegar fyrsti leikur Eyjamanna á meginlandinu en þeir unnu ÍA og Breiðablik sannfærandi í Eyjum.
Fyrir leik
Eins og mátti búast við eru bæði lið óbreytt frá sigrum sínum í síðustu umferð.
Fyrir leik
Leifur Garðars í góðum gír, splæsti í eldrauðar gallabuxur í tilefni dagsins.
Fyrir leik
Þessi lið mættust í eftirminnilegum leik í Lengjubikarnum í mars. Þá fór FH með 4-3 sigur af hólmi þar sem Hermanni Hreiðarssyni var hent upp í stúku.
Fyrir leik
Róleg stemmning í Krikanum, liðin hita upp í rólegheitum og Bubbi á fóninum.
Fyrir leik
Það er hægt og rólega að tínast í stúkuna. Korter í leik!
Heiðar Guðnason
Er madur í jardaför eda á fótboltaleik. DJ'inn á Kaplakrika ekki med tetta. #fótbolti #Pepsimörkin #pepsideildin
Fyrir leik
Liðin halda til búningsklefa, það fer að styttast í þetta.
Fyrir leik
Gaui Þórðar mættur, fékk að kíkja á byrjunarliðin hér í blaðamannastúkunni. Freyr Alexandersson og Davíð Snorri Jónasson þjálfarar Leiknis Reykjavík einnig mættir.
Fyrir leik
Þá koma liðin inn á völlinn ásamt 22 ungum FH-ingum.
1. mín
Vestmannaeyjingar hefja leik!
6. mín
Ágætis tempo til að byrja með, lofar góðu.
7. mín Gult spjald: Tonny Mawejje (ÍBV)
Fyrsta spjald kvöldsins.
9. mín
FH-ingar pressa hátt að venju og ná betri tökum til að byrja með. Engin færi hins vegar.
10. mín
Ian Jeffs í ágætis færi í fyrsta skipti sem Eyjamenn komast yfir miðju. Guðmann bjargaði vel.
16. mín
Eyjamenn eru þéttir fyrir og gera FH-ingum erfitt fyrir að skapa sér færi. Lítið að gerast.
17. mín
Sam Tillen með fyrirgjöf úr djúpinu beint á kollinn á Atla Guðnasyni, skallinn framhjá.
21. mín
Guðmann á slakan skalla yfir eftir hornspyrnu Tillen frá hægri, ágætis færi.
25. mín
Róbert Örn missir boltann eftir aukaspyrnu Jeffs, það irtist vera sem Eyjamenn ætluðu að skora en Kristinn dæmdi að brotið hefði verið á Róberti.
29. mín
Atli Guðnason á skalla framhjá eftir aðra hornspyrnu Tillen frá hægri. David James missti af boltanum. Gamli karlinn heppinn þarna.
30. mín MARK!
Atli Guðnason (FH)
Stoðsending: Ólafur Páll Snorrason
Ólafur með góða fyrirgjöf meðfram jörðinni frá hægri. Boltinn fór í gegnum allan pakkann á fjærstöngina þar sem Atli átti ekki erfitt með að pota boltanum í opið markið.
32. mín
Eyjamenn fá dauðafæri strax í kjölfarið þar sem Simmons skallaði fyrirgjöf niður í boxinu en Víðir rétt missti af boltanum. Markspyrna fyrir FH.
33. mín Gult spjald: Ingimundur Níels Óskarsson (FH)
35. mín
Tonny Mawejje með slakt skot fyrir utan teig sem Róbert á ekki í vandræðum með, hafði aðra möguleika.
37. mín Gult spjald: Bradley Simmonds (ÍBV)
38. mín Gult spjald: Freyr Bjarnason (FH)
Fór aftan í Simmons, hárrétt.
41. mín
Björn Daníel með þrumuskot af 30 metrum, yfir markið.
45. mín MARK!
Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Stoðsending: Bradley Simmonds
Frábært mark hjá Víði, sneri af sér varnarmann og afgreiddi snyrtilega fyrir utan teig.
45. mín
Hálfleikur, þetta frábæra mark á líklega eftir að krydda aðeins upp á síðari hálfleikinn.
45. mín
FH-ingar hafa heilt yfir verið betri, haldið boltanum betur. Eyjamenn hins vegar verið þéttir og reynt að beita skyndisóknum og geta verið nokkuð sáttir við sitt. Mikilvægt að ná inn þessu marki rétt fyrir hálfleik.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Engin breyting var gerð á liðunum.
52. mín
Síðari hálfleikurinn fer vægast sagt rólega af stað.
57. mín
Það stendur ekki steinn yfir steini hér í Krikanum og hafa þessar 12 mínútur verið drepleiðinlegar.
60. mín
Það er fagnað í stúkunni er árangur Eyþórs í Eurovision er tilkynntur í hátalarakerfinu. Það er markverðasti hluturinn sem hefur átt sér stað hingað til í síðari hálfleik.
65. mín
Inn:Atli Viðar Björnsson (FH) Út:Ingimundur Níels Óskarsson (FH)
65. mín
Inn:Ragnar Pétursson (ÍBV) Út:Bradley Simmonds (ÍBV)
66. mín
Löngu tímabærar skiptingar hjá báðum liðum. Vonandi að þær hressi aðeins upp á þetta.
68. mín
Jæja, þá kom loksins færi. Ian Jeffs fékk boltann inn fyrir en Róbert varði frá honum úr ágætis færi.
Hafliði Breiðfjörð
72. mín
Inn:Dominic Furness (FH) Út:Emil Pálsson (FH)
Fyrsti leikur Dominic Furness í Pepsi-deildinni. Hann lék með Tindastóli í fyrra.
Hafliði Breiðfjörð
74. mín Gult spjald: Björn Daníel Sverrisson (FH)
Björn Daníel áminntur fyrir brot á Gunnari Má í miðjuhringnum.
Hafliði Breiðfjörð
81. mín
Inn:Viktor Örn Guðmundsson (FH) Út:Brynjar Ásgeir Guðmundsson (FH)
Heimir Guðjónsson bætir í sóknina, Viktor kemur á kantinn og Atli Viðar og Atli Guðna eru saman frammi.
Hafliði Breiðfjörð
83. mín Gult spjald: Ian Jeffs (ÍBV)
Jeffs fór aftan í Björn Daníel og fær áminningu.
Hafliði Breiðfjörð
85. mín Rautt spjald: Guðjón Árni Antoníusson (FH)
Fyrirliði FHinga fær beint rautt spjald fyrir tæklingu á Ragnar Pétursson út við hliðarlínu.
Hafliði Breiðfjörð
88. mín Gult spjald: Viktor Örn Guðmundsson (FH)
Fyrir að tækla Gunnar Þorsteinsson á vallarhelmingi eyjamanna.
Hafliði Breiðfjörð
90. mín
Inn:Ragnar Leósson (ÍBV) Út:Tonny Mawejje (ÍBV)
Hafliði Breiðfjörð
90. mín
Gunnar Þorsteinsson með þrumuskot fyrir utan teig sem Róbert Örn hafði sig allan við að verja í horn.
Hafliði Breiðfjörð
92. mín
Eyjamenn sækja stíft í uppbótartíma. Mínúta eftir af honum.
Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 1-1 jafntefli. Viðtöl og frekari umfjöllun hér á Fótbolta.net á eftir.
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
6. Gunnar Þorsteinsson
11. Víðir Þorvarðarson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Varamenn:
5. Jón Ingason
22. Gauti Þorvarðarson

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Guðjón Orri Sigurjónsson

Gul spjöld:
Ian Jeffs ('83)
Bradley Simmonds ('37)
Tonny Mawejje ('7)

Rauð spjöld: