Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fjölnir
1
0
Leiknir R.
Aron Sigurðarson '13 1-0
16.07.2013  -  19:15
Fjölnisvöllur
1. deild karla
Dómari: Sebastian Stockbridge
Byrjunarlið:
3. Bergsveinn Ólafsson (f)
3. Illugi Þór Gunnarsson
10. Aron Sigurðarson
15. Haukur Lárusson
16. Guðmundur Böðvar Guðjónsson ('86)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Illugi Þór Gunnarsson ('90)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Fjölnir og Leiknir mætast í 1. deildinni. Það er hart barist í deildinni og þessi lið eru hlið við hlið. Það er oft hart barist þegar þessi tvö lið eigast við og oft á tíðum mörg mörk.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Sebastian Stockbridge mun dæma leikinn en hann er enskur og mun dæma í Championship-deildinni sterku á komandi vetri.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Leiknir er í fjórða sæti en Fjölnir í því fimmta. Aðeins eitt stig skilur liðin að.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Hægt er að sjá byrjunarliðin í hliðunum. Bandaríski varnarmaðurinn Matt Ratajczak er kominn með leikheimild og er meðal varamanna hjá Fjölni. Hjá Leikni er Blikinn ungi Ósvald Jarl Traustason á tréverkinu en hann er nýkominn til Breiðholtsliðsins á lánssamningi.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Leikurinn verður sýndur í þráðbeinni á SportTv.is. Smelltu hér til að fara í útsendinguna.
Elvar Geir Magnússon
1. mín
Leikurinn er farinn af stað
Elvar Geir Magnússon
13. mín MARK!
Aron Sigurðarson (Fjölnir)
Stutt hornspyrna og Aron skorar frá vítateigshorni með skoti sem siglir framhjá öllum og í stöng og inn. Vel gert. 1-0 fyrir Fjölni!
16. mín
Viðar Ari Jónsson með hörkuskot af löngu færi en boltinn fer framhjá. Fjölnismenn að byrja talsvert betur.
24. mín
Aron gerir sig aftur líklegan. Með hörkuskot af löngu færi sem Eyjólfur ver út við stöng.
25. mín
Aron aftur með skot en boltinn fer í varnarmann og rétt framhjá.
36. mín
Inn:Atli Már Þorbergsson (Fjölnir) Út:Árni Kristinn Gunnarsson (Fjölnir)
Árni fer meiddur af velli.
42. mín
Leiknismenn að hressast. Hafa sótt meira undanfarnar mínútur.
45. mín
Mark Arons skilur liðin að í leikhléi, 1-0 fyrir Fjölni. Leiknismenn hresstust undir lok fyrri hálfleiks og spurning er hvort þeir nái að fylgja því yfir í síðari hálfleiknum.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn.
53. mín
Besta færi Leiknis í leiknum. Óttar Bjarni Guðmundsson fær boltann á fjærstöng en Þórður Ingason ver.
62. mín
Inn:Ósvald Jarl Traustason (Leiknir R.) Út:Gestur Ingi Harðarson (Leiknir R.)
Ósvald þreytir frumraun sína með Leikni.
67. mín
Inn:Stefán Birgir Jóhannesson (Leiknir R.) Út:Aron Fuego Daníelsson (Leiknir R.)
70. mín
Leiknismenn meira með boltann en vörn Fjölnis er þétt.
70. mín
Ágúst Örn Arnarson í ágætis færi en Eyjólfur ver.
75. mín
Inn:Sindri Björnsson (Leiknir R.) Út:Vigfús Arnar Jósepsson (Leiknir R.)
77. mín
Inn:Ómar Hákonarson (Fjölnir) Út:Viðar Ari Jónsson (Fjölnir)
84. mín
Afskaplega rólegt yfir þessu. Ekki hægt að segja að markið liggi í loftinu.
86. mín
Inn:Marinó Þór Jakobsson (Fjölnir) Út:Guðmundur Böðvar Guðjónsson (Fjölnir)
90. mín
Aron sleppur einn í gegn eftir sendingu frá Marinó en Eyjólfur Tómasson ver glæsilega.
90. mín Gult spjald: Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Fyrsta gula spjaldið kemur í viðbótartíma.
90. mín
Leik lokið með 1-0 sigri Fjölnismanna. Nánari umfjöllun innan tíðar.
Byrjunarlið:
Vigfús Arnar Jósepsson ('75)
Óttar Bjarni Guðmundsson
Eyjólfur Tómasson
10. Ólafur Hrannar Kristjánsson
10. Fannar Þór Arnarsson
11. Brynjar Hlöðversson
21. Hilmar Árni Halldórsson
23. Gestur Ingi Harðarson ('62)

Varamenn:
3. Ósvald Jarl Traustason ('62)
14. Birkir Björnsson
88. Sindri Björnsson ('75)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: