Fram
2
1
Breiðablik
Kristinn Ingi Halldórsson '9 1-0
Hólmbert Aron Friðjónsson '40 , víti 2-0
2-1 Árni Vilhjálmsson '71
04.08.2013  -  16:00
Laugardalsvöllur
Borgunarbikar karla
Aðstæður: Smávægilegur vindur og sól.
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Maður leiksins: Almarr Ormarsson (Fram)
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
10. Orri Gunnarsson
11. Almarr Ormarsson
13. Viktor Bjarki Arnarsson ('59)

Varamenn:
1. Denis Cardaklija (m)
9. Haukur Baldvinsson ('65)
16. Aron Bjarnason
23. Benedikt Októ Bjarnason

Liðsstjórn:
Halldór Hermann Jónsson
Daði Guðmundsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Hér verður bein textalýsing frá leik Fram og Breiðabliks í undanúrslitum Borgunarbikars karla frá Laugardalsvelli.
Fyrir leik
Blikar gera fjórar breytingar á liði sínu frá 0-1 tapi sínu í Kasakstan á fimmtudag. Þórður Steinar Hreiðarsson, Nichlas Rohde, Tómas Óli Garðarsson og Andri Rafn Yeoman detta út fyrir Elfar Árna Aðalsteinsson, Viggó Kristjánsson, Árna Vilhjálmsson og Elvar Pál Sigurðsson.
Fyrir leik
Framarar gera hins vegar þrjár breytingar á sínu liði frá 0-3 tapinu gegn Fylki síðasta sunnudag. Jón Gunnar Eysteinsson, Haukur Baldvinsson og Benedikt Októ Bjarnason eru teknir út. Þeirra í stað eru Orri Gunnarsson, Ólafur Örn Bjarnason og Jon André Röyrane.
Fyrir leik
Frá því að þessi lið mættust þann 30. júní í leik sem endaði með 1-1 jafntefli hafa Fram spilað fimm leiki en Blikar hafa hins vegar spilað níu leiki í fjórum löndum á sama tíma.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður á RÚV:
Á ekki pottþétt að sýna Fram-Breiðablik í hestasætinu? #spennandileikur
Fyrir leik
Þá halda liðin til búningsherbergja. Ólafur og Ríkharður ná vonandi að rífa menn rækilega upp svo að við fáum nú skemmtilegan leik.
Fyrir leik
Rauði baróninn leiðir þá liðin inn á völlinn. Framarar eru bláir en Blikar leika í hvítu í dag.
1. mín
Framarar hefja leik!
3. mín
Guðjón Pétur á skot úr aukaspyrnu en Ögmundur á ekki í vandræðum með það.
4. mín
Hætta við mark Blika, Viktor Bjarki sendir inn á teiginn sem leiðir til klaps í markteignum. Blikar komu boltanum frá.
9. mín MARK!
Kristinn Ingi Halldórsson (Fram)
Stoðsending: Hólmbert Aron Friðjónsson
Almarr vinnur boltann á miðjunni, sendir Hólmbert í gegn. Hann lætur Gunnleif verja frá sér í dauðafæri, boltinn bersti til Kristins sem afgreiðir boltann frábærlega upp í fjærhornið.
10. mín
Ólafur Kristjánsson er brjálaður út í Garðar dómara eftir markið en honum fannst Almarr brjóta af sér er hann vann boltann á miðjunni.
11. mín
Guðjón Pétur á skot úr aukaspyrnu vinstra megin á vellinum, Ögmundur ver vel.
16. mín
Guðjón Pétur á fyrirgjöf úr aukaspyrnu vinstra megin. Ögmundur fer í fáránlegt úthlaup og missar af boltanum. Sverrir Ingi og Renee Troost voru mættir á fjærstöngina en Framarar náðu að bægja hættunni frá.
22. mín
Nokkuð rólegt yfir þessu. Blikar halda boltanum betur en Framarar eru þéttir fyrir og gera þeim erfitt fyrir.
26. mín
Elvar Páll í ágætisstöðu, varnarmaður kemst hins vegar fyrir skotið og boltinn afturfyrir. Hornspyrna.
26. mín
Sverrir Ingi á skalla í átt að marki, Árni Vill flikkar af markteig en Ögmundur ver frábærlega!
28. mín
Hólmbert með skalla að marki eftir góða aukaspyrnu frá Hewson. Gunnleifur ver vel.
32. mín
Almarr með mjög góðan sprett en það kemur ekkert upp úr honum.
35. mín
Almarr vinnur boltann af Finni Orra og á skot á markið. Beint á Gulla í markinu.
39. mín
Vítaspyrna fyrir Fram! Enn einu sinni er það Almarr Ormarsson, vinnur boltann af Sverri Inga sem tekur Almar niður í teignum. Þetta er sýning Almars hér í Laugardalnum.
40. mín Mark úr víti!
Hólmbert Aron Friðjónsson (Fram)
Stoðsending: Almarr Ormarsson
Vinstri fótur, vinstra horn. Sendir Gulla í vitlausa átt.
45. mín
Sverrir Ingi á skalla yfir eftir hornspyrnu Guðjóns Péturs.
45. mín
Hálfleikur! - Fullkomnlega verðskuldað hjá Frömurum. Þreytumerki á Blikum eftir langa ferð frá Kasakstan.
46. mín
Inn:Andri Rafn Yeoman (Breiðablik) Út:Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik)
46. mín
Inn:Nichlas Rohde (Breiðablik) Út:Elvar Páll Sigurðsson (Breiðablik)
46. mín
Þá er síðari hálfleikurinn hafinn! Blikar gerðu þarfa tvöfalda skiptingu í hálfleik.
46. mín
Elfar Árni í dauðafæri strax eftir 30 sekúndur í síðari hálfleik! Ellert skallar boltann innfyrir en Elfar skýtur framhjá.
50. mín
Árni Vilhjálmsson á skalla framhjá eftir hornspyrnu Kristins Jónssonar frá vinstri.
52. mín
Hólmbert á skot að marki eftir aukaspyrnu Hewson frá vinstri. Vel varið hjá Gunnleifi.
58. mín
Sverrir Ingi á skalla að marki eftir aukaspyrnu Viggós Kristjánssonar.
59. mín
Inn:Halldór Hermann Jónsson (Fram) Út:Viktor Bjarki Arnarsson (Fram)
61. mín
Alan Lowing bjargar skoti Elfars Árna stórkostlega á línu. Blikar pressa vel á Framara sem stendur.
62. mín
Ellert Hreinsson með fínt skot frá vítateigslínunni. Ögmundur ver vel og gerir frábærlega að halda boltanum.
65. mín
Inn:Haukur Baldvinsson (Fram) Út:Jon André Röyrane (Fram)
67. mín
Inn:Olgeir Sigurgeirsson (Breiðablik) Út:Ernir Bjarnason (Breiðablik)
69. mín
Almarr Ormarsson í dauðafæri á fjærstönginn eftir fyrirgjöf frá hægri. Hann hittir boltann hins vegar illa og Gunnleifur á ekki vandræðum með að verja.
71. mín MARK!
Árni Vilhjálmsson (Breiðablik)
Algjörlega upp úr þurru, vinnur boltann af Löwing og kemst í gegn í leiðinni. Afgreiðir boltann frábærlega framhjá Ögmundi í markinu.
72. mín
Hólmbert í ágætis færi strax í kjölfar marks Blika, en Gunnleifur ver vel.
73. mín
Nichlas Rohde í dauðafæri! Fékk boltann innfyrir hægra megin og skýtur niðrí nærhornið en Ögmundur ver vel í horn.
76. mín
Elfar Árni fær háan bolta innfyrir og skallar í átt að marki en Ögmundur kom í góðu úthlaupi á móti honum og varði vel. Það er annað mark í loftinu.
80. mín
Ellert Hreinsson með hörkuskot en Ögmundur ver vel í horn.
82. mín
Inn:Jón Gunnar Eysteinsson (Fram) Út:Kristinn Ingi Halldórsson (Fram)
86. mín
Blikar reyna hvað þeir geta að jafna en Framarar verjast vel. Eru komnir í 5 manna vörn eftir að Jón Gunnar kom inn.
89. mín
Sverrir Ingi á skalla framhjá eftir sendingu Finns Orra. Ná Framarar að halda þetta út?
90. mín
Þrjár mínútur eru í uppbótartíma.
Leik lokið!
Fram eru komnir í bikarúrslit 2013!
Byrjunarlið:
4. Damir Muminovic
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Árni Vilhjálmsson
16. Ernir Bjarnason ('67)
18. Finnur Orri Margeirsson
19. Kristinn Jónsson
22. Ellert Hreinsson
45. Guðjón Pétur Lýðsson ('46)

Varamenn:
24. Arnór Bjarki Hafsteinsson (m)
2. Gísli Páll Helgason
17. Elvar Páll Sigurðsson ('46)
30. Andri Rafn Yeoman ('46)
77. Þórður Steinar Hreiðarsson

Liðsstjórn:
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: