Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Breiðablik
2
2
Aktobe
Finnur Orri Margeirsson '27 1-0
Sverrir Ingi Ingason '120 , misnotað víti 1-0
1-0 Andrei Kharabara '120 , misnotað víti
Guðjón Pétur Lýðsson '120 , misnotað víti 1-0
1-0 Marat Khayrullin '120 , misnotað víti
Kristinn Jónsson '120 , misnotað víti 1-0
1-1 Emil Kenzhisariev '120 , víti
Nichlas Rohde '120 , víti 2-1
2-2 Timur Kapadze '120 , víti
Damir Muminovic '120 , misnotað víti 2-2
08.08.2013  -  20:00
Laugardalsvöllur
Evrópudeildin - seinni leikur
Aðstæður: Rigning og rok
Dómari: Sébastien Delferiere frá Belgíu
Áhorfendur: 2449
Maður leiksins: Kristinn Jónsson
Byrjunarlið:
4. Damir Muminovic
9. Elfar Árni Aðalsteinsson ('84)
18. Finnur Orri Margeirsson
19. Kristinn Jónsson
22. Ellert Hreinsson
27. Tómas Óli Garðarsson ('72)
30. Andri Rafn Yeoman ('105)
45. Guðjón Pétur Lýðsson
77. Þórður Steinar Hreiðarsson

Varamenn:
24. Arnór Bjarki Hafsteinsson (m)
2. Gísli Páll Helgason
5. Elfar Freyr Helgason ('84)
10. Árni Vilhjálmsson ('105)

Liðsstjórn:
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Elfar Árni Aðalsteinsson ('58)

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá seinni leik Blika í Evrópukeppninni á móti Aktobe.

Leikurinn hefst kl. 20:00 og er spennan að magnast.
Fyrir leik
Við erum enn að bíða eftir því að leikskýrslur koma í hús. Ég mun birta þau um leið og þau eru komin.
Fyrir leik
Það er þannig að Blikar þurfa að spila leikinn sinn á Laugardalsvellinum í kvöld en ekki á sínum venjulega heimavelli, Kópavogsvellinum sökum þess að Aktobe samþykkti ekki að veita undanþágu frá reglum UEFA sem segja að Kópavogsvöllur uppfylli ekki skilyrði þeirra í 3.umferð Evrópudeildarinnar.
Fyrir leik
Jæja byrjunarliðin eru komin í hús. Það er gaman að segja frá því að númer Kasakana eru öll frekar há og ná upp í 95. Einnig eru þeir með tvo markmenn á varamannabekknum.
Fyrir leik
Lagið seinna meir með hinu frábæra 80's bandi Start hljómar í hljóðkerfinu. Vonandi gefur titill lagsins ekki fyrirheit fyrir Blika í kvöld, miklu frekar fyrir Aktobe.
Fyrir leik
Aktobe gerir tvær breytingar frá leiknum ytra. Elfar Árni kemur inn í staðin fyrir Rohde frá fyrri leiknum.
Fyrir leik
Liðin eru um það bil að ganga inn á völlinn. Og sem íslenskur blaðamaður segi ég ekkert nema ÁFRAM BREIÐABLIK!
1. mín
Leikurinn er hafinn.
5. mín
Andri Rafn lá eftir á vellinum og er kominn til aðhlynningar. Virtist sárkvalinn.
6. mín
Andri kominn inn á aftur eftir aðhlynninguna.
9. mín
Kasakar með skot að marki en Gulli varði boltann vel yfir.
17. mín
Leikurinn er í járnum eins og sagt er. Hvorugt lið er að skapa sér nein færi að ráði.
21. mín
Blikar fá aukaspyrnu á hættulegum stað!
22. mín
Kristinn Jónsson tók spyrnuna en hún því miður fyrir Blika fór langt yfir.
24. mín
Kasakar komust í hættulega sókn og náði leikmaður þeirra að koma boltanum yfir Gulla sem kom á móti en boltinn fór í hliðarnetið.
26. mín
Ellert átti skalla að marki eftir sendingu frá Kristni en markmaður Kaskana náði að koma hendinni í boltann og blaka honum frá.
27. mín MARK!
Finnur Orri Margeirsson (Breiðablik)
Stoðsending: Kristinn Jónsson
JÁÁÁÁÁAÁÁÁ!!!! KRISTINN JÓNSSON ÁTTI SENDINGU Á FINN ORRA SEM SKORAÐI OG SETTI SITT FYRSTA MARK FYRIR BREIÐABLIK!!!! Svona á að gera þetta.

Nú erum við kominn með leik! Áfram Blikar!!
34. mín
Kasakar eru orðnir pirraðir og detta niður eins og skotnir væru við minnstu snertingu. Dómarinn er ekki að falla fyrir B-mynda leiklistartöktum þeirra sem betur fer.
42. mín
Kasakar hafa aukið sóknarþunga sinn síðustu mínútur og Blikar að sama skapi bakkað aftur. Blikar þurfa þó að muna að það eru enn tæpar 50 mínútur eftir og engin sigur er enn unninn.
44. mín Gult spjald: Sergei Kovalchuk (Aktobe)
45. mín
Það er kominn hálfleikur og Blikar fara inn í hléið með vænlega stöðu.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn. Enn og aftur. Áfram Blikar!
52. mín Gult spjald: Alexei Muldarov (Aktobe)
Alexei fékk gult spjald fyrir að stöðva skyndisókn Blika sem var í uppsiglingu.
58. mín Gult spjald: Elfar Árni Aðalsteinsson (Breiðablik)
Elfar Árni fær gult fyrir heldur vægar sakir að mér finnst.
60. mín
Kasakar eru sterkari, það verður að segjast. En þeir eru þó ekki að skapa sér nein færi að ráði og ekkert hefur reynt á Gulla í markinu eða því sem næst.
61. mín Gult spjald: Sergei Lisenkov (Aktobe)
63. mín
Kasakar með hættulegt skot að marki Blika en boltinn skautaði framhjá markinu. Ég vill fara að sjá meira líf í Blikum, annars gætum við átt á hættu að sjá mark frá Kasökum.
65. mín Gult spjald: Andrei Kharabara (Aktobe)
68. mín
Frábær markvarsla frá Gunnleifi! Hann fékk gott skot á sig innan úr teignum en varði stórkostlega.
72. mín
Inn:Nichlas Rohde (Breiðablik) Út:Tómas Óli Garðarsson (Breiðablik)
78. mín
Kasakar fá aukaspyrnu á hættulegum stað en skot þeirra var langt yfir markið.
81. mín
Blikar voru svo nálægt því að komast einir á móti markmanni en því miður var sókn þeirra stöðvuð.
81. mín
Inn:Alexander Geynrikh (Aktobe) Út:Sergei Lisenkov (Aktobe)
84. mín
Inn:Elfar Freyr Helgason (Breiðablik) Út:Elfar Árni Aðalsteinsson (Breiðablik)
Elfar Freyr kemur inn á í sínum fyrsta leik fyrir Blika síðan 2010.
87. mín
Bikar eru orðnir vel þreyttir og er það ekkert skrítið miðað við hve mikið álag hefur verið á þeim síðustu daga.
89. mín
Ellert liggur eftir inn í vítateig Kasaka eftir samstuð við markmanninn. Hann gengur að hliðarlínunni til aðhlynninningar.
90. mín
Þrem mínútum bætt við venjulegan leiktíma. Það stefnir í framlengingu.
90. mín
Venjulegum leiktími er liðinn. 30 mínútur eftir og vonandi að Blikar hafi orkuna til að gera það sem þarf að gera.
91. mín
Framlenging er hafinn.
95. mín
Andri Rafn í dauðafæri en skotið fór framhjá. Þarna mátti litlu muna.
96. mín
Klukkan er 4 að nóttu í Kazakhstan. Þeir fara vonandi að sofna bara Kasakarnir.
101. mín
Þriðja skiptið sem Rohde er rangstæður í leiknum. Það vonandi fer að detta inn að hann verði það ekki og setji tuðruna í netið.
105. mín
Inn:Árni Vilhjálmsson (Breiðablik) Út:Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Blikar gera sína síðustu skiptingu.
105. mín
Inn:Aldan Baltaev (Aktobe) Út:Robert Arzumanyan (Aktobe)
105. mín
Fyrri hálfleik framlengingar lokið. Blikar eru orðnir vel þreyttir og eru eiginlega bara búnir að liggja á sínum vallarhelming. Vonandi að þeir finni einhvern aukakraft á síðustu 15 mínútunum til að klára þennan leik.
106. mín
Seinni hálfleikur framlengingar er hafinn.
109. mín
Árni Vilhjálms átti í kapphlaupi við markmanninn um hvor næði fyrr til boltans og því miður varð markmaðurinn fyrri til.
114. mín
Gunnleifur er að bjarga sínum mönnum með frábærri markvörslu. Kasakar fengu dauðafæri inn í teignum og náðu skoti að marki sem Gulli verði vel.
118. mín
Kasakar eru í massa sókn og eiga Blikar erfitt með að koma boltanum í burtu. Aðeins 2 mínútur í vítaspyrnukeppni!
120. mín
Það er vítaspyrnukeppni sem ræður úrslitum hér í kvöld! ÁFRAM BLIKAR!!!
120. mín Misnotað víti!
Sverrir Ingi Ingason (Breiðablik)
Sverrir skaut beint á markið!
120. mín Misnotað víti!
Andrei Kharabara (Aktobe)
Skaut langt yfir!
120. mín Misnotað víti!
Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik)
Lét verja hjá sér!
120. mín Misnotað víti!
Marat Khayrullin (Aktobe)
GUNNLEIFUR VARÐI!!!!
120. mín Misnotað víti!
Kristinn Jónsson (Breiðablik)
Lét verja hjá sér....þetta er ótrúlegt!!!
120. mín Mark úr víti!
Emil Kenzhisariev (Aktobe)
Setti hann í hægra hornið
120. mín Mark úr víti!
Nichlas Rohde (Breiðablik)
Setti hann hægra meginn.
120. mín Mark úr víti!
Timur Kapadze (Aktobe)
Setti hann hægra megin
120. mín Misnotað víti!
Damir Muminovic (Breiðablik)
Byrjunarlið:
55. Andrei Sidelnikov (m)
3. Alexei Muldarov
4. Andrei Kharabara
5. Petr Badlo
10. Marat Khayrullin
12. Robert Primus
16. Robert Arzumanyan ('105)
19. Sergei Lisenkov ('81)
20. Emil Kenzhisariev
39. Sergei Kovalchuk
80. Timur Kapadze

Varamenn:
34. Zhassur Narzikulov (m)
35. Stanislav Pavlov (m)
22. Sanat Shalekenov
23. Yuri Logvinenko
50. Alexander Geynrikh ('81)
89. Aldan Baltaev ('105)
95. Abat Aimbetov

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Andrei Kharabara ('65)
Sergei Lisenkov ('61)
Alexei Muldarov ('52)
Sergei Kovalchuk ('44)

Rauð spjöld: